Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1996, Page 31

Frjáls verslun - 01.04.1996, Page 31
Guöný Harðardóttir: waniiUiinliMl Guðný Harðardóttir, hjá Starfsráðningum, hefur til fjölda ára starfað við starfsráðningar og þekkir vel innviði at- vinnulífsins. Hún segir að atvinnuhorfur séu almennt betri nú en fyrir nokkrum árum. „Undanfarin ár hafa verið erfið og mörg fyrirtæki ekki bætt við miklu af nýju starfsfólki. Nú hefur orðið breyting á, ekki síst í vetur. Atvinnurekendur eru bjartsýnni en áður,“ segir Guðný. „Auðvitað eru atvinnumöguleikar námsmanna misjafn- lega góðir en möguleikar viðskiptafræðinga eru miklir - ekki síst þeirra sem hafa aflað sér framhaldsmenntunar. Samfara aukinni menntun hafa byrjendalaun viðskipta- fræðinga hækkað á atvinnumarkaðnum. Fyrir þremur ár- um voru þau um 120 þúsund krónur á mánuði en hafa hækkað síðan, jafnvel um nokkra tugi þúsunda.“ Guðný telur að þrátt fyrir góðar atvinnuhorfur megi ekki líta framhjá þeirri staðreynd að viðskipta- og hag- fræðingar séu misjafnlega lengi að fá vinnu. Þar eru ótal atriði sem skipta máli, s.s. sérsvið í námi, starfsreynsla og frumkvæði, svo dæmi séu tekin. Þá skiptir efnahags- ástandið töluverðu máli. „í þeirri lægð, sem var hér í efnahagslífinu fyrir nokkr- um árum, voru fyrirtæki ginnkeyptari fyrir fólki sem gat unnið með tölur, eins og fjármálastjórum, og þá var til að mynda lítil eftirspum eftir markaðsfræðingum. Nú er eft- irspumin farin að aukast eftir fólki með markaðsfræði- kunnáttu. Annars er mikil eftirspurn eftir einstaklingum sem hafa bæði viðskipta- og tölvumenntun." Ásbjörn Gíslason, viðskiptafræðingur hjá Samskipum, útskrifaðist sl. vor frá Háskóla íslands. erlendis og fengu prýðileg störf að því loknu. Svo virðist sem fyrirtæki geri í auknum mæli kröfu um að starfsmenn hafi framhaldsmenntun í sínu fagi. Ég held að með slíku sé þó ekki verið að útiloka þá sem eru minna menntaðir því ef þeir búa yfir góðri dómgreind, skipulagshæfni og almennri skynsemi hafa þeir alla burði til að gera góða hluti á vinnumarkaðnum,‘‘ segir Guðný. Þórir Þorvarðarson: FÓLK Á MIÐJUM ALDRI Um atvinnuhorfur fólks á miðjum aldri segir Guðný að karlar eigi í meiri erfiðleikum en konur með að fá störf. „Þegar ástandið var hvað verst árið 1993 var fjölmörgum karlmönnum í millistjórnunarstöðum sagt upp en það var einkum fólk sem var jafnvel með litla menntun. Margir fengu aftur vinnu á sínu sviði eftir talsverða leit en sumir urðu að sætta sig við lægri stöður. Þónokkrir fóru í nám Þórir Þorvarðarson, forstöðumaður ráðningarþjónustu Hagvangs, segir að á undanförnum árum hafi viðskipta- og hagfræðingum gengið ágætlega að fá starf að loknu námi. Hann bendir þó á að slíkt sé misjafnt eftir einstaklingum - sumir fái jafnvel vilyrði fyrir starfi á námsárunum á meðan aðrir þurfi að leita lengi að námi loknu. árum. Enn er samt langt í land í góssentíðina sem var fyrir tuttugu árum 31
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.