Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1996, Page 32

Frjáls verslun - 01.04.1996, Page 32
„Viðskiptafræðingar, sem hafa lokið námi, eiga mun meiri möguleika nú en fyrir nokkrum árum þegar fyrirtæki fækkuðu starfsfólki og drógu úr umsvifum sínum vegna efnahagslægðar. Nú er komið á jafnvægi í efnahagslífinu og fyrirtæki eru óðum að fylla upp í þær stöður sem losnuðu fyrir nokkrum árum. Hvað hagfræðinga varðar held ég að þeir eigi líka prýðilega möguleika að námi loknu. Stjómendur fyrirtækja hafa oft jafnan áhuga á hagfræðing- um sem og viðskiptafræðingum. Það er því ljóst að at- vinnuhorfur þeirra hafa batnað á sama tíma og atvinnuleysi í þjóðfélaginu er almennt svipað og það var fyrir nokknim árum.“ En hvað með viðskipta- og hagfræðinga sem hafa starf- að á vinnumarkaðnum í nokkra áratugi og eru á miðjum aldri? „Ég hef lítið orðið var við að slíkt fólk sé að leita sér að vinnu en annars eru þeirra horfur góðar,“ segir Þórir. Ásbjörn Gíslason: GEKK VEL í MÍNU TILVIKI Ásbjörn Gíslason útskrifaðist síðastliðið vor úr viðskipta- fræðideild Háskóla íslands og hóf strax störf hjá smáu fiskútflutningsfyrirtæki. „Ég var á framleiðslusviði í við- skiptadeildinni en lokaritgerðin mín var um veiðar, vinnslu og markaðssetningu á flatfisktegundum og fékk ég því strax starf á mínu áhugasviði. Ég hafði engu að síður hug á að komast að hjá stærra fyrirtæki og í vetur lagði ég inn umsókn hjá ráðningarskrifstofu um starf. Biðtíminn eftir nýju starfi var ekki langur því sama dag var mér boðið starf hjá útflutningsdeild Samskipa. Ég veit ekki hvort mín saga sé lýsandi fyrir alla þá viðskiptafræðinga sem hafa nýlokið námi en þykist vita að félagar mínir í námi hafi ekki átt í erfiðleikum með að komast í vinnu. Flestir þurftu að bíða í nokkrar vikur ef þeir voru ekki komnir með vilyrði fyrir starfi áður en námi lauk. Annars huga margir viðskiptafræðinemar ekki mikið að því hvað taki við að loknu námi - láta það hreinlega ráðast hvar þeir lenda. Sumir eru þó séðir og skrifa lokaritgerðir sínar fyrir fyrirtæki sem veita þeim að því loknu vinnu.“ Nú hefur Alþjóðafélag viðskiptafræðinema, AIESEC, í tengslum við nokkur nemendafélög, reynt að efla tengsl Háskólans og atvinnulífsins. Meðal annars hefur verið staðið fyrir svokölluðum Framadögum í Háskólanum þar sem fulltrúar fyrirtækja og stofnana kynna starfsemi sína. Nemendur geta þar rætt augliti til auglitis við fulltrúana um möguleika á starfi eða hvort fyrirtækið eða stofnunin séu tilbúin til að láta vinna fyrir sig lokaverkefni." Ásbjörn segist ekki vera farin að huga að framhalds- námi, enda vOji hann öðlast meiri reynslu í starfi áður en hann fari að velta slíku fyrir sér. „Það kann þó svo að fara að ég leggi land undir fót og fari í framhaldsnám,“ segir Ásbjörn. Ingjaldur Hannibalsson: BffiTT GÆÐI NflMSINS ÞRÁn FYRIR NIÐURSKURÐ „Fyrir fjórum til fimm árum varð ég þess áskynja að viðskiptafræðingar ættu í nokkrum erfiðleOcum með að fá vinnu. Fólk var allt að því hálft ár að finna sér starf sem hæfði menntun þess. Síðan hefur ástandið á vinnumark- aðnum lagast og nú þykist ég vita að fólki vegni vel eftir að námi lýkur. Við horfum fram á hægan hagvöxt á næstu misserum og það hefur aukið bjartsýni stjómenda fyrir- tækja. Atvinnuhorfur em samt sem áður ekki nándar nærri eins góðar og þær voru hér fyrir tíu til tuttugu árum. Þá fóru menn oft beint úr skóla í toppstjómunarstöður,“ segir Ingjaldur Hannibalsson, deildarformaður í viðskipta- deild Háskóla íslands. Nú hefur niðurskurður fjárframlaga til Háskólans verið mikiU síðustu ár. Kann það að hafa á einhvem hátt rýrt gæði námsins og rýrt tOtrú stjómenda fyrirtækja á þeim námsmönnum er ljúka námi við Háskólann? „Nei, ég þori að fuUyrða að svo sé ekki. Það fólk, sem hefur verið að hefja störf á síðustu ámm, er ekki síðri viðskiptafræðingar en þeir sem eldri era. Við höfum reynt að bæta gæði námsins með ýmsum hætti. Til dæmis höfum við boðið nemendum upp á fjölbreytt námskeið í viðskiptafrönsku, -ítölsku, -ensku og -þýsku. Þá hafa at- vinnurekendur bent okkur á ýmislegt, sem mætti betur fara í náminu, og höfum við m.a. boðið upp á námskeið í tjáningu og samskiptum, svo dæmi séu tekin.“ Guðmundur Magnússon: GENGUR MISJAFNLEGA AÐ FÁ STARF VIÐ HÆFI „Því er ekki að neita að hagfræðingar, sem hafa lokið BS prófi frá Háskólanum, eiga sumir í erfiðleikum með að fá starf við hæfi. Þegar þeir fá starf að lokum er það yfirleitt hjá ríkisstofnunum. Þrátt fyrir að nú sé bjartara yfir at- vinnulífinu en oft áður halda fyrirtæki enn að sér höndum og hafa ekki aukið fjölda starfsmanna. Það virðist jafnvel tilhneiging meðal fyrirtækja að leysa ýmiss konar verkefni með verktakastarfsemi. Hagfræðingar, sem hafa hins vegar lokið framhaldsnámi, eru eftirsóttir af einkafyrir- tækjum og ég leyfi mér jafnvel að fuUyrða að eftirspurn sé mikil eftir slíku fólki,“ segir Guðmundur Magnússon, for- maður hagfræðideildar Háskóla íslands. 32
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.