Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1996, Page 96

Frjáls verslun - 01.04.1996, Page 96
Ánahlíð, íbúð aldraðra í Borgarnesi. IIERK LOFTORKU ERO RE LOFTORKA „Við segjum að hægt sé að nota forsteyptar einingar í allar byggingar, allt frá einnar hæðar húsum í margra hæða blokkir,” segja þeir Konráð Andrésson forstjóri og Guðmundur Eiriksson ffamkvæmdastjóri byggingasviðs Loftorku í Borgarnesi. Og þeir bæta við að mun ódýrara sé að flytja forsteyptar einingar milli landshluta heldur en steypuna sjálfa. Hús úr forsteyptum einingum frá Loftorku hafa risið allt austan frá Hellu, vestur í Súðavík og norður í Skagafjörð. Steyptar einingar á borð við undirstöður und- ir háspennulínu hafa þó verið notaðar mun lengra frá upp- runastaðnum í Borgarnesi - eða aust- ur um alla sanda undir Suðurlands- línu RARIK. Loftorka í Borgarnesi tók til starfa árið 1962 og þá sem vélaleiga. Síðar bættist við rörasteypa og fyrirtækið varð fyrst íyrirtækja til að setja upp færanlega steypustöð. Nú starfa að jafnaði yfir fiörutíu manns hjá Loftorku. „Okkur hefur verið kennt að hafa ekki öll eggin í sömu körfunni svo við framleiðum líka steinrör, hné, hringi, hellur og milliveggjahellur, hleðslusteina, lásstein, kantsteina, keil- ur, baðeiningar, stigaþrep og svalaeiningar. En stefnan hefur verið að einbeita okkur að steyptu einingunum sem reynt hefur verið að markaðssetja á ýmsan hátt.” Nokkrar árstíðasveiflur hafa verið hjá Loftorku en minni en hjá mörgum öðrum því framleitt er inni við bestu skil- yrði á meðan aðrir, sem eingöngu vinna úti, eiga erfitt um vik þegar veður eru válynd. Þó eru einungis rörin fram- leidd á lager því ekki gengur að framleiða forsteyptar ein- ingar þannig, hvorki hér né á stærri mörkuðum erlendis. Til þess eru sérþarfirnar of miklar, enda ævinlega unnið út frá teikningum arkitekta og framleiðslan löguð að þeim. Meginhluti tekna Loftorku kemur frá þessari einingafram- leiðslu. Stjómsýsluhúsið í Borgarnesi er verk Loftorku. ÓDÝRT, ÞÆGILEGT, HAGKVÆMT Konráð og Guðmundur segja ódýrt, þægilegt og hag- kvæmt að byggja hús úr forsteyptum einingum. „Það er þó fýrst og fremst tímasparnaður. Mörg okkar verk hafa byggst á því að tímaþátturinn hefur verið mjög afgerandi. Sem dæmi má nefna að við byrjuðum að steypa upp hótel- ið í Borgarnesi í apríl og fyrstu gestirnir fluttu inn tveimur mánuðum síðar. Þegar reisa þarf skóla eða leikskóla skipt- ir tíminn oft miklu máli og þar höfum við víða komið við. Okkar sterkasta vopn er tíminn!” Rétt er að benda á að í einingahúsum eru menn lausir við ýmiss konar frágang sem fylgir hefðbundnum bygg- ingaraðferðum og annað er ekki siður þýðingarmikið: Hægt er að byrjað að steypa einingarnar á meðan grunn- vinna stendur yfir á byggingarstað. „Og þegar verið er að koma forsteyptu sökklunum fýrir og leggja lagnir erum við annars staðar að steypa veggeiningarnar. Mörg verk 96
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.