Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1996, Page 19

Frjáls verslun - 01.10.1996, Page 19
33 ára. Frosti Sigurjónsson, forstjóri Nýherja. Það er 78. stærsta fyrirtæki landsins. 33 ára. Þorsteinn M. Jónsson, framkvæmdastjóri Vífil- fells, Coca-Cola. Það er 61. stærsta fyrirtæki landsins. undanfömum mánuðum hafa sex stórfyrirtæki ráð- ið fólk í kringum þrítugt í starf forstjóra. Þetta eru ísal, ÚA á Akureyri, Vffilfell, Nýherji, DV og Kaupþing. Flestir þeirra, sem standa upp úr stólunum, teljast ekki aldraðir - þeir eru á sextugsaldrinum. Hvað er að gerast? Eru ungir forstjórar að komast í tísku og eru stjórnendur að setjast í helgan stein fyrr en áður? Hinir sex ungu forstjórar, sem valdir hafa verið til að leiða fyrrnefnd fyrirtæki inn í 21. öldina, eru: Rannveig Rist, 35 ára, hjá ísal, Guðbrandur Sig- urðsson, 35 ára, hjá ÚA, Þorsteinn M. Jónsson, 33 ára, hjá Vífilfelli, Coca-Cola, (titlaður framkvæmdastjóri), Frosti Sig- urjónsson, 33 ára, hjá Nýherja, Eyjólfur Sveinsson, 32 ára, hjá Frjálsri fjölmiðlun, DV, (titlaður framkvæmda- stjóri), og Bjami Ármannsson, 28 ára, hjá Kaupþingi. Öll eru fyrirtækin í mismunandi atvinnugreinum. ísal framleiðir ál og er stærsta iðnfyrirtæki landsins. ÚA veiðir og vinnur fisk og er stærsta fiskvinnslufyrirtæki landsins. Vífilfell framleiðir og selur Coca-Cola og er stærsti fram- leiðandi gosdrykkja hérlendis. Frjáls fjölmiðlun, DV, er í fjölmiðlun og prentun. DV er annað stærsta dagblað lands- ins. Nýherji selur tölvur, tækni og tækniþjónustu og er stærsta tölvufyrirtæki landsins. Kaupþing er stærsta verðbréfafyrirtæki landsins. Tvö þessara fyrirtækja eru mjög lokuð einkafyrirtæki, Vífilfell og DV. Eitt er alþjóðlegt, ísal. Það er í eigu Alusuisse. Tvö eru svonefnd almenningshlutafélög, ÚA FORSÍÐUGREIN 28 ára. Bjarni Ármannsson, verðandi forstjóri Kaup- þings. Það er 325. stærsta fyrirtæki landsins en stærsta verðbréfafyrirtækið. 19

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.