Frjáls verslun - 01.10.1996, Blaðsíða 27
samninga í neðri deildunum. Við hjá
Fram vorum með samninga við alla
okkar leikmenn í 2. deildinni í meist-
araflokknum þar sem við lékum í
sumar og að sjálfsögðu verður sami
hátturinn hafður á þegar við leikum í
1. deildinni. Ég held að flest félögin
séu komin með bónuskerfi og sá hátt-
ur er hafður á hjá okkur,“ segir
Ólafur.
SLÍTA BARNSSKÓNUM
„Við reynum að tengja okkar
árangur í því sem við deilum út til
okkar manna. Menn eru í barnsskón-
um hér á landi að láta bónuskerfið
virka eins og gert er erlendis. Víða í
útlöndum byggist bónuskerfið á sigr-
um, stöðu í deildinni og áhorfenda-
flölda á heimaleikjum. Það er því mun
flóknara dæmi erlendis því íslending-
ar eru svo skammt á veg komnir. Hér
er til dæmis lítið hægt að treysta á
áhorfendafjölda.
Við Framarar höfum að vísu haft
nokkuð tryggan áhorfendahóp og
fengum til dæmis á annað þúsund
manns á leik okkar gegn Skallagrími í
sumar. Það eru hins vegar ekki mörg
lið hér á landi sem geta treyst á tekjur
af áhorfendum.
Bónuskerfið snýst að sjálfsögðu
mest um að komast í Evrópukeppn-
ina, það er auðvitað það sem þetta
snýst allt saman um. Það eru miklar
tekjur sem fást við að tryggja sér
Evrópusæti, svo ekki sé minnst á það
ef lið komast eitthvað áfram í þeirri
keppni.
Það er erfitt að gera sér grein fyrir
hvað tekjuhæstu leikmennimir í ís-
lenska boltanum eru að fá, það heyr-
ast ansi margar sögur. Það er ekki
ljóst hvort hægt er að taka mark á
þeim sögum sem eru í gangi. Það,
sem menn eiga rétt á, er að fá borgað
fyrir vinnutap, útlagðan kostnað og
svo þarf náttúrlega enginn að borga
fyrir búninga og skófatnað.
Það er, held ég, enginn knatt-
spymumaður hér á landi í hreinni at-
vinnumemisku, ég held að það sé ekki
nokkur sem getur lifað eingöngu á
knattspymunni og gert ekkert annað.
Við í okkar félagi höfum frekar reynt
að halda verðinu á knattspyrnumönn-
um niðri og held að við höfum verið í
neðri kantinum miðað við önnur fé-
lög. Unglingastarfið hjá okkur hefur
alltaf verið öflugt og við því verið
frekar heppnir með það. Við höfum
frekar verið tilbúnir að leggja peninga
í góðan þjálfara heldur en að fara út í
óhófleg kaup á leikmönnum," segir
Ólafur.
BOSMANDÓMUR
Ólafur Helgi minntist einnig á þau
áhrif sem hinn frægi Bosmandómur
hafði á íslenska knattspymu en niður-
staða hans jók mjög rétt leikmanna
sjálfra við kaup og sölu.
„Það urðu nokkrar áherslubreyt-
ingar í íslenskri knattspymu þegar
dómurinn í Bosmanmálinu gekk. Við
lentum í því máli miðju og vorum með
tvo menn á leiðinni erlendis í miðju
málinu, Birki Kristinsson og Pétur
Marteinsson. Bosmandómurinn bitn-
aði strax á okkur þar. Það, sem liðin
hafa tekið til bragðs eftir að sá dómur
lá fyrir, er að gera samninga við sína
leikmenn fyrr. Þannig semja þau oft
fyrr við yngri strákana sem þykja
efnilegir þannig að þeir geta ekki farið
frá liðinu fyrir ekki neitt, án þess að
liðið, sem lagt hefur fé og fyrirhöfn í
þjálfun leikmannsins, fái eitthvað fyrir
sinn snúð. Erlend lið hafa nefnilega
leikið það að bjóða þessum mönnum
að koma til sín og síðan segja þau við
leikmennina „ef við þurfum ekki að
borga félaginu þínu neitt þá færð þú
þeim mun meira. Félögin hafi því valið
þann kostinn að semja fyrr við sína
menn. Við erum til dæmis með leik-
mannasamninga við alla okkar menn í
öðrum flokki. Þannig sleppa þeir við
æfingagjöld, fá búninga og slíkt á
móti. Ef þeir spila leiki í meistar-
flokknum falla þeir strax undir sama
bónuskerfi og hinir.
Aðalmunurinn á okkar reglum og
þeim sem koma til með að verða, er
sá að KSÍ samningar eru aðeins leyfð-
ir til tveggja ára í senn. Það er alveg af
og frá miðað við þennan Bosmandóm
og það verða að vera lengri samning-
ar ef við eigum að geta búið til efnilega
unglinga og hlúð að þeim í stað þess
að kaupa sífellt menn til að leika eins
og sum félög gera í dag. Félagið legg-
ur heilmikið af mörkum og verður að
fá fjármunina að einhverju leyti til
baka ef vel gengur.
Bosmandómurinn er ágætur sem
slíkur en má ekki drepa niður litlu
félögin. Það er einmitt það sem manni
sýnist að geti gerst. Stærri félögin
eflast og styrkjast og dæmin erlendis
G J; A F A K O RI' A S 1 M F O M 1 Q10 N L E
Einföld og skemmtileg
gjöf með mörgum
möguleikum.
j SINFÓNfUHLJÓMSVEIT ISLANDS
Háskólabíói vib Hagatorg Sími 562 2255 fax 562 4475
27
ARGUS &ÓRKIN/SÍA SI088