Frjáls verslun - 01.10.1996, Blaðsíða 74
□ að vill oft gleymast
að íslendingar flytja
fleira út en fisk.
Áherslur og styrkveitingar
beinast nánast allar að fisk-
útflutningi en möguleikarnir
liggja miklu víðar, ekki síst í
íslensku hugviti og þekk-
ingu - segir Ágúst Guð-
mundsson, framkvæmda-
stjóri Tölvumiðlunar.
Ágúst er 36 ára gamall
Reykvíkingur. Hann lauk
stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Sund árið 1980
og tölvunarfræði frá Há-
skóla íslands fjórum árum
síðar. Á menntaskólaárun-
um starfaði hann hjá ríkinu á
sumrin við að mæla fyrir raf-
knum. Árið 1981 stofnaði
hann hins vegar tölvufyrir-
tækið Mfkró ásamt Eggerti
Claessen sem þá var við
nám í viðskiptafræði. Míkró
er dreifiaðili fyrir OKI
prentara og faxtæki og náði
strax ákveðinni sérstöðu
með því að vera með ís-
lenskt stafróf í þessum út-
búnaði. Þetta lagði grunninn
að velgengni fyrirtækisins
sem er orðið eitt af elstu
tölvufyrirtækjum landsins.
Haustið 1984 fluttu þeir
Ágúst og Eggert fyrirtækið
inn í Skeifu en lentu í miðju
verkfalli BSRB og fengu því
ekki síma í fyrirtækið fyrsta
Wm
ígr '
Ágúst Guðmundsson, 36 ára, framkvæmdastjóri Tölvu-
miðlunar. Hann stofnaði fyrirtækið ásamt Hafliða Magn-
ússyni árið 1985. Ágúst er tölvunarfræðingur frá Há-
skóla fslands.
FV-mynd: Kristín Bogadóttir
sem við gerum best, þ.e. að
framleiða, en þeir það sem
þeir gera best, að selja vör-
una.“ Af annarri framleiðslu
Tölvumiðlunar má nefna
stærsta launakerfi á al-
mennum markaði sem not-
að er af um 300 fyrirtækjum
og stofnunum. Fyrirtækið
hefur einnig unnið að forrit-
unum á kerfum Fasteigna-
mats ríkisins. Starfsmenn
Tölvumiðlunar eru nú 15 en
einnig má nefna að Míkró er
rekið í sama húsnæði og þar
vinna 3 starfsmenn.
Ágúst ber víða niður í
áhugamálum sínum. Hann
hefur frá unga aldri verið
mjög upptekinn af tækni-
málum. Þegar hann var 16
ára voru litasjónvörp að
koma á markaðinn hér. Þau
þóttu mjög dýr svo Ágúst
gerði sér lítið fyrir og smíð-
aði eitt slíkt. Þess má geta
að það er enn í notkun.
Fyrirtækjareksturinn og
ýmsar tilraunir tengdar hon-
um má líka telja með áhuga-
málum Ágústs. Hann og
samstarfsmenn hans hafa
t.d. verið að vinna að verk-
efnum í Víetnam og svo
bjuggu þeir til rússneskt
stafróf í prentara og seldu til
Rússlands. En tölvur og
tækni eru aldeilis ekki það
eina sem Ágúst hefur áhuga
ÁGÚST GUÐMUNDSSON, TÖLVUMIÐLUN
mánuðinn. Ágúst hlær
þegar hann minnist þessa og
segir þetta hafa verið dák'tið
undarlega stöðu.
Árið 1985 stofnaði Ágúst
Tölvumiðlun ásamt Hafliða
Magnússyni. Fyrirtækið
hefur frá upphafi unnið hug-
búnað fyrir sveitarfélög og
heilbrigðisstofnanir og er
sterkt á því sviði. Árið 1992
var keyptur stór hluti í
„Tölvuþekkingu“ sem var
fyrirtæki að mestu í eigu
Ríkisspítala og Háskólans.
Það vann að útflutningsmál-
um á heilbrigðissviðinu og
Tölvumiðlun hefur í gegnum
það haslað sér völl á Norð-
urlöndum. Kerfi frá Tölvu-
miðlun eru í notkun á rönt-
genstofum fjölmargra
sjúkrahúsa þar. Reyndar er
Tölvumiðlun með samning
við Kodak sem felst í því að
Kodak markaðssetur fram-
leiðslu Tölvumiðlunar undir
sínu nafni. „Svona samning-
ur er gulls ígildi,“ segir
Ágúst, „því við gerum það
á því hann hefur stundað
svifdrekaflug í 10 ár og verið
formaður Svifdrekafélags
Reykjavíkur nokkur undan-
farin ár.
Eiginkona Ágústs er
Auður Stefánsdóttir hjúkr-
unarfræðingur og eiga þau
fjögur böm, Eið, Amar,
Öldu og Atla.
TEXTI: BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR MYNDIR: KRISTÍN BOGADÓTTIR
74