Frjáls verslun - 01.10.1996, Blaðsíða 52
„Valdið felst ekki í jakkafötunum einum saman, eins og svo
mörg „karlafyrirtæki" halda fram,“ segir Sylvia sem er
framkvæmdastjóri bandaríska hljómplötuútgáfufyrirtæk-
isins Elektra. „Valdið felst frekar í þeirri reynslu sem hver
og einn býr yfir og í þeirri virðingu sem sá hinn sami hefur
áunnið sér.“ Hún er fyrsta þeldökka konan í Bandaríkjun-
um sem gegnir svo þýðingarmiklu starfi í svo stóru fyrir-
tæki og það var undir handleiðslu hennar að fyrirtækin
Elektra, EastWest, Sire, og Asylum sameinuðust. Hún
klæðist jafiian fatnaði sem spannar allt frá því að vera
hversdagslegur og til þess að vera samkvæmisklæðnað-
ur. „Ég er ekki bundin því að vera í hefðbundnum „bisn-
ess“klæðnaði en ég þarf að hafa áhrif meðal þeirra lista-
manna, sem ég vinn með, og fötin eru verkfæri mín í öllu
viðskiptaferlinu," segir hún. Dragt, Jil Sander; bolur,
Mnrnane Le Fay; hálsmen, Varia Baker.
Forstjóri Telemedia Publishing, sem er stærsta tímarita-
útgáfufyrirtækið í Kanada (en 14 titlar fyrirtækisins fylla
yfir 75% af öllum blaðsölustöðum landsins), kýs að klæð-
ast tvíhnepptum jakkafötum og litríkum (skræpóttum)
axlaböndum, bindum og vestum. „Það er ef til vill hægt að
sigra keppnir í gallabuxum," segir hann, „en keppi-
nautamir, sem klæðast jakkafötum, hafa yfirleitt gott for-
skot.“ Buxur, Zegna; skyrta, Russel’s; bindi, Barry
Kieselstein-Cord; vesti, Lanvin.
MÁnUR STÍLSINS
Qatastíll er ekki forsenda þess
að menn geti farið með völd og
hafa margir frammámenn ríkt
hver á sínum vettvangi án þess að
taka tillit til hans. Því er þó svo farið
að þeir, sem geta þetta tvennt, virð-
ÞÝTT OG ENDURSAGT: ÞÓRUNN HAFSTEIN
52
ast hafa betur á framabrautinni; á
stjómarfundum, meðal viðskiptavina
og keppnisaðlia.
Bandaríska viðskiptatímaritið
FORTUNE fór á stúfana á dögunum
til að kanna hverju þetta sætti og fékk
nokkra einstaklinga úr hinum mis-
munandi geirum viðskiptah'fsins til að
tjá sig um það hvernig fatnaði þeir
kysu að klæðast og hvers vegna. Á
myndunum em allir viðmælendur í
fötum í einkaeign.