Frjáls verslun - 01.10.1996, Blaðsíða 62
Árni Oddur Þórðarson, yfirmaður Markaðsviðskipta, Friðrik St. Halldórsson, yfirmaður Fjárstýringar, Þorsteinn Þorsteinsson,
frainkvæmdastjóri Bónaðarbankans Verðbréfa og Guðmundur Guðmundsson, yfirmaður Upplýsinga- og áhættueftirlits.
Búnaðarbankinn
Nýtt afl á verðbréfamark
Iúnaðarbankinn Verðbréf er nýtt svið innan Búnaðar-
bankans - verðbréfa- og fjárstýringarsvið - þar sem
verðbréfaþjónustan verður rekin sem hluti af annarri þjón-
ustu við viðskiptamenn. Framkvæmdastjóri er Þorsteinn
Þorsteinsson, sem starfaði hjá Norræna fjárfestingarbank-
anum í Helsinki sl. tíu ár, síðast sem yfirmaður fjármála-
sviðs.
Rekstrareiningar hins nýja sviðs eru
Fjárstýring, Markaðsviðskipti, Eigna-
varsla, þar sem verðbréfasjóðirnir eru lýr-
irferðarmestir. Friðrik St. Halldórsson,
sem hefur veitt verðbréfaviðskiptum
bankans forstöðu undanfarin ár, mun
stjórna Fjárstýringu, Arni Oddur Þórðar-
son verður yfirmaður Markaðsviðskipta, Guðbjörn Mar-
onsson er yfirmaður Eignavörslu og Guðmundur Guð-
mundsson Upplýsinga- og áhættueftirlits.
Búnaðarbankinn er fýrstur íslenskra banka til að byggja
upp eigin verðbréfaþjónustu án þess að stofna um hana
sérstakt verðbréfafyrirtæki. Markmiðið er að geta veitt á
einum stað alhliða fjármálaþjónustu,
hvort heldur sem er íýrirtækjum, stofn-
unum eða einstaklingum.
„Hugmyndin er að sameina verðbréfa-
miðlunina annarri þjónustu eins og gjald-
Búnaðarbanldnn Verðbréf eni í aðalbyggingu
Búnaðarbankans.
62