Frjáls verslun - 01.10.1996, Blaðsíða 17
Qyrirtækið ístrakt-
or í Garðabænum
hefur tekið við um-
boði fyrir Fiatbíla og hélt
upp á það fyrir skömmu.
Fiat var mest seldi bíll
hérlendis í kringum árið
1974 eða áður en japans-
kir bílar hófu innreið
sína. ístraktor er einnig
með umboð fyrir Lancia
og Alfa Romeo - og raunar
sportbílinn Ferrari líka.
ítalskir bílar hf. voru
áður með Fiatumboðið.
ístraktor hefur í ára-
raðir verið með umboð
fyrir Iveco vinnu-, fjalla-
og sendibíla; bílkrana frá
Effra; vinnuvélar frá
Schaeff; auk skíðalyfta og
snjótroðara. Fyrirtækið
var stofnað árið 1982 upp
úr véla- og viðgerðar-
verkstæði Dráttarvéla hf.
Með öðrum orðum; rætur
fyrirtækisins liggja aftur
til ársins 1952.
Fiat fagnað með veisluhöldum hjá fstraktor í Garða-
bænum. Fiat var mest seldi bíll hér á Iandi í kringum
1974 eða áður en japanskir bílar hertóku markaðinn.
Páll Gxslason, eigandi og framkvæmdastjóri fstrakt-
ors, til vinstri, ásamt Pétri Björnssyni, ræðismanni
ítala á íslandi.
FV-myndir: Kristín Bogadóttir
i’mmrnm
FLYTJfl A FORMÚLUNA ÚT
Langt og athyglisvert viðtal við hjónin Jón
Olafsson ogHelgu Hilmarsdóttur í
kvikmyndablaðinu Screen. íslenski
markaðurinn er orðinn oflitill
□ firgripsmikil átta síðna
umfjöllun er um 20 ára af-
mæli Skífunnar í nýlegu
tölublaði kvikmyndablaðsins
Screen. Fjallað er um uppgang
Skífunnar og rætt er við þau hjón
Jón Ólafsson og Helgu Hilmars-
dóttur, eigendur Skífunnar. í við-
talinu rekja þau 20 ára sögu fyrir-
tækisins og hvernig það hefur
þanist frá að vera lítil hljóm-
plötuverslun í Hafnarfirði til þess
að koma við sögu á öllum sviðum
fjölmiðlunar.
Viðtalið við þau hjón Jón og
Helgu vekur ekki hvað síst at-
hygli fyrir það hve yfirgripsmikið
það er og hversu mikið rými það
fær í þessu þekkta blaði. Svo ítar-
leg umfjöllun er ánægjuleg fyrir
fyrirtækið.
í lok viðtalsins segir að þau
hjón séu komin að krossgötum og
að íslenski markaðurinn sé of
smár til að hægt sé að útvíkka
starfsemina frekar og auka hagn-
aðinn. Fullyrt er að þau ætli að
hasla sér völl á sama sviði er-
lendis.
„Eystrasaltsríkin eru aðeins
eitt svæðanna sem þau hjón eru
að horfa á til að víkka út starf-
semi sína,“ segir í greininni. „Til
að auka tekjurnar þurfum við að
færa okkur yfir á stærri markað
og það verður líklegast næsta
skrefið,“ segir Jón í viðtalinu.
Cumntly in itt 20tb yntr o/butinett, leeUnd's Stífan bat cxpandcd jctou all teiion of cntcriainmcnt
aud/i now lookótg to expnrt i/s fomula otvrtcas. Mikc Goodridgc reportt
“[tcdandl
amicrotasmofi
potailial oflarge
markets If they
dovotop símiar h;
fbrcnjoyfciR
lcdand has tho hfcihost
roto of theatrical
fci Etrope, about flwe
vWtsayoar
Yfirgripsmikil umfjöllun er um 20 ára afmæli
Skífunnar í nýlegu tölublaði hins þekkta
kvikmyndablaðs Screen. Þar er langt viðtal
við þau hjón Jón Ólafsson og Helgu Hilmars-
dóttur, eigendur Skífunnar, þar sem þau
segjast hafa áhuga á að flytja þekkingu sína
út. „Skifan is now looking to export it’s for-
mula overseas.“
FlflT FAGNAÐ í GARÐABÆNUM
17