Frjáls verslun - 01.10.1996, Blaðsíða 44
STJÓRNMÁL
i:
ón Baldvin Hannibalsson, hinn
57 ára, fráfarandi formaður Al-
þýðuflokksins og fyrrum utan-
ríkisráðherra í sjö ár, er afar dulur á
hvað taki við hjá sér þegar hann
hverfur líklegast af Alþingi íslendinga
næsta vor. Kannski er það ekki nema
von. Nánir vinir hans í Alþýðuflokkn-
um fullyrða að hann sé ekki búinn að
ákveða sig sjálfur - viti ekki hvað hann
ætli að gera og þess vegna kvisist
ekkert út um næsta starf hans. Aðrir
flokksmenn hans eru ekki jafn vissir í
þessari trú. Flestir eru þó á því að
hann muni hasla sér völl erlendis.
ALÞJÓÐASAMBAND JAFNAÐARMANNA
En hvert fer hann? Sögusagnirnar
eru margar og ýmislegt er nefnt. Oft-
ast er rætt um að hann horfi nokkuð
til formennsku í Alþjóðasambandi
jafnaðarmanna. Það er mikil virðing-
arstaða en ekki er vitað til að hún sé á
lausu. Hjá Alþjóðasambandinu myndi
hann ferðast um á milli landa og halda
fyrirlestra um stjómmál og jafnaðar-
mennsku. A undanfömum árum hefur
borið mjög á auknum áhuga Jóns á
þessu sambandi. Þá er og fullyrt að
hugur hans standi til ritstarfa og þann-
ig hafi hann áhuga á að skrifa sögu
Alþýðuflokksins síðustu tuttugu árin.
Ljóst er að þau hjón, Jón Baldvin og
Bryndís Schram, em miklar heims-
manneskjur sem ferðast hafa vítt og
breitt um heiminn. En þau eru líka
sögð heimakær. Sumir hafa haft á
orði að ólíklegt sé að Bryndís vilji vera
amma sem búi erlendis til langframa.
Vesturgatan heillar því jafnt sem eitt-
hvert veraldarflakk.
NAM í HARVARD HÁSKÓLA
Jón Baldvin er stjómmálaforingi
sem margoft hefur sagt í fjölmiðlum
að hann væri svonefndur ástríðupóli-
tíkus. Með öðmm orðum; að hann
væri fyrst og fremst í stjórnmálum
vegna einskærs áhuga fremur en að
nýta sér þau sér til framdráttar síðar
meir. Jón er hagfræðingur að mennt.
Hann er með masterspróf í hagfræði
frá Edinborgarháskóla. Síðan var
hann í framhaldsnámi í vinnumarkaðs-
hagfræði við Stokkhólmsháskóla.
Loks er hann einn fárra íslendinga
sem hafa stundað framhaldsnám við
hinn kunna Harvard háskóla í Banda-
ríkjunum.
Ef miðað væri eingöngu við þau
störf, sem margir aðrir frammámenn
í stjórnmálum hafa horfið til eftir eril-
saman stjórnmáladag, væri líklegt að
Jón yrði sendiherra, bankastjóri eða
forstöðumaður ríkisstofnunar. Það
virðist hins vegar hæpið þegar Jón
Baldvin er annars vegar. En aldrei
skal segja aldrei. Það getur allt gerst.
Við erum nú einu sinni að fjalla um Jón
Baldvin!
Ef horft er til Alþýðuflokksins hafa
flestir forverar Jóns Baldvins í for-
mannsstarfi þar orðið sendiherrar,
eins og Kjartan Jóhannsson, sem síð-
ar fór til EFTA, Benedikt Gröndal og
Stefán Jóhann Stefánsson. Gylfi fór í
Háskólann og Emil settist í helgan
stein.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR SEM ORÐIÐ
HAFA SENDIHERRAR
Af utanríkisráðherrum síðustu
þrjátíu ára, eða frá árinu 1956, hafa
aðeins þrír orðið sendiherrar. Þeir
Benedikt Gröndal, Alþýðuflokki, Ein-
ar Agústsson, Framsóknarflokki, og
Guðmundur í. Guðmundsson, Al-
þýðuflokki. Það verður að segjast
eins og er að það hlýtur að vera erfitt
að fara beint úr embætti utanríkis-
ráðherra, yfirmanns sendiráða og ut-
anríkisþjónustunnar, yfir í sendi-
herrastöðu - fara úr yfirmannsstöðu í
TIL HVAÐfl STARFA
egar því er velt fyrir sér
hvað taki við hjá Jóni Baldvin
er ekki úr vegi að rifja upp til
hvaða starfa frammámenn í stjóm-
málum hafa farið þegar þeir hafa
kvatt stjómmálin.
ALÞÝÐUFLOKKSMENN
Lítum fyrst á nokkra af formönn-
um Alþýðuflokksins. Þeir Kjartan
Jóhannsson og Benedikt Gröndal
urðu sendiherrar, Gylfi Þ. Gíslason
sneri sér að kennslu í Háskólanum
sem prófessor, Emiljónssonsettist
í helgan stein og Stefán Jóhann Stef-
ánsson varð sendiherra. Af öðrum
frammámönnum í Alþýðuflokknum á
undanfömum árum má nefna að Jón
Sigurðsson varð seðlabankastjóri,
Karl Steinar Guðnason varð forstjóri
Tryggingastofnunar, Eggert G. Þor-
steinsson varð forstjóri Trygginga-
stofnunar og Eiður Guðnason varð
ráðherra.
FRAMSÓKNARMENN
Lítum þá til frammámanna í Fram-
sóknarflokknum. Skoðum fyrst frá-
farandi þrjá formenn. Steingrímur
Hermannsson varð bankastjóri í
Seðlabankanum, Ólafur Jóhannesson
varð almennur þingmaður og Ey-
steinn Jónsson settist í helgan stein.
Af öðrum er það að segja að Tómas
Amason varð seðlabankastjóri og
Halldór E. Sigurðsson hvarf til starfa í
Búnaðarbankanum, þó ekki sem
bankastjóri. Einar Agútsson varð
sendiherra og Vilhjálmur Hjálmar-
sson hvarf til fyrra starfs sem bóndi
og einnig hefur hann sinnt ritstörfum.
Jón Helgason hvarf sömuleiðis til fyrra
starfs sem bóndi. Alexander Stefáns-
son settist í helgan stein og Ingvar
Gíslason varð ritstjóri Tímans.
SJÁLFSTÆÐISMENN
Þá er það Sjálfstæðisflokkurinn.
44