Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1996, Side 28

Frjáls verslun - 01.10.1996, Side 28
FJÁRMÁL frá sanna einmitt þá þróun. Hægt er að tilgreina dæmi um þá óheillaþróun bæði á Ítalíu og í Englandi. í Englandi eru lið eins og Manchester United, Liverpool og Arsenal orðin stórveldi og á Ítalíu er það AC-Milan, Juventus og nokkur önnur lið. Þau sanka að sér 20-30 mönnum og litlu félögin sitja uppi með að fá ekkert fyrir þá. Leik- mennimir bíða sjálfir eftir því að losna og komast á samninga hjá þeim stóru. Þetta verður líklega þróunin hér- lendis og eftir því sem árin k'ða mun félögunum fækka, því miður. Hér hafa KR og Skaginn verið að bítast um stærstu nöfnin undanfarin ár. Þau hafa einnig getað fjárfest gífurlega á sínum íþróttasvæðum. Við hjá Fram ætlum að reyna að varast það að fest- ast í þessu formi. Við viljum frekar einbeita okkur að því að búa til góða leikmenn og fá í mesta lagi 2-3 leik- menn til að ganga til liðs við okkur á hverju ári,“ sagði Ólafur. GUÐMUNDUR BEN. HJÁKR Guðmundur Benediktsson leikmaður í KR segir þetta um Bosmanmálið: „Segja má að með tilkomu svokall- aðs Bosmansdóms um sölu á leik- mönnum, hafi nokkur breyting orðið á íslandi. Fyrir daga hans gátu félögin sjálf krafist meirihluta peninganna við sölu á leikmönnunum. Eftir að dómur gekk í Bosmanmálinu geta leikmenn sjálfir fengið stærri hluta peninganna við sölu leikmanna á milli liða. Bos- man hefur einnig gert það að verkum að nú er auðveldara fyrir leikmenn að komast út. Ég held einnig að menn geri styttri samninga í einu,“ segir Guðmundur. STEINÞÓR HARALDSSON HJÁ RÍKISSKATTSTJÓRA Skattamál íslenskrar íþróttahreyfing- ar, og þá helst knattspymunnar, hafa undanfarin ár verið töluvert í umræð- unni og sú skoðun áberandi að ís- lenskir knattspyrnumenn og þjálfarar hefðu óhreint mjöl í pokahorninu varðandi skattgreiðslur á tekjur. Steinþór Haraldsson, yfirlögfræðing- ur ríkisskattstjóra segir að þessi mál hafi verið í ólestri en standi mun betur í dag. „Við erum búnir að greina vand- ann, skipast á skoðunum við íþrótta- félögin og þannig hreinsað andrúms- loftið. Aðalvandinn var sá að koma öllum bókhaldslyklum í lag. Segja má að skattamál knattspymunnar í dag séu nú að mestu tæknilegs eðlis,“ segir Steinþór. „Það er erfitt að fullyrða um það að aðilar í knattspymunni gefi tekjur sín- ar fullkomlega upp til skatts. Félög, sem vönd em að virðingu sinni, eru með þessi mál í lagi hjá sér. Hins vegar er það ekki algilt og við höfum gert rassíur af og til. Það hefur gengið svo langt að skattrannsóknarstjóri Eggert Magnússon, formaður KSÍ. hefur gert kannanir meðal aðila um skil þeirra og þurft hefur að tukta menn til. Okkur hefur ef til vill ekki gengið of vel að greina tekjur manna niður í smáatriði en höfum reynt að bæta úr því, meðal annars með fund- um okkar við KSÍ. Það er eilíft deilumál um hvað eigi að vera skattskylt í íþróttarekstri og hvað eigi að vera undanþegið skatt- greiðslum. Umræða hefur verið í gangi um að skattafrádráttur fáist fyrir alla þjálfun í yngri flokkunum. Bent hefur verið á það hve gagnlegt starf það sé fyrir ungu kynslóðina, forvamarstarf sem ekki megi íþyngja um of. Grunnur íslensku skatta- löggjafarinnar er byggður á danskri fyrirmynd og við höfum notast við dönsku regluna í sambandi við íþrótt- imar. Hún miðast við að skattafrá- dráttur fæst fýrir skóm, fatnaði og öðrum útbúnaði eða fyrir dagpeninga. Mín skoðun er hins vegar sú að skattleggja eigi alla þessa starfsemi en styrkja hins vegar íþróttahreyfing- una alveg í botn því í henni fer fram afskaplega gott forvamarstarf. Við viljum samt ekki að hin dauða hönd kerfisins leggist á knattspymuna sem gæti dregið úr þeim jákvæðu hliðum sem íþróttimar hafa á unga fólkið,“ segir Steinþór. EGGERT MAGNÚSSON, FORMAÐUR KSÍ Eggert Magnússon, forseti KSÍ, tel- ur að íslensk knattspyrna standi á traustum gmnni. Allir íslenskir knatt- spymumenn í 1. deild em á samningi og hann hafi það á tilfinningunni að greiðslur, þar með taldar bónus- greiðslur, séu byggðar á raunhæfum tölum. Skattamál hreyfingarinnar hafi verið nokkuð í umræðunni fyrir nokkrum árum en nú sé mun minna um þau rætt, enda séu félögin allflest ef ekki öll búin að gera hreint fyrir sínum dyrum í þeim efnum. LÚKAS KOSTIC, WÁLFARI KR Lúkas Kostic, þjálfari KR í knatt- spyrnu, hefur töluverða þekkingu á íslenskri knattspyrnu og hann hefur einnig samanburð erlendis frá. „Við höfum þann háttinn á hjá KR að leik- menn þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af fatnaði fyrir æfingar og leiki, það er allt kostað af félaginu og við sjáum einnig um að þvott á fatn- aði,“ segir Lúkas. „Ég held að atvinnumennska kom- ist seint á hérna á íslandi, til þess er allt of smátt í sniðum. En við kom- umst nær hálfatvinnumennskunni ef við stöndum okkur vel í Evrópu- keppninni. Við erum ekkert svo langt frá því, til dæmis munaði ekki miklu að KR kæmist áfram í þriðju umferð í Evrópukeppni bikarhafa því sænska 28

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.