Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1996, Page 53

Frjáls verslun - 01.10.1996, Page 53
HflRM LAGAAY, 49 ÁRA „Ef mér væri alveg sama um það hvemig ég væri til fara myndu viðskiptavinir mínir og samstarfsmenn halda að ég legði ekki alúð við hönnun mma,“ segir Lagaay, aðal- hönnuður eðalvagnanna Porsche 911, 968 og Boxer síðan 1989. „Leyndarmálið er að vera eins hugmyndaríkur og smekklegur og mögulegt er án þess að stuða nokkurn." Jakkaföt, skyrta og bindi, Baldessarini-Hugo Boss; gæru- skinnsjakki, Latini. HELAYNE SPIVAK, 44 ARA Helayne, sem nýverið tók við starfi framkvæmdastjóra Ammirati Puris Lintas, sem er alþjóðleg auglýsingastofa, lítur á klæðnað sinn sem leiðandi afl í viðskiptum hennar og starfi. „Föt eru auglýsing í beinni merldngu þess orðs og ég klæði mig í samræmi við viðskiptavini mína hveiju sinni,“ segir hún. „Ég viJ helst ekki virka of fullkomin, of stíf eða of „viðeigandi" í klæðaburði vegna þess að ég tel að það virki letjandi á viðskiptavininn. Þó svo ég klæði mig á hefðbundinn hátt í vinnunni vil ég helst bæta við fatnað minn svolitlu af leðri íeinkalífinu," segir hún. Leðurblússa, Oscar de la Renta; buxur, Calvin Klein; klútur, Moss. LESLIE MOONVES, 46 ARA <1 í kvikmyndaborginni Hollywood, þar sem hversdags- klæðnaður er oftast í hávegum hafður, kýs Leslie, for- stjóri sjónvarpsstöðvarinnar CBS Entertainment, að klæðast jakkafötum. „Það er ekki hægt að taka þann alvarlega sem er druslulegur til fara, hvað þá að taka mark á ákvörðunum hans,“ segir hann. Hann er sagður hafa rétt hlut CBS við svo um muni en segist vonast til þess að geta aukið velgengni sína þar miðað við stókostlegan árangur sinn hjá Wamer Bros. Television þar sem hann hleypti af stokkunum sjónvarpsþættinum ER and Friends. „Þegar maður stjómar sjónvarpsstöð er sjálfsagt að vera best klæddur af öllum hjá fyrirtækinu; á fundum og öðmm stundum viðskiptalegs eðlis; það endurspeglar smekkvísi stjómandans og fágun.“ Jakkaföt, Giorgio Armani; rúllu- kragapeysa, Bameys New York. 53

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.