Frjáls verslun - 01.01.1998, Blaðsíða 27
STJÓRNMÁL
□ að, sem
vekur at-
hygli við
prófkjör R- list-
ans er, að Al-
þýðuflokks-
mönnum er hent
út. Atta efstu sætin eru skipuð öðru fólki en krötum. Sé litið
nánar á listann sjást handbrögð Össurar Skarphéðinssonar
(fyrrum komma) og mágkonu hans, Ingibjargar Sólrúnar,
glöggt, enda gat borgarstjórinn tæpast hamið gleði sína yfir
úrslitum prófkjörsins. Össur fagnaði sömuleiðis í DV.
Helgi Hjörvar og Hrannar eru sigurvegarar þessa próf-
kjörs og draga Helga Pétursson með sér. Þeir, sem tapa, eru
Alþýðuflokksmenn, sem nú eru fulltrúalausir í Reykjavík í
fyrsta skipti frá 1916. Hrannar er gamall Alþýðubandalags-
maður, sonur Kristínar Ólafsdóttur, borgarfulltrúa fyrir
komma, og Helgi er sonur Úlfars Hjörv-
ar og Helgu, og traustur Alþýðubanda-
lagsmaður.
Það má vitanlega segja, að þarna hafi
þeir unnið saman, sem vilja sameiningu
Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. En
þá verða heilindi að fylgja. Prófkjör R-
listans sýnir hins vegar óheilindi milli fé-
laga. Hvorki Hrannar né Helgi Péturs-
son eru kratar. Hvorugur þeirra hefur
nokkurn tíma kosið Alþýðuflokkinn.
Mér vitanlega er Hrannar í grundvallar-
atriðum ósammála Alþýðuílokksmönn-
um í öryggis- og varnarmálum. Hrannar
er ekki einu sinni í Alþýðuflokknum.
Helgi Pétursson hefur verið framsókn-
armaður frá því, að hann fór að skríða.
Hann hugsar ennþá eins.
Það má vitanlega velta því fyrir sér, af
hverju þessir menn skipa sér undir
merki Alþýðuflokksins. Og eina skýr-
ingin, sem er tæk, er sú, að bæði Hrann-
ar og Helgi Pétursson vissu, að innan
sinna flokka fengju þeir ekki brautar-
gengi til þess að vera í hópi tveggja
efstu manna.
Eg hef heyrt þá skýringu, að þarna
hafi ungt fólk verið að kjósa og lýsa yfir
stuðningi við sameiningu félagshyggju-
flokkanna. Eg held að sú skýring sé
tæpast rétt. Smölun var mikil, og aug-
ljóst, að fjölmargir utan R-listans hafa
tekið þátt í kosningunum, enda var
meira að segja lagt hart að flokksbundn-
um sjálfstæðismönnum að kjósa í próf-
kjörinu. Ekki hafa verið birtar neinar
tölur um aldur
þeirra sem kusu,
og ljóst er einnig,
að Framsóknar-
flokkurinn hefur
fengið það mikið
fylgi, að hann
heldur „styrk “ sínum í Reykjavík En það er hins vegar ljóst,
að svokallað Röskvufólk náði góðum árangri.
Alþýðuflokksmenn mega muna sinn fífil fegri. Eins og
fyrr segir verður þetta í fyrsta sinn frá 1916, að enginn Al-
þýðuflokksmaður á sæti í borgarstjórn. Eitt sinn átti flokkur-
inn sex fulltrúa. Virðast Alþýðuflokksmenn seint ætla að
læra það, að bandalag þeirra og komma hefur alltaf endað
með ósköpum, og kratar farið illa úr slíku samstarfi. Skýr-
ingin á óförum krata í þessum kosningum er aðallega sú, að
fylgismenn Hrannars og Helga Péturssonar koma úr öðrum
flokkum en Alþýðuflokknum. Annarra
flokka menn sjá sér leik á borði að
koma einnig að sínum mönnum, - og
nöturlegast er það, að Pétur Jónsson,
borgarráðsmaður krata, fellur úr 3ja
sæti listans í það ellefta a.m.k. Eru það
raunaleg örlög fyrir annan af aðalarki-
tektum R- listans.
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn eru úrslit-
in í prófkjöri R-listans góð. Sá fjöldi,
sem tók þátt í prófkjörinu, ætti að
hleypa heilbrigðum ugg í sjálfstæðis-
menn. Þá er það einnig staðreynd, að
töluvert streymi hefur verið milli kjós-
enda Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks, - þannig kjósa margir kjósend-
ur Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn-
arkosningum Alþýðuflokkinn í alþing-
iskosningum. Margir þessara kjós-
enda eru Alþýðuflokksmenn. Það
hlýtur að vera erfitt fyrir Alþýðu-
flokksmenn nú að sfyðja til valda lista,
þar sem þátttöku þeirra er hafnað,
þrátt fyrir að flokkurinn hafi fengið
þriðja mesta fylgið í prófkjörinu.
Það hlýtur að vera erfið raun fyrir
menn, sem hafa staðið í fylkingar-
brjósti í Alþýðuflokknum árum og ára-
tugum saman að ganga að kjörborði
til að sfyðja þá til valda, sem þeir hafa
barizt mest gegn alla ævi sína, -
komma og framsóknarmenn. Þess
vegna hlýtur það að vera líklegt, að
margir þeirra ákveði að styðja Sjálf-
stæðisflokkinn í vor. [Jj
ENGINN KRATI
w
Haraldur Blöndal lögfræðingur mun
skrifa reglulega um stjórnmál í Frjálsa
verslun næstu mánuði.
HRANNAR OG HELGI PÉ.
Þaö má vitanlega velta því fyrir sér, af hverju þessir menn skipa sér undir merki Alþýöuflokksins. Og eina skýringin sem er tæk,
er sú, að bæði Hrannar og Helgi Pétursson vissu,
að innan sinna flokka fengju þeir ekki brautargengi til þess að vera í hópi tveggja efstu manna.
27