Frjáls verslun - 01.01.1998, Blaðsíða 43
NÆRMYND
HENTISTEFNA EÐA HEIÐARLEIKI
Andstæöingar hans segja hins vegar að hann sé laglnn við að koma verkum yfir á aðra og láti vinna fyrir sig verk sem hann síðan
eigni sér heiðurinn af. Þeir segja líka að hann sé hentistefnumaður sem standi ekki alltaf við gefin loforð.
Á móti segja fylgismenn hans að hann sé alveg sérlega orðheldinn og heiðarlegur og víki sér aldrei undan því að axla ábyrgð í póli-
tík í tilvikum þegar smærri spámenn hefðu látið undirmenn og fótgönguliða taka skellinn.
HVAÐA KOSTIR?
Friðrik hefur margt til brunns að bera
sem aílar stjórnmálamönnum vinsælda.
Hann er glaðvær, hress í viðmóti, kurteis
og á gott með að hafa samskipti við fólk.
Hann er og afar mannglöggur og eítir
langt starf í flokknum er sagt að fáir beri
kennsl á eins marga fulltrúa á landsfundi
eins og hann.
Þegar Friðrik var í forystu fyrir unga
sjálfstæðismenn á árum áður beittu þeir
sér mjög fyrir niðurskurði í ríkisrekstri
undir slagorðinu: Báknið burt. Þetta hefur
oft verið riíjað upp og notað gegn Friðrik
og með honum eftír atvikum. Fari svo að
hann taki við stjórn Landsvirkjunar má
rilja upp þá yfirlýstu stefnu hans sem ijár-
málaráðherra að einkavæða það fyrirtæki.
Þannig verður það ef tíl vill hlutskipti Frið-
riks að ýta bákninu burt að lokum.
HVAÐA GALLAR?
Friðrik þykir nokkuð röskur stjórnandi
og mörgum finnst þægilegt að vinna undir
hans stjórn. Það er fullyrt að hann hafi fært
margt í starfsháttum ráðuneytísins til betri
vegar síðan hann komst til valda þar. And-
stæðingar hans segja hins vegar að hann
sé laginn við að koma verkum yfir á aðra
og láti vinna fyrir sig verk sem hann síðan
eigni sér heiðurinn af. Þeir segja líka að
hann sé hentistefnumaður sem standi ekki
alltaf við gefin loforð.
A móti segja fylgismenn hans að hann
sé alveg sérlega orðheldinn og heiðarlegur
og víki sér aldrei undan því að axla ábyrgð
í pólitík í tílvikum þegar smærri spámenn
heföu látið undirmenn og fótgönguliða
taka skellinn.
HVAÐA SKATTUR?
Friðrik er vörpulegur í framgöngu og
orðlagður fyrir snyrtímennsku og fágaðan
klæðaburð. Hann hefur þá ímynd að hann
sé þrautseigur og lunkinn baráttumaður
Friðrik Sophusson hefur setíð lengur samfleytt í stól fiármálaráðherra en nokkur
annar. Fullyrt er að hann standi upp úr honum á þessu ári og taki við stjórn
Landsvirkjunar. FV-myndir: Geir Ólafsson.
fyrir sjálfan sig en ekki mikill striðsmaður.
Hann vék úr stól varaformanns fyrir Davíð
Oddssyni um tveggja ára skeið og margir
undruðust að hann skyldi taka við honum
aftur. Þeir Friðrik og Davíð hafa stundum
rekið saman hornin opinberlega og stund-
um hefur það litið svo út að Davíð væri að
setja ofan í við Friðrik og leiðrétta ákvarð-
anir hans. Lífseig saga er til um ætlaða
skattlagningu blaðburðarbarna. I vitund
þjóðarinnar er sagan þannig að Friðrik ætl-
aði að skattpína aum og varnariaus blað-
burðarbörn en Davíð kom í veg fyrir það á
síðustu stundu. Hið rétta í málinu mun
trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og setíð
m.a. í útvarpsráði, stjórn Hjálparstoíhunar
kirkjunnar, rannsóknarráði og bankaráði
Landsbankans, hann var formaður stjórn-
arnefndar ríkisspítala um íjögurra ára
skeið og sat í kjaradeilunefnd.
43