Frjáls verslun - 01.01.1998, Blaðsíða 31
hafa skorið niður þjónustu, sagt upp
starfsfólki, fært þá, sem áður voru
fastráðnir, á verktakasamninga og
gripið til fleiri ráðstafana til að mæta
tekjusamdrætti.
KEPPIR MÁTTUR VIÐ SJÁLFAN SIG?
Máttur opnaði á síðasta ári þriðju
stöðina og er hún uppi í Grafarvogi
og er ætíað að þjóna hverfinu. Stöðin
er lítil og mun hafa gengið sæmilega
það sem af er. Með þessu segjast for-
ráðamenn Máttar vera að koma til
móts við þá sem vilja hafa slíka þjón-
ustu í sínu hverfi og þurfa ekki að
sækja hana niður í bæ.
Um áramótin var ráðinn nýr
rekstrarstjóri til Máttar, Elias Níels-
son. I viðtali við Frjálsa verslun kvart-
ar hann, fýrir hönd Máttar, undan
ósanngjarnri samkeppni á markaðnum eins og hún birtist í sam-
vinnu Sundlaugar Kópavogs og Svíanna. Elías á sjálfur líkams-
ræktarstöðina I Toppformi í Mosfellsbæ sem hefur gert nákvæm-
lega samskonar samkomulag við bæjaryfirvöld þar um frítt sund-
kort með korti í líkamsrækt.
HVERJIR LYFTA HVAR?
Jónína Benediktsdóttir hefúr gert fámennan markhóp að sín-
um. I Planet Pulse voru fyrst aðeins seld árskort og því lýst yfir
að fleiri en 400 kort yrðu aldrei í gangi. Kortin voru umtalsvert
dýrari en annars staðar og með þessu fær stöðin á sig sérstakt yf-
irbragð. Jónína hefur reynt mikið að höfða til forstjóra, stjórnenda
og þekkts efnafólks og hefur að einhverju leyti haft erindi sem erf-
iði.
Tvær líkamsræktarstöðvar eru aðeins fyrir konur. Það er ann-
ars vegar Baðhús Lindu Pétursdóttur og hins vegar stöð Máttar í
Skipholti. Það má segja að það skapi ákveðna sérstöðu vegna
kynjavalsins. Sagt er að meðalaldurinn hjá kvennastöð Máttar sé
mun hærri en hjá fastagestum hjá Lindu.
Segja má um langflestar hinna stöðvanna að þær hýsi þver-
skurð samfélagsins í sínurn tækjasölum. Þó má finna litla aíkima
hér og þar. Þannig er sagt að kraftajötnarnir æfi margir í Gym 80
í Armúla og þar geti meðalmaðurinn hæglega fengið minnimáttar-
kennd þegar hann lendi í sturtu með Hjalta Úrsusi, Magnúsi Ver
og fleiri tröllum.
í morguntímunum í World Class má oft sjá þekkt andlit úr við-
skiptalífinu og stundum er talað um „forstjóragengið". Það hentar
mörgum, sem vinna mikið en vilja æfa, að koma milli 7 og 8 á
morgnana því dagurinn fer oft úr skorðum í hinn endann.
Um Stúdíó Agústu og Hrafns er sagt að þar sé „þolfimigengið".
Þá er ált við ungt fólk sem stundar þolfimi eða eróbik og jafnvel að
keppa í slíku. A þeim bæ er lögð megináhersla á lokaða tíma, leik-
fimi og fitubrennslu en minna lagt upp úr tækjum og lyftingum.
Máttur var gríðarlega mikið í tísku um tima og allir, sem vildu
vera í líkamsrækt, sóttu þangað. Þar var lögð mikil áhersla á hina
læknisfræðilegu og tæknilegu hlið líkamsræktar með sjúkraþjálí-
urum, næringarráðgjöfum og læknum. Þetta setti stundum svip á
gestahópinn og meðalaldurinn var og er oft í hærra lagi og marg-
ir sem ganga ekki alveg heilir til skógar. Þar má hinsvegar oft
rekast á þekkt andlit, t.d. eru margir
þingmenn sem æía í Mætti.
FRAMTÍÐIN
Ljóst er að mikil spenna er á lík-
amsræktarmarkaðnum og flestir virð-
ast sammála um að verðsamkeppni
sú, sem World Class hóf snemma árs
1996, sé farin að hafa veruleg áhrif á
markaðinn. Flestirherði sultarólina og
reyni að skrimta en róðurinn þyngist.
Viðskiptavinirnir njóta góðs af lækk-
uðu verði og markaðurinn stækkar.
Fulltrúar stærstu stöðvanna hafa
átt tvo fundi undanfarin ár. Annar var
að frumkvæði Agústu og Hrafns árið
1996 og hinn að frumkvæði Björns
Leifssonar haustið 1997. A þessum
fundum ræddu aðilar stöðu mála og
meðal annars mun því hafa verið
hreyft að stofna til einhvers konar samstarfs og samráðs um
launataxta kennara, samnýtingu kennara o.s.frv.
Nú mun stofnfundur félags líkamsræktarstöðva vera í undir-
búningi þótt ýmislegt sé óljóst enn með markmiðin og hvort allir
verði með.
Hvað varðar aðrar tilfærslur á markaðnum þá er það yfirlýst
stefna Jónínu Benediktsdóttir að opna stærri líkamsræktarstöð en
Planet Pulse en undir öðru nafni og höfða til breiðari hóps en hún
gerir þar. Jónína bauðst til að kaupa World Class á miðju síðasta
ári en Björn Leifsson setti upp hærra verð en hún gat sætt sig við.
HVAÐ ER í TÍSKU?
Tískusveiflur hafa alltaf sett svip sinn á likamsrækt. Einu sinni
voru allir í eróbik og Jane Fonda var fyrirmynd allra. Síðan komu
tækjasalirnir og síðan komu pallaleikfimitímarnir og teygjurnar.
Síðan komu „spinning" hjólin sem eru enn þá í tisku og engin
maður með líkamsræklarmönnum nema hann sæki sérstaka
hjólatíma þar sem fólk situr í hring og hjólar og púlar undir leið-
sögn sérstaks þjálfara við dynjandi músík. Enginn veit hvað verð-
ur tískusveifla næsta árs en úti í hinum stóra heimi eru hóptímar
á sérstökum róðrarvélum mjög að ryðja sér til rúms. Kannski
verða sérstakir galeiðutimar vinsælir næsta vetur þar sem allir róa
í takt. [ffl
Björn Leifsson í World Class:
LÍT Á ÞETTA SEM VIÐSKIPTI
orld Class er stærsta og elsta líkamsræktarstöðin á ís-
landi en hún tók til starfa árið 1985. Björn Leifsson hefur
rekið stöðina frá upphafi og er eigandi hennar ásamt eig-
inkonu sinni, Hafdísi Jónsdóttur, sem stjórnar allri leikfimikennslu í
stöðinni. I dag er World Class til húsa við Fellsmúla en einnig er-
rekið útibú á Akureyri. Björn og Hafdís hafa einnig haslað sér völl í
veitingarekstri en þau eiga Þjóðleikhúskjallarann og Ingólfskaffi.
UPP Á LÍF OG DAUÐA
Þetta er markaður þar sem hart er barist um hylli
kúnnans. Líkamsræktarstöðvarnar berjast upp á
líf og dauða meö afsláttarkortum, nýjum tækjum,
einkatimum, lokuöum tímum, einkaþjálfurum og
ótal gylliboðum.
HVERJIR FALLA FYRSTIR?
Síðustu tvö ár hefur verðsamkeppni þvingað
stöðvar til að skera niður þjónustu, fækka starfs-
fólki og draga saman seglin. Fullyrt er að allar
stærstu stöðvarnar séu reknar með tapi og beð-
ið sé þess að blaðran springi og einhver stígi
fyrsta skrefiö til hækkunar á ný frekar en að
verða gjaldþrota.
31