Frjáls verslun - 01.01.1998, Blaðsíða 36
Jónína Benediktsdóttír segir að samkeppnin sé að eyðileggja
markaðinn.
Jónína Benediktsdóttir:
ÞAÐ ER VERIÐ AÐ EYÐILEGGJA MARKAÐINN
Bg opnaði þessa stöð í september á síðasta ári. Yfirlýst
markmið mitt var að selja 400 kort og það hefur tekist.
Það tók í rauninni skemmri tíma en ég reiknaði með og
ég get verið ánægð með það,“ segir Jónína Benediktsdóttir sem
rekur líkamsræktarstöðina Planet Pulse á Hótel Esju.
Planet Pulse er alþjóðleg keðja líkamsræktarstöðva og er ný
á markaðnum hér á íslandi en Jónína er ótvírætt einn af frum-
kvöðlunum í þeirri líkamsræktarbylgju sem gengið hefur yfir
landið frá því um 1980.
Planet Pulse hefur nokkra sérstöðu að því leyti að þar er mik-
il áhersla lögð á þjónustu við einstaklinginn Gjaldskrá stöðvar-
innar er frábrugðin því sem tíðkast hjá keppinautunum og er
verulega hærri. Flestir gera árssamning við Planet Pulse en verð
á mánuði mun vera um 14 þúsund krónur.
„Þetta er lítill einkaklúbbur sem ég rek hérna. Ég hef ekki
sett markið á neinn sérstakan part af markaðnum. Ég vildi gera
eitthvað sem væri sambærilegt við það besta sem er gert í lík-
amsrækt í heiminum í dag. Mér fannst þetta spennandi verkefni
og var tilbúin að standa og falla með þvi.
Við bjóðum upp á geysilega margt og erum með mun fleira
starfsfólk en flestir aðrir. Okkar viðskiptavinir er fólk sem kann
að meta tímann sinn og leggur áherslu á vandaða alhliða likams-
rækt sem byggir ekki síður á slökun en átökum.“
Jónína segir að áherslan hafi íyrst og fremst verið lögð á að fá
það fólk til að æfa í stöðinni sem kynni að meta þjónustu eins og
þetta en ekki hafi verið farið eftír efnahag fólks.
Jónína segist ekki hafa tekið þátt í þeirri verðsamkeppni sem
gengur á markaðnum enda ekki verið að sækjast eftír fjölda.
„Ef þú ætlar að kaupa Bens þá ferðu ekki að kanna verðið á
Trabant. Þú ferð og kaupir Bens.“
Jónína segist hafa fylgst vel með markaðnum að undanförnu
með það fyrir augum að opna stórt líkamsræktarstúdíó sem
höfðaði tíl breiðari hóps en Planet Pulse gerir í dag. Hún segist
meðal annars hafa gert tilboð í að kaupa World Class.
Hvaða áhrif telur hún að verðstríð og aukin samkeppni hafi
haft á markaðinn?
„Það er verið að eyðileggja þennan markað og brjóta niður
virðingu fólks fyrir heilsurækt,“ segir Jónína skelegg að vanda.
„Ég væri ekki ánægð eftír að hafa verið með tílboð og afslátt-
arverð á minni líkamsrækt í 10 ár og samt þyrftí ég alltaf að vera
smala nýjum kúnnum. Stöðvar sem geta ekki haldið í kúnnana
eru auðvitað að gera eitthvað vitlaust."
Jónína vitnar í erlendar kannanir sem hún segir að sýni að
20% þeirra sem byija í líkamsrækt halda sig við hana á hveiju
sem gengur, önnur 20% munu alltaf gefast upp, alveg sama hve
góð þjónusta er veitt. 60% þarf hins vegar að hugsa vel um og
veita góða þjónustu ef á að takast að halda í þau. Verðið skiptír
ekki svo miklu máli í afstöðu viðskiptavinanna.
„Það er fyrst og fremst verið að eyðileggja markaðinn með
því að koma rangt fram við viðskiptavinina fremur en með þessu
verðstríði." S9
ÁRÓÐUR FYRIR H0LLUM LIFNAÐARHÁTTUM
Stúdíó Ágústu og Hrafns hefur verið rekið í Skeifunni frá 1988
en var fyrstu tvö árin í Borgartúni. Þau gerðu tilraun tíl að opna
stöð á Akureyri á síðasta ári en henni var lokað um áramót.
„Þetta var einfaldlega of mikið. Svona atvinnurekstur gengur
ekki nema maður vaki yfir þessu sjálfur og það var of mikið fyrir
okkur.”
Stúdíó Ágústu og Hralhs heíúr alla tíð lagt sérstaka áherslu á
leikfimitíma undir leiðsögn kennara. Lokaðir tímar fyrir karla og
konur, einkaþjálíún, sérstök fitubrennslunámskeið og fleiri ný-
mæli hafa sést þar. Þau hafa ekki látið þar við sitja að láta fólk
sprikla í stúdíóinu því þau hafa séð um sjónvarpsþátt á Stöð 2, þar
sem leikfimi er kennd. Þau hafa einnig gefið út tvær bækur og
fjallar önnur um heilbrigt líferni og þjálfun en hitt er matreiðslu-
bók, sérstaklega sniðin að þörfum þeirra sem vilja borða hollan
mat sem sé hliðhollur línunum.
ÞAÐERU ERFIÐIR TÍMAR
Eru þetta erfiðir tímar í þessari atvinnugrein?
„Verðgildi líkamsræktar hefur lækkað á síðustu 1-2 árum og
það hefur gerst hér líka. Hópafslættir tíl fyrirtækja hafa leitt tíl al-
mennrar verðlækkunar á markaðnum og þá aðallega á árskortum.
En það er ólíklegt að þetta haldi áfram. Þetta hefur bitnað á þjón-
ustunni hjá flestum. Við höfúm lítið svigrúm til að auka hana fyrr
en verðið hækkar.”
ER BJARTSÝN Á FRAMTÍÐINA
Ágústa segist ekki hafa tekið þátt í þessum leik að því leyti að
bjóða stórum hópum afslátt heldur hafi hún einbeitt sér að því
gera vel við sína föstu gestí og hyggist halda sínu striki að því
leyti.
„Það er mikið talað um þessa nýju stöð í Kópavoginum en ég
hef ekki fundið fyrir því sérstaklega. Ég lít ekki á Kópavog og út-
hverfi Reykjavíkur sem mitt markaðssvæði sem ég þurfi að keppa
við og tel ekki að þetta hafi tekið neitt frá okkur.“
Ágústa segir að þegar horft sé til framtíðar sé eðlilegast að við-
skiptavinirnir séu sem flestír í föstum viðskiptum tíl lengri tíma.
„Almennt er ég bjartsýn á ffamtíðina. Það verða alltaf nýjungar
í gangi á þessum markaði og við reynum að svara því en okkar við-
skiptamannahópur er þannig samsettur að við leggjum aðalá-
herslu á tjölbreytta þjálfún með kennara. Það er okkar sérstaða og
við munum gæta hennar.” 33
36