Frjáls verslun - 01.01.1998, Blaðsíða 56
Geir A. Gunnlaugsson, forstjóri Marels. Ávöxtun hlutabréfa í fyrirtækinu var 81%
á síðasta ári.
MAREL
eir Gunnlaugsson er forstjóri
Marels. Fjárfestar hafa miklar
væntingar til fyrirtækisins -
ekki hvað síst vegna kaupa Marels á
danska fyrirtæki Carnitech á síðasta
ári. Gengi hlutabréfa í fyrirtækinu
hækkaði um 81% á síðasta ári og
reyndist það - ásamt hækkun bréfa í
SR-mjöli - næstmesta hækkun hluta-
bréfa á Verðbréfaþingi. Gengi bréfa í
fjármál
Marel var 11,05 í byrjun síðasta árs en
20,00 í lok þess.
Hagnaður Marels eftir skatta á ár-
inu 1996 var um 63 milljónir króna.
Fyrstu sex mánuði síðasta árs, 1997,
nam hagnaðurinn hins vegar 101
milljón króna og var stór hluti hans
vegna hagnaðar Carnitech á þessu
tímabili. Til samanburðar nam hagn-
aður Marels fyrstu sex mánuðina
1996 um 34 milljónum. Markaðs-
verðmæti Marels eru um 4 milljarðar
króna. Meðalfjöldi starfsmanna Mar-
els á Islandi er 153 talsins.
Marel var 72. stærsta fyrirtæki
landsins 1996, samkvæmt lista
Frjálsrar verslunar, og velti fyrirtæk-
ið það ár tæpum 2 milljörðum. Ljóst
er að velta Marels-samsteypunnar
hefur hátt í tvöfaldast á ári vegna
kaupanna á Carnitech. Verðbréfasal-
ar hafa undanfarnar vikur mælt með
kaupum á bréfum í Marel. Rétt er þó
að benda á að gengi bréfanna er
mjög hátt og í því kann að felast
nokkur áhætta. 33
SR-MJ0L
Uón Reynir Magnússon, forstjóri
SR-mjöls, hefur langa reynslu í
rekstri loðnubræðslna. Hann
var áður forstjóri Síldarverksmiðja
ríkisins, undanfara SR-mjöls. Hann
getur vel við unað með árangur síð-
asta árs. Gengi hlutabréfanna hækk-
aði um 81% á síðasta ári. I ársbyrjun
var gengið 3,65 og í árslok var það
6,60.
Hagnaður SR-mjöls var 471 milljón
eftir skatta á árinu 1996. Hagnaðurinn
fyrstu sex mánuði ársins 1997 var 195
milljónir króna borið saman við 164
milljóna króna hagnað fyrstu sex mán-
uði ársins 1996. Síðasta ár var því gott
hjá SR-mjöli sem og hjá öðrum loðnu-
bræðslum landsins. Búist er við
áframhaldandi góðri afkomu þeirra.
Jón Reynir Magnússon, forstjóri SR-mjöIs. Mikil eftir-
spurn var eftir hlutabréfum í fyrirtækinu og nam ávöxt-
un þeirra 81% á síðasta ári.
Markaðsverðmæti SR-mjöls eru
rúmir 6,3 milljarðar króna.
SR-mjöl er 28. stærsta fyrirtæki
landsins, samkvæmt lista Fjálsrar
verslunar. Velta þess var um 4,6
milljarðar árið 1996 og jókst
stórlega frá árinu áður.
Verðbréfasalar hafa mælt
með bréfum í SR-mjöli.
Horfur eru góðar í
veiði á loðnu og síld
og verð á loðnuaf-
urðum hefur aldrei
verið eins hátt.
Verðbréfasalar
benda mönn-
um á að
halda bréfum
í SR-mjöli. 33
56