Frjáls verslun - 01.01.1998, Blaðsíða 51
auðlindir, staðhætti og hagvöxt í
fyrirlestri sínum. „Hann gefur al-
þjóðlegt yfiriit um þetta og fjallar
jafnframt um það frá sjónarhóli Is-
lands, þ.e. hvaða möguleika hag-
kerfi á borð við okkar hafi í ljósi
þessarar þróunar í heiminum. Hann
fékk heilmikið efni héðan til að
kynna sér ástandið og ætlar að ijalla
um sínar kenningar, þ.e. hagþróun
og hagvöxt, í ljósi aðstæðna hér á
landi ásamt því að gefa alþjóðlegtyf-
irlit um þessi mál.”
Þórður minnist þess ekki að
Sachs hafi áður tjáð sig um ísland
og því verður spennandi að fylgjast
með fyrirlestrinum sem án efa vekur eftirtekt, en Sachs er
ekki vanur að fara með veggjum.
Aðspurður sagði Þórður það hafa verið heilmikið mál að
fá Sachs til að koma. Hann var þó svo heppinn að Sachs
halði áhuga á að koma til íslands. Afmælisráðstefnutíminn
var því lagaður að því sem hentaði honurn, en sjálft afmæl-
ið er ekki fyrr en 17. mars. Sachs ætlar að koma hingað
með alla íjölskylduna og vera yfir helgi. Föstudaginn verð-
ur hann á ráðstefnunni en laugardaginn og sunnudaginn
ætlar hann að nota til þess að
skoða sig um á Islandi og kynna
sér land og þjóð.
VALINN MAÐUR í HVERJU RÚMI?
Helstu áhrifamenn í íslensku
atvinnulífi koma einnig við sögu á
ráðstefnunni og þar er valinn
maður í hverju rúmi. Davíð
Oddsson forsætisráðherra ávaq>
ar gestina, Hörður Sigurgests-
son, forstjóri Eimskipafélags Is-
lands, fjallar um áhrif alþjóða-
væðingar á innlent atvinnulíf og
fyrirtæki, Friðrik Pálsson, for-
stjóri SH, ijallar um sjávarútveg
og vaxtarmöguleika á alþjóða-
vettvangi, Rannveig Rist, forstjóri Islenska álfélagsins,
ijallar um framtíð iðnaðar á Islandi, sókn eða vörn, Bjarni
Ármannsson, forstjóri Fjárfestingabanka atvinnulífsins,
ijallar um ijármálaþjónustu á nýrri öld, Þorvaldur Gylfa-
son, prófessor við HÍ, ijallar um hagstjórn og rekstur fyr-
irtækja við upphaf nýrrar aldar og loks mun Geir
Haarde alþingismaður og ráðstefnustjóri flytja lokaorð.
Þórður sagðist renna blint í sjóinn með þátttökuna en fé-
lagsmenn eru 2.250 talsins. SE
Jeffrey D. Sachs kemur frá Harvard. Hann
er einn virtasti hagfræðingur heimsins.
,,.../ií// ísl má telja að hún eigi eftir að nýtast el
bœði hérlendis og erlendis um ókotnin ár, ekki síst
útgáfcm á geisladiski. “
Kristinn Briem í Viðskiptablaði Morgunblaðsins 10. júlí 1997
„ Hagskinnu á h ert heimili... “
Guðrún Pétursdóttir formaður dómnefndar
um fræðibækur, við tilnefningu til íslensku
bókmenntaverðlaunanna
8. desember 1997
Fæst I bókaverslunum
og á Hagstofu íslands
Skuggasundi 3
Hagskinna
ífyrsta sinn á Islandi, söguleg
tölfrœðihandbók, byggð upp
á skýran og einfaldan hátt.
„Hún treystir grund öllinn undir
skynsamlegum umrœðum og
ák örðunum um efnahagsmál á íslandi.
Hún arpar skýru Ijósi liðins tíma á
líðandi stund. Hún er beinlínis bráð-
skemmtileg og öllum aðstandendum sínum
til sóma. “
Þorvaldur Gylfason í Morgunblaðinu 21. ágúst 1997
Bókin er prýdd fjölda
skýringarmynda og er
957 bls.
Verð 7.900 kr.
Bókin á geisladiski
Verð 9.900 kr.
Sé bókin keypt ásamt
geisladiski er veittur
15% afsláttur.
51