Frjáls verslun - 01.01.1998, Blaðsíða 57
PHARMACO
Sindri Sindrason, forstjóri Pharmaco. Ávöxtun hlutabréfa í fyrirtaekinu nam 63%
á síðasta ári.
aindri Sindrason er forstjóri lyf]a-
fyrirtækisins Pharmaco - og
hefur verið um margra ára
skeið. Líkt og aðrir, sem hér er um fjall-
að, getur hann glaðst yfir stórfelldri
hækkun hlutabréfa í fyrirtækinu á síð-
asta ári. Bréfin hækkuðu um 63%. I árs-
byrjun var gengi 8,01 en í árslok var það
komið í 13,05. Stóraukin samkeppni hef-
ur ríkt á lyfjamarkaðnum. Pharmaco er
fyrst og fremst heildsölufyrirtæki með
lyf. Það flytur inn lyf og annast dreifingu
lyfja til allra lyfyabúða hér innanlands.
Hagnaður Pharmaco eftir skatta var
99 milljónir króna árið 1996 en 82 millj-
ónir árið áður. Hagnaðurinn fyrstu sex
mánuðina 1997 var um 49 milljónir bor-
ið saman við hagnað upp á 31 milljón
sömu mánuði 1996. Það veit á gott fyrir
árið í heild hjá Pharmaco. Markaðsverð-
mæti Pharmaco eru rúmur 2,1 milljarð-
ur króna. Meðalijöldi starfsmanna er
105 talsins.
Pharmaco er 51. stærsta fyrirtæki
landsins, samkvæmt lista Frjálsrar
verslunar. Velta þess var um 2,7 milljarð-
ar á árinu 1996. Verðbréfasalar hafa und-
anfarnar vikur bent Ijárfestum á að
halda hlutabréfum sínum í fyrirtækinu.
Fyrirtækið hefur sýnt góða afkomu síð-
ustu ár þrátt fyrir stóraukna samkeppni
á fyfjamarkaði - og væntanlega verður
svo áfram - svo sterk er markaðsstaða
fyrirtækisins. Það er langstærsta fyrir-
tækið á lyljamarkaðnum. 55
NYHERJI
Urosti Sigurjónsson er forstjóri Nýherja. Hann tók við stöð-
unni af Gunnari Hanssyni á vormánuðum 1996. Það ár
reyndist Nýherja erfitt í afkomu - meðal annars var hlutur
fyrirtækisins í Stöð 3 afskrifaður - en engu að síður var þá lagður
grunnur að mikilli hagræðingu innan fyrirtækisins sem fjárfestar
höfðu sýnilega mikla trú á allt síðasta ár. Því hækkaði gengi hluta-
bréfa í fyrirtækinu um 62% á síðasta ári. I upphafi ársins var það 2,22
en var komið í 3,60 í árslok. Nýheiji er eitt ijögurra stærstu tölvufyr-
irtækja landsins.
Hagnaður Nýheija á árinu 1997 nam alls um 74 milljónum króna,
samanborið við um 103 milljóna tap árið 1996. Þessi miklu umskipti
skýrast bæði af mun betri afkomu af reglulegri starfsemi fyrirtæk-
isins svo og hagstæðari útkomu óreglulegra liða. Markaðsverðmæti
Nýheija eru um 864 milljónir króna. Meðalijöldi starfsmanna er um
150 talsins.
Nýherji er 70. stærsta fyrirtæki landsins, samkvæmt lista Fijálsr-
ar verslunar yfir stærstu fyrirtæki landsins. Velta hans var rúmir 2
milljarðar á árinu 1996 og hafði þá aukist um 20% frá árinu áður. Af
tölvufyrirtækjum er aðeins Tæknival með meiri veltu. Verðbréfasal-
ar hafa undanfarnar vikur bent fjárfestum á að kaupa bréf í Nýherja
og jafnframt ráðlagt núverandi hluthöfum að selja ekki bréf sín þar
sem afkoman eigi eftir að batna. 55
Frosti Sigurjónsson, forstjóri Nýherja. Fyrirtaekið skilaði hluthöfum
sínum um 62% ávöxtun á síðasta ári.