Frjáls verslun - 01.01.1998, Blaðsíða 8
N T
T
Expre
World
V *"&/
Framkvæmdastjórn íslandspósts fyrir utan höfuðstöðvarnar, Pósthússtræti 5:
Frá vinstri: Orn V. Skúlason, frarnkv;cmdastjóri markaðs- og sölusviðs, Anna
Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Einar Þorsteinsson forstjóri og
Áskell Jónsson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs.
ISLANDSPOSTUR
GEFUR NYJAN TON
Urá síóustu áramótum hefur ís-
landspóstur hf. haft meó höndum
póstþjónustu á íslandi. íslands-
póstur er alhliða flutninga- og þjónustufyr-
irtæki sem flytur bréf og stærri sendingar
innanlands sem utan. Fyrirtækió leggur
metnaö sinn í aö þjóna fyrirtækjum og ein-
staklingum á sem bestan og fljótvirkastan
hátt. Póstþjónusta á íslandi byggir á rúm-
lega 220 ára sögu og um leið og íslands-
póstur hf. gefur nýjan tón byggir fyrirtækió
á langri reynslu.
Hjá íslandspósti starfa um 1250 starfs-
menn. Fyrirtækið starfrækir 87 afgreiðslu-
staði um land allt auk þess sem um 270
póstkassar eru staðsettir víðs vegar um
landið. Hratt og örugglega flytur íslands-
póstur bréf og stærri sendingar milli ein-
staklinga og fyrirtækja hér innanlands.
Með næturflutningum á pósti, fimm sinn-
um í viku, milli Reykjavíkur og Þórshafnar,
Reykjavíkur og ísafjarðar og Reykjavíkur
og Egilsstaða myndast samfellt flutnings-
net um stóran hluta landsins. Um 95%
landsmanna geta nýtt sér þessa þjónustu
og fengið póstinn sinn í hendur næsta virk-
an dag eftir að hann er póstlagður. Að auki
tengist íslandspóstur þjónustu annarra
póststjórna um allan heim og gerir það
viðskiptavinum kleift aö senda bréf og
böggla heimshorna á milli.
Starfsmenn Hraðflutninga.
Fyrirtækjaþjónusta Póstsins hefur verið
starfrækt í tæp 5 ár. Þetta er heildarþjón-
usta fyrir fyrirtæki sem eykur afkastagetu
þeirra og tryggir sparnað, hvort sem er í
formi tíma eða peninga. Starfsmenn
Póstsins heimsækja fyrirtækin einu sinni
eða tvisvar á dag, eftir þeirra óskum, og
sjá um að afhenda og taka við öllum pósti,
bæói bréfum, ábyrgðarbréf-
um, stærri sendingum
og bögglum. Þeir
sinna samskiptum
fyrirtækisins við
Póstinn og tollaf-
greiðslu, geta
annast boðpóst-
sendingar, sett bréf í
umslög, frímerkt send-
ingar og gert tollskýrslur. Ennfremur veita
þeir ráðgjöf um hvaóeina sem lýtur að
þjónustu Póstsins, útvega rekstrarvörur
eða sjá um forprentun á fylgibréfum og
gíróseólum til að auðvelda útfyllingu.
7
ÖSTS^
%
vP
—I
>
N|T| Express
Worldwide
Auk þess að bjóða upp á almennar
póstsendingar innanlands og til útlanda þá
býður íslandspóstur upp á hraðflutninga-
þjónustu. íslandspóstur er umboðsaðili
fyrir TNT Express Worldwide, sem er eitt
öflugasta flutningafyrirtæki heims, en
flutninganet þess nær yfir meira en 200
lönd. Með næturflugi til og frá aðaldreif-
ingarmiðstöð TNT á meginlandi Evrópu
komast sendingar til og frá helstu stöðum
í Evrópu og Bandaríkjunum til skila næsta
virkan dag. íslandspóstur sér auk þess um
sendingar fyrir EMS: Express Mail Service,
sem er hraðsendingarþjónusta póststjórna
um allan heim.
AUGLYSINGAKYNNING
8