Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1998, Side 33

Frjáls verslun - 01.01.1998, Side 33
FORSÍÐUEFNI lætur þá fá sundlaugina á silfurfati. Auðvitað eru ekki allir ánægðir. Eg væri alveg til í að gera svona samning við Laugar- dalslaugina, þeir sæu um reksturinn og ég fengi helminginn af andvirði kortanna.” WORLD CLASS ER UNDIRSTAÐAN Umtalsverðar árstíðasveifiur eru í aðsókn fólks að líkams- ræktarstöðvum en Björn segir að það fari þó minnkandi. Bestu tímabilin á árinu eru tvö. Annað nær frá janúar og fram til loka apríl. Hitt byrjar í september og nær til loka nóvember. Miðað við tölur World Class fer aðsóknin á daufustu tímunum á sumr- in niður í 70% af því sem hún er mest. „Þetta er orðið stærri hlut- ur í lífi fólks en áður var. Hingað sækja menn bæði æfingar og einnig félagsskap.” Björn hefur séð um rekstur skemmtistaða eins og fram er komið en segist sáralítið eða ekkert hafa tekið þátt í öðrum rekstri. Þó hefur hann örlítið tekið á innflutningi á vörum, tækj- um og fatnaði tengdum líkamsrækt. „Mitt áhugamál er líkamsrækt og World Class er sá grunnur sem ég byggi á og mitt nafn tengist. Þess vegna hef ég alltaf lagt áherslu á að sinna því og geri það áfram. Eg er með góða starfs- menn sem sjá um veitingareksturinn fyrir mig. Veitingareksturinn veltir meira en líkamsræktin en ég sé um World Class. Eg hef verið með hagnað af World Class tvö síð- ustu árin en það er ekki neitt sjálfgefið.” 33 Elías Níelsson í Mætti segir að aukin samkeppni hafi dregið úr þjónustu stöðvanna. Elías Níelsson í Mætti: ERUM AÐ DREPA HVER ANNAN ér finnst samkeppni alveg sjálfsögð og af hinu góða. Það breytir ekki því að sú verðsamkeppni, sem undanfarið ár hefur staðið milli líkamsræktarstöðva, mun drepa ein- hveijar stöðvanna ef ekkert breytist. Mér sýnist að þetta muni koma niður á þeirri þjónustu sem stöðvarnar veita og hefur þegar ^IAKGBSI SKHN Jakob's Fine Furs • Jakob Ámason Miðtúni 2 • 230 Keflavík • Sími & fax: 421 f66l þér tíma og líttu a óviðjaínanlegt úrval a£ W*ða loðslíinnsUápum og jö'WUu: Jakob s Fine Furs er í samstarfi við mjög þekktan feldskera í Grikklandi sem hannar glæsilegar loðskinnskápur sem náð hafa miklum vinsældum á íslandi. Loðskinnin eru einnig seld í Bandaríkjunum, Skandinavíu, Grikklandi og Hong Kong. 33

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.