Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1998, Side 49

Frjáls verslun - 01.01.1998, Side 49
Olafur Kind- , Frs vinstn: G" ' Hubert, ^tetion Internatt _.n,;tc/,(tasemian. son ] „Þetta er gróskumikið félag og félagsmenn þess eru um 2.250 talsins. Flestir þeirra hafa hlotið sína menntun í Háskóla Islands. Meira en tíundi hver viðskipta- eða hagfræðingur hefur farið í meistaranám erlendis og þannig fengið nýja vídd í námið, bæði reynslu af því að búa erlendis og dýpri þekkingu á sjálfu náminu. Það er mikill styrkur að slíku fólki í stéttinni en viðskiptaffæðinga og hagfræðinga er að finna mjög víða í atvinnulífinu. Hlutfall kvenna fer hækkandi eftir því sem árin líða. í dag eru 25% af við- skipta- og haglfæðingum konur en útskriftarhlutfallið er nú að meðaltali 40% konur og 60% karlar. Konum fer því íjölgandi.” BREYTTAR ÁHERSLUR - BREYTT NÁM í upphafi var námið við HÍ, að sögn Kristjáns, almennt um við- skipti og rekstur og viðskiptafræðingar voru yfirleitt það sem við köllum nú almennir stjórnendur í fyrirtækjum og stofnunum. Mikil áhersla var áður lögð á bókhald en það hefurgjörbreyst með upplýsingatækninni. Hin síðari ár hafa viðskiptafræði- og hag- fræðigreinarnar þróast mikið og áherslurnar hafa breyst. Fyrir- tækjarekstur, hagkerfin og samspil þeirra hafa verið greind meira í sundur og einstakir þættir skoðaðir betur. Viðskipta- og hagfræð- ingar eru þannig komnir meira í ýmis sérfræðistörf. „Viðskiptafræði er margslungin ffæðigrein og felur í sér marg- ar sérgreinar eins og t.d. markaðsmál, fjármál, framleiðslumál, gæðamál, endurskoðun og stjórnun. I framtíðinni verður í vaxandi mæli þörf fyrir að tengja saman sérhæfingu á mismunandi svið- um, t.d. á sviði upplýsingamála, fjármála og markaðsmála. Námið við HÍ hefur einnig breyst töluvert og tekið meira mið af þörfum atvinnulífsins en áður var. Nú er búið að skipta viðskiptaíræðinám- inu í sex svið þar sem boðið er upp á talsverða sérhæfingu. Til margra ára hefur viðskiptafræðin verið fjögurra ára nám en nú getur fólk einnig farið í BS-nám og útskrifast eftir þijú ár. Frá og með síðasta hausti er síðan einnig hægt að fara í meistaranám. Nemendur í hagfræði geta nú valið á milli tveggja námsbrauta til BS eða BA prófs og tekur námið þrjú ár. Þar er einnig boðið upp á nám til meist- araprófs í hagfræði.” Fra raöstefnu á Hótel Sögu í tilefhi 50 ™ífTl,s Féla«s viðskiptafræðinga og gfneðntga. Þrír af fiórum heiðursf > logum felagsins sitja ffemst til hægri á myndinm. Talið frá hægri: Dr. Oddur Ouðjonsson, prófessor Ólafur Björns- f°n °? Kletnenz Tryggvason, fyrrum Gyffa Þ Sr°nf' FjÓrða he*ðursfélagann, fjylta P. Gislason prófessor, vantar á myndina. HLUTVERK FELAGSINS ENDURSKOÐAÐ Undanfarin tvö ár segir Kristján félagsmenn hafa verið að end- urskoða hlutverk sitt og framtíðarsýn. Á síðasta aðalfundi voru t.d. samdar nýjar siðareglur fýrir félagið þar sem tíundað er hvernig félagsmönnum beri að haga sínum störfum í þjóðfélaginu með sem heiðarlegustum hætti. Þar er m.a. að finna leiðbeiningar um siðferði í viðskiptum. „Við erum einnig að endurskoða lögin okkar og breyta áhersl- um varðandi tilgang félagsins. Við viljum að félagið beiti sér fyrir því að efla menntun og rannsóknir í viðskipta- og hagfræði og efli kynningu á menntun félagsmanna og ímynd viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Við erum líka að vinna heimasíðu á Veraldarvefnum fyrir fé- lagið sem opnuð verður á aímælisárinu. Við verðum þar bæði með opinn vef íyrir almenning þar sem er að finna almennar upp- lýsingar um félagið og einnig sérstakt félagssvæði þar sem lykil- orð þarf til þess að hafa aðgang. Þar eru ýmsar nytsamar upplýs- ingar fyrir félagsmenn eins og kjarakannanir, félagatal o.fl. Við verðum líka með sérstakt stjórnarsvæði fyrir fólk sem starfar í hinum ýmsu nefndum félagsins þar sem er hægt að lesa allar fundargerðir o.fl. Félagið vill leggja sig frarn við að veita félags- mönnum hagnýtar upplýsingar og ráðgjöf, enda er talsvert leitað til okkar. Allt er þetta í samræmi við þá þróun sem orðið hefur bæði hér á landi og erlendis og er liður í því að aðlaga Félag við- skiptafræðinga og hagfræðinga að breyttum tímum og nýjum kröfum,” sagði Kristján. 33 VARLA ATVINNULEYSI EN VAXANDI LAUNAMUNUR Ólíklegt er ab atvinnuleysi blasi við viöskiptafræöingum. Hins vegar er hugsanlegt aö meö tímanum aukist launamunur á milli þeirra, sem ekki hafa lokið framhaldsnámi á háskólastigi, og hinna sem hafa sérhæft sig. Þeir síöarnefndu veröa alltaf eftirsóttir. 49

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.