Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1998, Side 76

Frjáls verslun - 01.01.1998, Side 76
LEIKFÉLAG AKUREYRAR. Úr leikritinu Á ferð með frú Daisy sem nú er sýnt fyrir norðan. Sigurveig Jónsdóttir leikur frú Daisy og stendur sig einkar vel. Mynd: Páll A. Pálsson. sjálfa sig og umhverfi sitt. Önnur hlið sögunnar lýtur að sam- skiptaháttum kynþáttanna í hinu ameríska ijölþjóðasamfélagi, og þarf enga „staðfærslu" til að skilja, hvað þar er á ferð. Sigurveig Jónsdóttir er frú Daisy og skilar hlutverkinu prýði- lega. Sigurveig er ágæt leikkona, þó að hún hafi ekki útlit eða rödd með sér, eins og stundum er sagt; hún býr engu að síður yfir sterkri sviðsnærveru og ég hef oft dáðst að því, hvað hún hefur góða „replikku". Hún er best í kómíkinni, en fer þó létt með að leika á alvarlegri og þýðari strengi, ef því er að skipta. Hvort tveg- gja þarfhún að gera hér, og tekst með miklum ágætum. Það kem- ur ekki á óvart, að kollegi vor á Financial Times hafi veitt henni meiri eftirtekt en öðrum í bíómynd Djöflaeyjunnar. Þráinn Karlsson leikur hinn hörundsdökka bílstjóra, Hoke, sem ráðinn er til að keyra frú Daisy. Þráinn var á einhvern hátt ekki í essinu sínu, leikur hans of þunglamalegur framan af, svo að aldursbreytingarnar þau tuttugu og fimm ár, sem leikurinn spannar, urðu ekki nógu skýrar. Freistandi er að skrifa þetta á reikning leikstjórans; það er ótrúlegt, að hann hafi ekki getað fengið jafn traustan leikara og Þráin tíl að leika af meiri hressileik. (Fá leikstjórar L.A., sem eru langoftast aðkomumenn, annars að- stöðu til að fýlgjast með því hvernig sýningar þeirra þróast, eins og á að vera sjálfsögð regla í atvinnuleikhúsi?) Aðalsteinn Bergdal var í fremur vanþakklátu hlutverki sonarins; framan af var stundum eins og hann væri eitthvað annars hugar - í samtöl- unum við Hoke - en þegar fram í sóttí náði hann sér á strik. ....................................... ......................* Leikurinn byggist upp á stuttum atriðum, sem hvarfla á milli ýmissa staða, innan og utan húss, sumra í bíl. Sviðslausn Hlínar Gunnarsdóttur er falin í skermum, sem skotið er fram og aftur, svo að sviðsmenn hafa í nógu að snúast allan tímann. Þó hefðu skiptíngarnar vafalítíð orðið mun liprari með hjálp ljósabreytínga og einfaldari sviðsmyndar, sem var óþarflega natúralisk í stofuat- riðunum. Þá voru atriðin milli Hokes og frú Daisy í bílnum stað- sett full aftarlega á sviðinu; þau hefðu náð mun betur tíl áhorf- enda framar á þvi, en voru greinilega færð inn í baksviðið af tíl- litssemi við skermana. Að sjálfsögðu á leikmyndin að þjóna leikn- um, ekki öfugt. Þó að þetfa val á viðfangsefni getí ekki talist djarflegt og svið- setningin hefði getað orðið betri, þarf LA ekkert að biðjast af- sökunar á leiknum. Skírskotun hans nær út yfir öll landamæri, og maður þarf ekki að vera orðinn neitt gegnsósa af ameríkanís- eringu tíl að kunna vel mannlegri hlýju hans, blandaðri húmor og hófstílltri tílfinningasemi. Og enginn er svikinn af ferð í leikhús- ið, þegar burðarhlutverkið er i jafn góðum höndum og hér er raunin. S3 Hamlet án Hamlets Þýðing: Helgi Hálfdanarson Hamlet eftir William Shakespeare í Þjóðleikhúsinu * Leikstjóri: Baltasar Kormákur Leikmynd og búningar: Vyutas Narbutas vað gerir ungur leikstjóri sem fær að setja á svið eitt fræg- asta og margbrotnasta verk heimsbókmenntanna og ákveður að nota tækifærið tíl að sýna hversu frumlegur hann sé? Hann getur t.d. strikað burt upphaf leiksins, sem flestir munu sammála um, að sé eitt hið snjallasta í öllum leikbók- menntunum, og byrjað i staðinn á löngu ræðuhaldi. Síðan liggur beint við að rugla dramatiska framvindu verksins með því að um- snúa svo einu helsta lykilatriði þess, þegar afturgenginn faðir Hamlets prins birtist syni sínum og skipar honum að hefna morðs síns, að það sem á eftír fer verði illskiljanlegt. Þá getur hann gert eitthvað allt annað úr ýmsum helstu persónunum en lesa má úr textanum, eins og hann sjálfur og aðrir aðstandendur sýningarinnar hafa útlistað rækilega í viðtölum að undanförnu og óþarft er að endurtaka hér. Baltasar Kormákur hefur einnig lýst yfir því, að hann láti sér textameðferð í léttu rúmi liggja, og kemur engum á óvart, sem séð hefur sýninguna. Stundum er leikendum þannig á sviðið skipað, að erfitt er að heyra til þeirra; í sviðsmiðju er aukinheld- ur stór sandhrúga, sem lokar af þann stað, hvaðan leikendur eiga að öðru jöfnu best með að ná til áhorfenda. Þó þjónaði hrúgan ekki sýnilegum tilgangi fýrr en í lokaatriði, þegar hún varð að gröf Ófelíu (nema ef telja eigi með hlutverk hennar sem lostabeð- ur Kládíusar og Geirþrúðar). Verkið er svo niðurskorið, að sum mögnuðustu atriðin, t.d. leiksýningin sem afhjúpar sekt Kládíus- ar kóngs, verða hvorki fugl né fiskur. En reyndar leiðir af þeim skilningi, sem leikstjórinn hefur gert að sínum, að draugurinn sé einungis hugarfóstur Hamlets - svo sem einnig hefur verið ræki- lega útlistað - að spurningin um sök Kládíusar, einn aðalspennu- valdur verksins sjálfs, verður hér í raun og veru aukaatriði. Leikhúsannáll í ársbyrjnn 76

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.