Frjáls verslun - 01.10.1998, Qupperneq 8
Kristján A. Óskarsson framkvæmdastjóri.
Navision Software Island ehf:
Navision Financials er
hugbúnaður framtíðarinnar
- tugþúsundir notenda víða um heim
- íslensk útgáfa á Navision Financials 2.0
avision Software A/S í Danmörku sendi fyrsta hugbúnaðinn á markað
1984. Um 32 þúsund uppsetningar eru nú í 75 löndum og 3500 nýjar
Navision uppsetningar hafa bæst við á árinu. Reiknað er með að á
næsta ári verði nýjar uppsetningar um 1000 á mánuði.
Meðal viðskiptavina Navision eru Bang og Olufsen og Adidas og nýlega var
gerður rammasamningur við danska ríkið um kaup á Navision Financials fyrir
um 500 ríkisstofnanir og um 2000 aðrar stofnanir þeim tengdar. Reiknað er með
að verðmæti samningsins verði um 5 milljarðar.
„Það sem máli skiptir við val á hugbúnaði
er að hann hafi reynst vel, að seljendur hans
og framleiðendur séu traustir og bjóði góða
þjónustu hvar sem er í heiminum. Þá skiptir
að sjálfsögðu líka máli að hugbúnaðurinn sé
stöðugt í þróun í síbreytilegum heimi við-
skiptanna. Miðað við þessar forsendur er
óhætt að fullyrða að Navision Financials sé
hugbúnaður framtíðarinnar," segir Harpa
Einarsdóttir, markaðsstjóri Navision
Software ísland ehf.
Navision Software ísland ehf. keypti
Navision umboðið á íslandi á síðasta ári.
Hérlendis er Navision með næstmesta
markaðshlutdeild samkvæmt könnun sem
Viðskiptablaðið gerði í janúar sl. Meðal not-
enda má nefna SPR0N, íslenskar sjávaraf-
urðir, Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, Há-
skólann, Hagstofuna, Baug hf. og fleiri fyrir-
tæki.
Alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi
Harpa bendir á að ekkert annað kerfi fyr-
ir stór og meðalstór fyrirtæki sé hægt að
setja upp á jafn stuttum tíma og NF.
„Navision var í upphafi bókhaldshugbúnaður
ætlaður smærri fyrirtækjum," segir hún.
„Hann hefur verið í stöðugri þróun og er nú
orðinn alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi
fyrir meðalstór og stór fyrirtæki."
Hún segir að helstu kostir kerfisins séu
fjölmargir: Afar auðvelt sé að laga það að
þörfum hvers einstaks fyrirtækis; kunnug-
legt viðmótið (Microsoft-samhæft) krefjist
lágmarksþjálfunartíma; öll gögn séu sérlega
aðgengileg, m.a. með fyrirspurnaraðgerðum
og grunnleit (köfun); töflugagnagrunnur sé
afkastamikill og góður stuðningur sé við raf-
ræn viðskipti og samtengingu við Internetið.
3500 kerfi til viðbótar á ári
Navision Software hefur umboðsaðila í
yfir 20 löndum og selur hugbúnaó sinn í 75
löndum. Navision kom fyrst á markað í Dan-
mörku 1984. Nú eru um 32 þúsund kerfi í
notkun víðsvegar um heim og árlega bætast
3500 kerfi við. Reiknað er með að á næsta
ári verði uppsetningar um 1000 á mánuði.
Navision Financials hefur verið á markaði í
þrjú ár og hefur þróun þess tekið mið af
þeim athugasemdum og óskum sem fram
hafa komið.
Navision hefur lengi verið í fararbroddi
framleiðenda viðskipta- og upplýsingakerfa
og kynnt ýmsar nýjungar á því sviði. NF 2.0
8