Frjáls verslun - 01.10.1998, Blaðsíða 25
FORSIÐUGREIN
fyrirtækin fylgjast mjög grannt með fyrirtækjum sem eru skráð á
Verðbréfaþingi. Þar eru fyrirtæki borin saman, vegin og metin og
hluthafarnir fylgjast grannt með. Það er orðin mikil pressa á þeim
fyrirtækjum sem eru skrá á Verðbréfaþingi.
Þetta er miklu heilbrigðara en áður var. Fyrst eftir að ég byij-
aði í þessu voru ársreikningar ekki tilbúnir fyrr en eftir dúk og
disk og farið var með þá eins og feimnismál og þeir ekki sýndir
hverjum sem var.“
HVAR ER VEIÐILEYFAGJALDIÐ?
Veiðileyfagjald er eitt af stóru hitamálunum í islenskum sjáv-
arútvegi. Telur þú líklegt að það verði sett á á næstu árum?
Haraldur: „Veiðileyfagjald er áhugamál þröngs, en áberandi,
hóps manna í Reykjavík, en í mínum augum hefur veiðileyfagjald
þegar verið lagt á. Sjávarútvegsfyrirtækin eru að greiða um 700
milljónir á þessu fiskveiðiári og og munu gera fram til ársins 2008.
Við borgum 1200 krónur á hvert þorskígildistonn í þróunarsjóð.
Þetta framlag fer einnig til smíða á nýju Hafrannsóknarskipi. HB
er að borga um 25 milljónir á ári með þessu móti sem er um króna
á hvert kíló af fiski og árið 2008 verður þessi gjaldtaka örugglega
framlengd. Það er hinsvegar ekkert svigrúm til þess að auka þess-
ar álögur eins og málum er háttað í dag. Það dregur úr framþró-
un og nýsköpun, sem við megun síst við í dag. Hitt er svo annað
mál að ef menn vilja skattleggja sjávarútveginn frekar þá á að gera
það gegnum skattkerfið en ekki á hvert kíló af fiski. Það er gagn-
rýnt nú að stærstu fyrirtækin í greininni borgi ekki tekjuskatt
vegna uppsafnaðs taps. Þetta er fullkomlega eðlilegt og strax á
næstu tveimur árum verða flest stærstu fyrirtækin farin að greiða
tekjuskatt."
Verður kvótinn og veiðileyfagjald i brennidepli í næstu kosn-
ingum?
Ingibjörg: „Það verður það áreiðanlega og sérstaklega úti á
landi. Fólk úti á landi er miklu nær sjávarútveginum og skynjar
miklu betur hvaða áhrif breytingar myndu hafa.“
ÍMYND SJÁVARÚTVEGSINS
Auglýsingaherferð eða kynningarherferð Landssambands ís-
Fidel Castró, einrœðisherra á Kúbu, sést hér ásamt Ingibjörgu Pálma-
dóttur á þingi Alþjóðaheilbrigðisstofhunarinnar í Genfí júlí á þessu
ári.
lenskra útvegsmanna um sjávarútveg og kvótamál hefúr vakið
talsverða athygli og viðbrögð. Finnst þér hún hafa náð tilætluðum
árangri?
Haraldur: „Stór hluti þéttbýlisbúa hefur stöðugt minni tengsl
við sjávarútveg og herferðinni er ætlað að upplýsa fólk og ágætt að
velja til þess ár hafsins. Það má deila um aðferðirnar en menn hafa
hlustað. Það er endalaust talað um sægreifa og margir halda ef-
laust að það séu menn eins og ég. Það eru 1200 hluthafar í HB og
aðeins einn stærri en 10%. Við greiddum tæplega einn og hálfan
milljarð í laun í fyrra og það fyrirtæki á Vesturlandi sem kom næst
okkur var Járnblendiverksmiðjan sem greiddi 530 milljónir í laun.
Hjá okkur vinna 450 manns.
Það gleymist oft að hjá sjávarútvegsfyrirtækjum vinnur fjöldi
starfsfólks sem byggir afkomu sína á því að fyrirtækjunum gangi
vel. Þess vegna er mikilvægt að um sjávarútveginn sé fjallað á fag-
legan og málefhalegan hátt.“
ERUM KYRR Á MIÐJUNNI
Steingrímur Hermannsson sagði nýlega opinberlega að Fram-
sóknarflokkurinn hefði færst til hægri. Er þetta rétt?
Ingibjörg: „Þegar ég horfi á Halldór Ásgrímsson og Steingrím
Hermannsson þá sé ég tvo mikla miðjumenn sem þó nálgast miðj-
una hvor á sinn hátt. Flokkurinn er kyrr á miðjunni, öfgalaus til
hægri og vinstri."
SHARP HC-4500A - handtölva
• Windows CE 2.0
stýrikerfi
• 16 mb minni
• 6,5" 256 lita
snertiskjár
(640 x 240 punktar)
• Tengimöguleikar:
PC kort (Typa II)
innrauður sendir,
móttakari
(IrDA standard)
• Raðtengi
• Hátalari, míkrofónn
• Upptaka á minnis-
punktum möguleg
• Þyngd:485g
• Vasa- Excel, Word,
Power Point,
Internet Explorer
• Stafræn
myndavél
(auka-
búnaður)
Með tengingu við
simalínu eða
GSM síma getur þú
sent og móttekið
tölvupóst og fax
og tengst internetinu
SHARP handtölvur framtíðarinnar
BRÆÐURNIR
25