Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1998, Blaðsíða 59

Frjáls verslun - 01.10.1998, Blaðsíða 59
Hagsauki (EVA) mælir arðsemi (íkrónum) með því að taka tillit til kostnaðar af öllu fjármagni fyrirtækja - ekki síst kostnaði afhlutafé. Til að ná sem hæstri EVA verður stöðugt að forgangsraða og gera réttu hlutina á öllum sviðum; láta heildina vinna saman. vel hagsauka viðkomandi fyrirtækis. Mikil- vægt er að ekki þarf að leita að hárnákvæmri tölu heldur gefa stjórnendum samkvæman mælikvarða sem leiðir til betri ákvarðana. EITT MARKMIÐ FYRIR ALLA Lykilatriði aðferðafræðinnar er að ákvarð- anir og stefnumörkun í rekstrinum leiði til meiri hagsauka. Augu stjórnenda og öll lang- tímamarkmið eiga að taka mið af framförum í mældum hagsauka milli ára. Hvort sem mæld- ur hagsauki er í upphafi neikvæður eða jákvæð- ur munu allar framfarir skila sér til hluthafanna til lengri tíma litið. Með þessu er ekki átt við það að öll önnur stjórntæki og hjálpargögn stjórnenda úr íjármála-, framleiðslu- og mark- aðsfræðum séu gagnslaus. Þau þeirra, sem hjálpa stjórnendum að bæta hagsauka, á að sjálfsögðu að nota áfram. Notkun hagsauka (EVA) tryggir hins vegar að mæling á árangri allra deilda fyrirtækis og mat á öllum nýjum fiárfestingum byggja á einum samkvæmum mælikvarða. Þar sem best lætur í fyrirtækjum sem nota aðferðina minnkar togstreita milli ein- stakra stjórnenda og eininga, milli deilda fyrir- tækisins og milli yfirmanna og undirmanna. Ef vel tekst til leggjast allir á sömu árina og ákvarðanataka verður skýrari og auðveldari. ÁRANGURSTENGING LAUNA BYGGÐ Á HAGSMUNUM HLUTHAFA Einn af hornsteinum hagsauka (EVA) er af- komutengt launakerfi. Stjórnendur verða að fá laun þannig að þeir hugsi og hagi sér eins og eigendur þess sem þeir stjórna. Hlutabréf og hlutabréfavilnanir eru trúlega ofnotuð víða erlendis til að hvetja stjórnendur til ákvarðana sem eru hluthöfum í hag. Með því að byggja árangurstengd laun á hagsauka næst góður árangur þegar til lengri tíma er litið. Lyk- Bættur rekstrarárangur skilar sér ekki nema stjórnendur og aðrir starfsmenn breyti hegðun sinni og viðhorfum í starfi, Þeir þurfa að hugsa. haga sér og fá greitt eins og þeir eigi fyrirtækið. Stjórnendur þurfa að hafa frelsi til að taka ákvarðanir og hagræða, en jafnframt bera ábyrgð á þeim árangri sem næst. Pess vegna er nauðsynlegt að tengja laun stjórn- enda við þann hagsauka (EVA) sem þeir skapa í rekstri fyrirtæk- isins. Með þessu móti haldast í hendur góbur árangur og laun stjórnenda. Hagsauki (EVA) er skilgreindur sem sá hagnaöur sem reksturinn skilar af reglulegri starfsemi að frádregnum kostnaði við alla fjár- bindingu. bæði skuldir og eigið fé. Sóluhagnaður eigna er dæmigerð- ur um lagfæringu niburstöðutalna rekstrarreiknings af hálfu stjórn- enda fyrirtækis þegar reksturinn sjálfur hefur ekki staðiö undir væntingum, Þar sem best lætur í fyrirtækjum sem nota hagsauka (EVA) minnk- ar togstreita milli einstakra stjórnenda og eininga. milli deilda fyrirtækisins og milli yfirmanna og undirmanna. Ef vei tekst til leggj- ast allir á sömu árina og ákvarð- anataka verður skýrari og auð- veldari. Einn af hornsteinum hagsauka (EVA) er afkomutengt launakerfi. Stjórnendur verða að fá laun þannig að þeir hugsi og hagi sér eins og eigendur. Lykillinn er að stjórnendur og starfsmenn fái hluta af aukningu á hagsauka (EVA) milli tímabila, þannig að saman fari bættur hag- ur hluthafa og umbun starfs- manna. Hagsauki (EVA) er í senn aðferða- fræbi við stjórnun. mælikvarði á heildarárangur fyrirtækis og grundvöllur nýrrar hugsunar við uppbyggingu á árangurstengdu launakerfi. Dæmi um árangurstengd laun Reiknaður bónus af viðmiöi Allur neikvæður árangur dreginn fri í búnusbanka Eitt aðaleinkenni árangurstengds launakerfis byggt á hagsauka (EVA) er að það er ekkert þak eða gólfá árangurshluta launa. Náist meira en skilgreindur 100% árangur, þ.e. markmið hluthafa næst, greiðist einungis 1/3 af því sem umfram er til starfsmanna - en 2/3 fara i „bónusbanka" þeirra. illinn að þessari tengingu er að stjórnendur og starfsmenn fái hluta af aukningu á hagsauka milli tímabila, þannig að saman fari bættur hag- ur hluthafa og umbun starfsmanna. Við uppbyggingu á slíku kerfi er nauðsyn- legt að litið sé til nokkura ára (t.d. 5) við mark- miðssetningu um árlega aukningu á hagsauka. Eitt aðaleinkenni launakerfis sem byggt er á hagsauka er að það er ekkert þak eða gólf á ár- angurshluta launa. Náist meira en skilgreindur 100% árangur, greiðist einungis 1/3 af þvi sem er umfram 100%, hitt er sett í „bónusbanka”. Með því að hafa á þennan hátt hvorki gólf né þak og geyma 2/3 af umframbónus mjög góðra ára, er tryggt að einungis sé greiddur bónus fyrir árangur sem heldur til lengdar. Reiknist neikvæður bónus kemur hann til lækkunar á innistæðunni í bónusbanka áður en til útgreiðslu kemur. Ef miklar ffamfarir verða í mældum hagsauka milli ára verður hagsauki þess árs ný viðmiðun gagnvart fram- förum næsta árs. Með því tryggjast þau lang- tímasjónarmið sem skila hluthöfum mestu þar sem einungis er greiddur bónus fyrir framfarir sem halda til lengri tíma. LOKAORÐ Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér þessar aðferðir betur, t.d. á internetinu, www.sternstewart.com þar sem finna má fjölda greina um efnið en einnig eru til aðgengilegar bækur um það. Mikilvægt er í fyrstu að ná góð- um skilningi á aðalatriðunum og þeim breyt- ingum sem þarf að gera á hefðbundnum reikn- ingsskilum við mælingu á hagsauka. FBA hef- ur mjög jákvæða og lærdómsríka reynslu af innleiðslu aðferðanna og hvetur önnur íslensk fyrirtæki til að kynna sér málefnið frekar með bættan hag eigenda sinna að leiðarljósi. B!1 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.