Frjáls verslun - 01.10.1998, Blaðsíða 17
Páll Skúlason, rektor Háskóla Islands,
tekur við gjöfinni frá Axapta-mönnunum,
Einari Ulfssyni, stjórnarformanni Axaþta
á Islandi, með húfu, og Gunnari Birni
Gunnarssyni framkvœmdastjóra í ræðu-
stól. En fyrirtœkið gaf Háskólanum á Ak-
ureyri og Samvinnuháskólanum á Bifröst
einnig Axapta-búnað.
FV-myndir: Geir Olafsson.
STALISTAL
VEGNA ASÍU
□ iðskiptahugbúnaðurinn Axapta var frumsýndur með mikilli viðhöfn í Háskólabíói á
dögunum. Það var fyrirtækið Concorde Axapta ísland ehf. sem stóð að frumsýning-
unni ásamt hugbúnaðarhúsunum Þróun, Tæknivali og Hugi-forritaþróun. Axapta á
Islandi gaf Háskóla Islands, Háskólanum á Akureyri og Samvinnuháskólanum á Bifröst
Axapta-búnað til notkunar við kennslu í þessum skólum - og er gjöfin metín á um 100 millj-
ónir króna. Mikil vinna var við að undirbúa gjöfina og þurftu framleiðendur Axapta ytra, IBM
og Damgaard í Danmörku, að gefa vilyrði fyrir henni enda um stórupphæð að ræða. [£]
Barrie Cheetham, forstjóri mark-
aðssviðs Avesta Sheffield. „Krepp-
an í Asíu hefur lcekkað heims-
markaðsverð á stáli.”
arrie Cheetham, forstjóri
markaðssviðs sænska
stálfyrirtækisins Avesta
Sheffield AB, einu af stærstu
stálfyrirtækjum heims, hélt ræðu
hjá íslensk-sænska verslunarráð-
inu á Hótel Sögu 17. nóv. s.1. Hann
ræddi um áhrif efnahagskreppun-
ar í Asíu á stáliðnaðinn í heimin-
um, en áhrifin lýsa sér í lækkandi
verð og minni eftirspurn eftír stáli.
Efnahagssambandslöndin hafa
á undaníornum árum flutt mikið
út af stáli til Asíulanda en nú hefur
dæmið snúist við og mikið af stáli
er flutt inn tíl Evrópu m.a. frá S-
Kóreu ogTaiwan.
Barrie ræddi síðan um þær að-
gerðir sem gripið hefúr verið til
hjá Avesta Sheffield til að
bregðast við þessum aðstæðum.
Þær felast m.a. í því að starfs-
mönnum samsteypunnar verður
fækkað um nær 1.500 manns á
næstu misserum. 55
Bitruhálsi 2 • 569 1616 Skólavörðustíg 8 • 562 2772
kærkomin gjöf
í sönnum jólaanda
Við bjóðum allar stærðir og gerðir af öskjum
eða gjafakörfum. Þú ákveður stærðina og setur
fram þínar hugmyndir um samsetningu og útlit
og þá upphæð sem þér finnst viðeigandi. Þú getur
bætt í pakkann vínflösku, konfekti, korti eða
því sem andinn blæs þér í brjóst.
Hringdu eða komdu til okkar með óskir þínar
— við útfærum þær á smekklegan hátt.
17