Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1998, Blaðsíða 31

Frjáls verslun - 01.10.1998, Blaðsíða 31
Kolbrún Jónsdóttir, útibússtjóri Islandsbanka í Skútuvogi. „Ég tel að það sé fyrst og fremst hefðin sem ráði þessu; venjan, það hve erfitt er að brjóta uþþ áralangt mynstur í vinnuferli karla og kvenna. “ FV-myndir: Kristín Bogadóttir. ÞÆR KOMAST EKKIÁ TOPPINN! Konur komast ekki á toppinn innan bankakerfisins. Engin kona er bankastjóri - og hefur aldrei veriö. Þeim fjölgar þó sem milli- stjórnendum. Af 226 hæstsettu starfsmönnum bankanna og dótturfyrirtækja þeirra er aðeins 61 kona í stjórnunarstöðum - eða rúmlega fjórðungur. ÞEIM SJÁLFUM AÐ KENNA! Engar konur eru í toppstöðum í bönkunum. Pólitík? Já, segja sumir. Aðrir segja: Þetta er konunum sjálfum að kenna! Þegar Frjáls verslun var að skoða kynjahlutfallið í toppstöðun- um innan bankanna, sem er ekki beysið hvað konurnar varðar eins og sjá má á meðfylgjandi tölum, ritjaði einn viðmælenda upp háskólaárin og minnti á að hún hefði tekið eftir því að prófessor- arnir í viðskiptafræði og hagfræði við Háskóla Islands, sem allir voru karlar á þeim tíma og eru kannski enn, hefðu nær eingöngu bent á strákana þegar þeir voru fengnir til að benda á efnilega nemendur, ekki stelpurnar þó að þær stæðu sig jafn vel í námi eða jafnvel betur en strákarnir. Þetta tíðkaðist á þeim tíma og tíðkast kannski enn þann dag í dag. S9 ASTJÓRI! innan bankanna. Ein þeirra er þó hins vegar sem millistjórnendum í útibússtjórar! KOLBRUN JONSDOTTIR ÍSLANDSBANKA „Það er erfitt að brjóta upp áralangt mynstur í vinnuferli karla og kvenna. Það parf jarðýtur, ein- hverja til að ryðja brautina. “ olbrún Jónsdóttir, útibússtjóri í hjá íslandsbanka, er þó ekki endilega sammála þessu. Kolbrún hefur próf í við- skiptafræði frá Háskóla Islands og starfaði sem fjármála- stjóri í Húsasmiðjunni um átta ára skeið. Hún er nú komin hinum megin við borðið og hefúr stýrt útibúi bankans við Skútuvog og Dalbraut í tæp tvö ár. Þegar Kolbrún var fjármálastjóri í Húsasmiðj- unni var ekki algengt að konur væru í slíkum toppstöðum hjá svo stórum fyrirtækjum þó að það hafi breyst gríðarlega og nokkuð al- gengt sé að konur séu fjármálastjórar eða markaðsstjórar nú. „Húsasmiðjan var hefðbundið karlafyrirtæki, sem selur aðal- lega byggingavörur til iðnaðarmanna. Þetta er fjölskyldufyrirtæki og ég var fyrst um sinn eini utanaðkomandi stjórnandinn en ekki eini kvenstjórnandinn í fyrirtækinu. Eg fann ekki mikið fyrir því að vera kona innan fyrirtækisins. Þegar konur eru í stjórnunar- störfum held ég að nokkuð sé um að þær séu fjármálastjórar. Ég hef auðvitað engar tölur sem sýna hvernig þetta hefur breyst en geri ráð fyrir að þær sýni að karlar séu enn í meirihluta þar enda eru þeir í meirihluta almennt meðal stjórnenda,” segir hún. ÍHALDSÖM í EÐLIOKKAR - Hver heldur þú að sé skýringin á því að engin kona er banka- stjóri og mjög fáar konur hafa komist í toppstöðumar? „Ég held að það sé fyrst og fremst hefðin, venjan, það hve erfitt er að bijóta upp áralangt mynstur í vinnuferli karla og kvenna. Það þarf jarðýtur, einhverja til að ryðja brautina og sýna að þetta er hægt,“ segir Kolbrún og bendir á að enginn segi í dag að kona geti ekki verið for- seti eða borgarstjóri þó að það hafi kostað umræður og jafnvel átök á sín- um tíma. “Yið erum í eðli okkar svo íhaldssöm.” - Finnurðu fyrir því meðal starfs- systra þinna að þær haíi áhuga á þvi að komast áfram í ábyrgðarstöður? „Innan sem utan bankanna hafa konur áhuga á því að komast í ábyrgðarstöður en ég tel að það sé meira rætt um þá tilhneigingu að konur sækist ekki eftir ábyrgðar- stöðum. í gegnum mín störf á vinnumarkaðnum hef ég orðið vör við að karlmenn sækjast ekki eftir ábyrgðarstörfum. Það vilja ekki Rúmlega fjórðungur rb Af 226 hœstsettu starfy- ZTT bankanna o8 dotturfyrirtœkja þeirra EjU a^ns 61 konur * stlornunarstöðum númlega fjórðungur eða 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.