Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1998, Síða 21

Frjáls verslun - 01.10.1998, Síða 21
FORSÍÐUGREIN er því mikið lagt á hvern og einn, þar standa menn undir merkjum þrátt fyrir óguðlegt álag. Eg sæki ráð til þessa fólks.“ MAÐURÁ MANN En hvernig lýsir Haraldur Ingibjörgu sem stjórnanda og stjórnmálamanni? Haraldur: „Hún er heiðarleg og berst þannig fyrir hugsjónum sínum. Sem stjórnmálamaður er styrkleiki hennar það sem kallað er maður á mann. Hún er viljaföst og hefur geysilegan metnað fyr- ir sinn málaflokk. Hún á afar auðvelt með að vinna með fólki og er sjálf geysilega vinnusöm. Hún ræktar sitt fólk og er vön að hugsa vel um þá sem hún tekur að sér.“ AÐ HUGSA FRAM í TÍMANN Hvað lærðir þú af Haraldi sem stjómanda? Ingibjörg: „Eg lærði af honum að gera langtímaáædanir, hann hugsar alltaf 10 ár fram í tímann. Eg hef stundum sagt að ég hefði aldrei komist í gegnum þetta ráðherraverkefni ef ég hefði ekki verið gift útgerðarmanni í öll þessi ár. Þó að á mótí blási má ekki láta það hafa áhrif á þau markmið sem maður hefur.“ Haraldur: „í mörg ár hefur það verið stefna hjá HB að hafa skipuritið eins flatt og hægt er. Yfirstjórnandi verður að geta vikið sér frá og treyst sínum næstráðendum fyrir daglegri stjórn.“ Ingibjörg: „Það að vinna í heilbrigðisráðuneytinu getur minnt á að vinna á bráðadeild. Það kemur sér oft vel að hafa unnið á slíkri deild. Það kemur allt í einu upp mál sem þarfnast úrlausnar strax og þá getur vel skipulögð dagskrá heils dags þurft að víkja." TÚKALL EÐA TOGARI En hvernig lýsir Ingibjörg Ilaraldi sem stjórnanda? Ingibjörg: „Haraldur er afskaplega rólegur og yfirvegaður og seinþreyttur til vandræða. Eg held að honum endist vel dagurinn því hann er ekki með neitt óþarfa þras og tuð. Hann hefur mikla yfirsýn yfir stórt og smátt í fyrirtækinu og er alltaf sannfærður um að hann sé að taka réttar ákvarðanir. Honum líður illa ef hann er ekki með stórframkvæmdir í sjónmáli. Eg get sagt smá sögu af honum sem mér finnst lýsa honum afar vel. Þegar við vorum að undirbúa kaupin á fyrsta skuttogaran- um vorum við hálfgerðir krakkar, rétt rúmlega tvítug, og fannst við vera að færast mikið í fang. Þegar komið var að þvi að sækja skipið til Noregs fórum við til Reykjavíkur og þurftum að koma við hjá endurskoðanda fyrirtæk- isins. Þetta var á laugardegi og ég var að fara setja pening í stöðu- mælinn þegar Haraldur stoppaði mig af og minnti mig á að það væri ókeypis á laugardögum. Þá kostaði túkall í stöðumæli, minn- ir mig. Svona er hann. Hann er alltaf með alla myndina í höfðinu, hvort sem það er túkall eða togari. Hann er í senn bæði stórtæk- ur og sparsamur." Haraldur: „Eg tel að ég hafi lært nýtni og sparsemi af ömmu minni og afa. Amma bjó við afar góðan fjárhag en var svo nýtin og sparsöm að hún geymdi meira að segja hvern bréfpoka ef nýta mætti hann aftur.“ AFIKENNDI MÉR MARGT Haraldur Böðvarsson var 17 ára 1906 þegar hann hóf eigin rekstur, Sturlaugur sonur hans var 21 árs þegar hann fór að starfa við hlið föður síns og Haraldur var einnig 21 árs þegar hann sett- ist við hlið föður síns. Hvernig lærðir þú stjórnun af föður þínum ogafa? Fiskimjölsverksmiðja HB á Akranesi hejur verið endurbyggð. Myndin er tekin í verksmiðjunni og lengst til vinstri er Haraldur Sturlaugsson, þá Sigursteinn Hákonarsson, rajvirki og þekktur dœgurlagasöngvari á árum áður með Dúmbó og Steina. Við hlið hans er Björn Jónsson verkstjóri og lengst til hægri er Sturlaugur Sturlaugsson aðstoðarjor- stjóri. Haraldur í brúnni á Höjrungi IIIAK 250. Nú stendur fyrir dyrum mikil endurnýjun á nótaskiþaflota HB. Haraldur: „Mér verður æ betur ljóst að þeir báðir höfðu mikil áhrif á mig, sérstaklega afi minn en ég var mjög handgenginn hon- um. Eg fór tíu ára með afa norður til að fylgjast með síldarvertíð og kynntist lífinu á Siglufirði. Eg fór með á sjó Höff ungi, einum af bátum HB. var leiddur gegnum bæinn þegar slagsmálin stóðu sem hæst og lögreglumenn voru önnum kafnir við að koma óeirðaseggjum í grjótið. Minn verndari á þessu ferðalagi var vinur minn Bjössi á Bjargi, háseti á Höfrungi. Þegar ég var við nám í Englandi 16 og 17 ára gamall skrifaði afi mér í hverri viku. í bréf- unum lýsti hann nákvæmlega aflabrögðum upp á kíló, hvað hver bátur var að fiska, hverju var skipað út og hvaða skip tóku farm- inn. Þessi bréf hef ég varðveitt og þau eru mér fjársjóður. Eg byijaði að vinna hjá Decca Radar í Englandi eftir gagn- 21

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.