Frjáls verslun - 01.10.1998, Side 24
Haraldur og Sturlaugur, bróðir hans, standa við gluggann í kaffistof-
unni. Yfir kaffibollunum sitja þeirra nánustu samstarfsmenn á skrif-
stofu HB.
upp. Ég vissi vel að ég væri að taka að mér afskaplega erfitt starf
sem hefur reynst mér afar ögrandi en jafiiframt gefandi.
Það sem hefiir gefið mér kraft í þessu starfi eru jákvæð kynni
af fólkinu sem vinnur við heilbrigðismál. Heilbrigðisráðuneytið á
ekki að þurfa að vera óvinsælt ráðuneyti því hér á landi býr besta
heilbrigðisstarfsfólk á byggðu bóli og þjónustan er í samræmi við
það. Ég held að það sýni best hversu góða þjónustu við veitum að
þegar fólk er spurt hvar í veröldinni það vildi vera statt yrði það
veikt er svarið undantekningarlaust á Islandi."
VAR FYRSTA ÁRIÐ ERFIÐARA?
Það hefixr aðeins verið minnst á fyrsta árið þitt á ráðherrastóli.
Var það erfiðara en hin sem á eftir hafa komið?
Ingibjörg: „Fyrsta árið var nauðsynlegt að draga úr útgjöldum
vegna stöðu þjóðarbúsins, sem er alltaf erfitt í þessum viðkvæma
málaflokki. En nú hefúr staða þjóðarbúsins styrkst og því er svig-
rúmið allt annað. Hér verða menn líka að muna að tvennt setti svip
sinn á heilbrigðismálin sumarið 1995.1 fyrsta lagi uppnám í heil-
brigðiskerfinu og í öðru lagi voru harðar deilur innan heilbrigðis-
ráðuneytisins eftir hörð átök sem tengdust ráðuneytinu kjörtíma-
bilið á undan. Við þetta bættist svo það að Páll Sigurðsson þáver-
andi ráðuneytisstjóri var að láta af störfum fýrir aldurs sakir og
margir sóttust eftír starfi hans, þar á meðal nokkrir starfsmenn
ráðuneytísins sjálfs. Ég tók við starfinu um vorið og í desember
var ráðinn nýr ráðuneytísstjóri sem ekki var úr hópi ráðuneytis-
starfsmanna. Þessi niðurstaða varð svo tíl þess að nokkrir lykil-
menn í ráðuneytinu hættu vegna þess að þeir fengu ekki starfið.
Ég tók við heilbrigðiskerfi og ráðuneyti í uppnámi. Þessar svipt-
ingar voru kannski það erfiðasta því það má segja að ég hafi þurft
að byija á þvi að byggja upp nýtt ráðuneyti."
Hverjir eru þínir helstu ráðgjafar og samstarfsmenn?
Ingibjórg: „Það væri ósanngjarnt að nefna einn öðrum fremur
því ég leita tíl fagfólks í ráðuneytinu á hveiju sviði fýrir sig. Ég
kalla á fólk eftir, því sem ég þarfnast hveiju sinni. Ég er afskap-
lega heppinn með aðstoðarmann þar sem er Þórir Haraldsson og
Davíð Á Gunnarsson ráðuneytisstjóri er náinn samstarfsmaður
minn. Ég leita einnig óhikað tíl fagfólks á stofnunum þegar svo
ber undir“
Færðu stuðning fiá samráðherrum þínum?
lngibjórg: „Ég hitti einu sinni kollega mína, heilbrigðisráðherra
annarra landa á ráðstefnu í Slóveníu. Þar lýstí einn þeirra starfinu
svo að þrennu mætti maður aldrei gleyma: I fyrsta lagi er maður
ekki dauður heldur lifandi. I öðru lagi eru vitleysurnar sem við
gerðum í dag hlægilegar miðað við þær sem við gerum á morgun.
Og í þriðja lagi ekki vera að eyða tíma í að tala við hina ráðherrana
því þeir hafa ekki kraft til að setja sig inn í þín málefni. Þessi um-
mæli hans féllu greinilega í mjög góðan jarðveg. An gamans, þá
vinn ég náið með fjármálaráðherra."
EINKAGEIRINN OG HIÐ OPINBERA
Er ekki mikill munur á þvi að reka einkafyrirtæki og vera í op-
inberum rekstri?
Ingibjörg: „Það er auðvitað mjög mikill munur. Ef við ætlum,
svo dæmi sé tekið, að sameina tvær sjúkrastofnanir þá koma allir
faghóparnir í halarófu: Læknar, hjúkrunarfólk, verkalýðsfélög og
fagfélög, gagngert til þess að tjá sig um það hvað þessi ráðstöfun
sé vitlaus og lýsa því hvernig hún muni leiða af sér neyðarástand
innan tveggja daga.
Ef Haraldur hinsvegar ætlaði að sameina tvær einingar innan
fyrirtækisins þá væri mjög ólíklegt að verkstjórinn eða starfsfólk-
ið færi að tjá sig um það opinberlega að nú væri forstjórinn loks-
ins orðinn óður. Það er ekki víst að starfsfólkið sé ánægt en það
lýsir þá óánægju sinni við yfirmennina en ekki opinberlega. Aginn
er annar hjá hinu opinbera en í einkageiranum."
Fínnst þér þá jákvætt að koma einkarekstri að í heilbrigðis-
þjónustunni?
Ingibjörg: „Mér finnst grundvallaratriði að allir séu jafnir gagn-
vart heilbrigðiskerfinu og enginn getí keypt sig ffam fyrir næsta
mann. Það er engin heilög kýr hvort heilbrigðisþjónustan er
einkarekin eða ekki. Einkarekstur er ekki óþekktur í heilbrigðis-
geiranum og ekkert athugavert við að auka hann meðan ekki er
gengið gegn þessu aðalsmerki að allir séu jafnir.“
ER GAMAN í VINNUNNI?
Hver verða stóru verkefiiin hjá heilbrigðisráðherra eftír kosn-
ingar?
Ingibjörg: „Við verðum að ná fleiri læknum heim til íslands og
tryggja grunnþjónustu í heilbrigðiskerfinu með aukinni heilsu-
gæslu. Sú vinna er hafin. Ég vil sjá meiri samvinnu og samnýtingu
í kerfinu. Til þess að fjöldinn fái þá þjónustu sem hann þarf verð-
um við alltaf að vera á tánum og reyna að leita hagkvæmustu
lausna.“
Hvað finnst þér erfiðast í heilbrigðismálunum?
Ingibjörg: „Þegar skjólstæðingar heilbrigðisþjónustunnar fá
ekki þá þjónustu sem ég tel að þeir ættu að fá með réttu."
Er Alþingi skemmtilegur vinnustaður?
Ingibjörg: „Það er ekki fjölskylduvænn vinnustaður, svo mikið
er víst, tarnirnar koma á versta tíma. Sá sem er á þingi kemur t.d.
aldrei heim á aðventunni og þess sakna ég. Ég er ekki viss um að
ég myndi meta Alþingi sem skemmtilegan vinnustað, það er
margt sem mér dettur í hug fyrr en það. Þarna er mikil barátta
manna á milli og það setur sinn svip á andrúmsloftið."
PRESSAN FRÁ HLUTHÖFUNUM
Einn af liðsmönnum þínum, Viðar Karlsson aflaskipstjóri,
sagði í viðtali einu sinni að kvótakerfið hefði útrýmt aflakóngum
og dregið úr samkeppni milli skipstjóra. Er samkeppni milli sjáv-
arútvegsfyrirtælqa?
Haraldur: Já, hún er talsverð því það er í eðli Islendinga. Sam-
keppnin er alls ekki dauð hvað sem kvótakerfinu líður. Verðbréfa-
24