Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1998, Page 33

Frjáls verslun - 01.10.1998, Page 33
ÁSMUNDUR STEFÁNSSON ÍSLANDSBANKA „Ég hefenga skýringu á þessu, hvorki einfalda né flókna. Innan bankanna er þó meira aflangskóla- gengnum karlmönnum en konum. “ Bg hef enga skýringu á þessu, hvorki einfalda né flókna, en ég get kannski dregið fram eitthvað sem getur skýrt þetta að einhveiju marki. Innan bankanna er tíl dæmis meira af langskólagengnum karlmönnum en konum. I bönkunum eins og annars staðar eru konur háðari sinni fjölskyldu og sækja þvi ekki eins fast að komast áfram í erfiðari verkefni og karlarnir,” segirÁsmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri í Islandsbanka. Ásmundur bætir við að ef til vill eigi konur eríiðara með að falla inn í hópinn í bönkunum þar sem karlmenn séu í yfirgnæfandi meirihluta í stjórnunarstöðum. Þetta geti verið truflandi fýrir þær. Þá telur hann hugsanlegt að karlmennirnir ómeðvitað hleypi kon- unum ekki að þó að vitanlega sé ákvörðun um ráðningu ávallt tek- in á hlutlægum grunni. Þarna getí verið á ferðinni ómeðvituð til- hneiging hjá karlmönnum til að ráða stjórnendur af sama kyni.“ Innan íslandsbanka eru bankastjóri og aðrir í æðstu stöðum Asmundur Stefánsson, einn framkvœmdastjóra Islandsbanka og stað- gengill Vals Valssonar bankastjóra. „I bönkunum, eins og annars stað- ar, sækja konur það ekki eins fast að komast í erfiðari verkefni. “ sér meðvitaðir um að kynjahlutfallið í æðstu stjórnunarstöðum er ekki jafnt. Ásmundur segir að ekki virðist vera þar launamunur fýrir sömu störf en hins vegar sé munurinn augljós þegar skoðað sé hvaða störfum karlar og konur gegni, þótt ekki sé það meiri munur en í öðrum bönkum. Vilji sé innan íslandsbanka tíl að breyta þessu hlutfalli. Þá bendir hann á að kynjahlutfallið í stjórn- unarstöðum hjá VIB sé mun betra en annars staðar í bankanum. Þar er aðstoðarffamkvæmdastjórinn til dæmis kona. St Eru peningarnir að skila sér? © © ©© © ® GÍRÓ GÍRÓ GÍRÓ GÍRÓ GÍRÓ Kynntu þér nýjan bækling um notkun gíróseðla í bönkum, sparisjóðum og á pósthúsum. Samstarfsnefnd um gíróþjónustu 33

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.