Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1998, Page 39

Frjáls verslun - 01.10.1998, Page 39
Evrópska efnahagssvæðió berast hingaö tilkynningar í gegnum RAPE kerfið frá Brussel ef hættuleg vara hefur fundist á markaði á EES svæðinu. Markaðsgæslu- deild bregst þá strax vió með því að at- huga hvort viðkomandi vara er á markaði hér á landi. Reynist svo vera er gefin út til- kynning til aðvörunar fyrir neytendur og ráðstafanir gerðar til að taka vöruna af markaði. Það sama á við um innlendar kvartanir eða ábendingar, sem berast frá einstaklingum eða fyrirtækjum vegna hættulegrar vöru á markaði. Faggildingarsvið Faggildingarsvið sér um faggildingu skoðunarstofa, prófunarstofa og vottunar- stofa þannig að starfsemi þeirra sé viður- kennd á hinu Evrópska efnahagssvæði. Hún er í forsvari fyrir íslands hönd á sviði faggildinga. Allir sem þess óska og upp- fylla ákveðnar kröfur geta látið faggilda starfsemi sína. Öðrum er skylt að láta fag- gilda starfsemina, þar á meðal eru stofn- anir og fyrirtæki sem framkvæma lög- bundnar prófanir eða eftirlit eða votta að vara, ferli eða þjónusta, svo og hæfni og mssnmmm... 39 Úr rannsóknardeild. Haukur Arsœlsson rannsakar hvers vegna kviknaði í útvarpi. Faggildingarsvið Forstöðumaður erÁrsæll Þorsteinsson • Faggilding á prófunar-, vottunar- og skoðunarstofum samkvæmt ÍST EN 45000 stöðlunum i • B-faggilding á verkstæðum • Ráðgjöf og samskipti við stofnanir og stjórnvöld þekking starfsmanna, uppfylli lögbundnar kröfur. Þannig faggildir Löggildingarstofa stofnanir og fyrirtæki, meðal annars starf- semi skoðunarstofa sem annast eftirlit á ýmsum sviðum, svo sem í sjávarútvegi og ökutækjaskoðun. í faggildingunni felst staðfesting á hæfni viðkomandi aðila til aó vinna tiltekin verkefni. Þrjár skoðunarstof- ur hafa hlotiö faggildingu í sjávarútvegi, þrjár í ökutækjaskoðun, þrjár á rafmagns- sviði og ein á sviði markaðseftirlits. Ein vottunarstofa og ein prófunarstofa hafa hlotið faggildingu og tvær prófunarstofur bætast væntanlega við fyrir árslok 1998. Þá hafa um það bil 50 verkstæði hlotið B- faggildingu. Þess má geta að Löggildingarstofa er með samstarfssamning við sænsku fag- gildingarstofuna og fær þannig aðstoð og mat á störfum sínum hjá henni. Löggildingarstofa sinnir neytenda- fræðslu af miklu kappi bæði með útgáfu bæklinga, sem veita fólki margvíslegar leiðbeiningar, sem og með auglýsinga- starfsemi. Kynningarefnið er fjölþætt og nær allt frá verksviði og tilhögun raf- magnseftirlits og skoðunarreglna Löggild- ingarstofu til kynningar á reglum um orku- notkun heimilistækja, jólaljósa og hitapúða og teppa. Þá hefur komið út bæk- lingur um neysluveitur í rekstri og sjón- varpsmynd um neysluveitur í rekstri. Gefið hefur verið út kynningarspjald um hvernig leikföng barna eiga að vera, blað um ör- yggi leikfanga og blað um skýringu á CE- merkinu en það er til staðfestingar á því að vara fullnægi öllum skilgreindum grunn- kröfum sem gerðar eru til framleióslunnar sem merkið er á. Allt kynningarefni má fá hjá Löggildingarstofu í Síðumúla 13. Löggildingarstofa Sfðumúla 13-108 Reykjavík Sfmi: 568 1122 - Fax: 568 9256 & 568 5998

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.