Frjáls verslun - 01.10.1998, Qupperneq 41
FERÐAÞJONUSTA
gefast upp þótt við værum búnir að eyða
óhemju peningum í þetta. I holu númer 23
hittum við á mjög góða holu sem var svo
heit að það þurfti að setja á hana skilvindu
til að skilja vatnið frá gufunni og hún gefur
af sér um 50 sekúndulítra af 100 stiga heitu
vatni.
Upp úr þessu stofnuðum við saman
hitaveitufélag 10 bændur og leiddum vatn
á alla bæina auk þess sem við seljum sum-
arbústaðabyggðinni talsvert vatn og fer
það vaxandi. Holan góða er einnig látin
framleiða rafmagn og mætti áreiðanlega
gera meira af því ef menn vildu.
Allir hluthafar fengu úthlutað einum
hlut sem þýddi hálfan sekúndulítra af heitu
vatni. Síðan máttu menn kaupa fleiri hluti
og ég á orðið níu hluti.“
I landi Björns eru um 120 sumarbústað-
ir sem eru ýmist í eigu einkaaðila eða fé-
lagasamtaka. Þar að auki eru í nærliggj-
andi löndum bústaðir stórra félagasam-
taka á borð við VR, BHMR og fleiri svo á
þessu svæði gætu verið nokkur hundruð
manns á góðum degi.
ERUM ÓDÝRARIEN HITAVEITA
REYKJAVÍKUR
„Það má segja að með tilkomu heita
vatnsins haii allt breyst. Eftirspurnin eftir
bústöðum jókst og hitaveitan fór að hafa
tekjur. Við seljum tonnið á 30 krónur ,sem
þætti ódýrt í Reykjavík, en það að hafa hita
í bústöðunum er forsendan fyrir því að fólk
vill vera hér á veturnar. Allan veturinn er
meira og minna fullbókað í flesta félagsbú-
staðina og margir eru í einkabústöðum."
Það var árið 1989 sem heita vatnið
fannst og síðan hefur Björn staðið í
stöðugri uppbyggingu sem miðar öll að því
að hafa sem mesta og fjölbreyttasta þjón-
ustu og afþreyingu fyrir ferðamennina.
Fyrst kom lítál verslun, sem hann kallar í
gamni kaupfélagið, þar sem séð er fyrir
brýnustu nauðsynjum. Síðan kom sund-
laugin, sem borið hefur hróður staðarins
víða, og loks var byggður veitingastaður
þar sem 250 manns geta skemmt sér við
bestu aðstæður.
„Þetta hefur orðið mjög vinsælt og nú
er bókað í þetta meira og minna allar helg-
ar ársins. A tyrstu árunum eftír að þetta var
opnað unnum við hjónin meira en við höf-
um nokkurn tímann gert en nú höfum við
leigt veitíngareksturinn hér til Jóhannesar
Stefánssonar í Reykjavík sem er einn sá
traustasti í greininni og reynslan af fyrsta
árinu lofar mjög góðu.
Það verður stöðugt algengara að fólk
Björn ásamt eiginkonu sinni, Ágústu Ólafsdóttur, sem stjórnar Útlilíð með honum.
komi hingað og haldi árshátíðir. Það kem-
ur seinnipart dags austur, bregður sér í
sund eða golf eða á hestbak og borðar síð-
an saman um kvöldið og skemmtír sér og
fer svo í bæinn aftur. Helst vildi ég geta
boðið öllum gistingu."
BYGGÐISUMARHÚS FYRIR
MJÓLKURKVÓTANN
Það stefnir reyndar leynt og ljóst í það
að sá draumur Björns rætíst. A besta stað
við þjónustumiðstöðina í Uthlíð standa sex
lítil hús sem hvert getur hýst sex nætur-
gestí. Það sjöunda er í smíðum og verður
byggði fyrstu tvo bústaðina. Þá var rekstur-
inn hér orðinn alltof mikill tíl þess að vera
með mjólkurbú meðfram. Það er krefjandi
starf að vera mjólkurbóndi og maður verð-
ur að gefa sig allan í það. Það er líka erfið
vinna og ekki fyrir gamla menn eins og
mig.“
FJÖLSKYLDA í FERÐAÞJÓNUSTU
Um reksturinn í Uthlíð er starfrækt
hlutafélag sem er í eigu Björns, konu hans,
Agústu Olafsdóttur, og barna þeirra; Olafs,
hæstaréttarlögmanns á Selfossi, Hjördísar
íslenskufræðings, sem vinnur á Stöð 2, Sig-
HRAKSPÁRNAR RÆTTUST EKKI
„Menn sögðu aö hér yröi látlaust fyllirí og ágangur allan sólarhringinn. Staöreyndin er sú
að hingað kemur aðallega fjölskyldufólk til að njóta náttúrunnar og hvíla sig. Þetta eru
bestu viðskiptavinir sem hægt er að hugsa sér og aldrei hafa verið nein vandræði hér.“
sérstakt ástarhreiður, lítill bústaður sem
stendur svolítið frá hinum. Þar verður rúm
fyrir tvo, yfirbyggður lúxuspottur með
heitu vatni og frábært útsýni. Þetta sér
Björn fyrir sér sem athvarf fýrir elskendur
á öllum aldri og á að verða tilbúið næsta
sumar.
„Það má eiginlega segja að þessir bú-
staðir séu byggðir fyrir mjólkurkvótann.
Eg var með stórt mjólkurbú árum saman
og var kominn með 126 þúsund lítra kvóta
en 1994 hættí ég því, seldi kvótann og
ríðar dýralæknis, sem býr á Hólum í Hjalta-
dal, og Jónínu, sem hefúr lokið námi í
markaðsfræði. En hvernig er verkaskipt-
ingin?
„Agústa, kona mín, er yfir hinum dag-
lega rekstri hér, launamálum, starsfmanna-
haldi og fleiri þáttum. Hér vinna 13 starfs-
menn á sumrin en við reynum að halda
þessu gangandi á veturna. Olafur, sonur
minn, sér um alla samningagerð og þess
háttar en ég hef umsjón með framkvæmd-
um og legg fram mínar hugmyndir um út-
ÍBÚAFJÖLDINN FER í N0KKUR ÞÚSUND MANNS Á SUMRIN
í landi Björns eru um 70 sumarbústaðir sem eru ýmist í eigu einkaaðila eða félaga-
samtaka. Þar að auki eru í nærliggjandi löndum bústaðir stórra félagasamtaka á borð
við VR og BHMR. Á góðum sumardegi eru nokkur þúsund manns á svæðinu
- og leggur það grunninn að veldi Björns bónda.
41