Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1998, Síða 49

Frjáls verslun - 01.10.1998, Síða 49
MARKAÐSMÁL og: Ástríða, fjölskyldan, fegurð, list, tækni, menn- ing, daður, langt brauð, rauðir drykkir, matur, sveitin, stefnumót, róman- tík, kvikmyndir, sterkt kaffi, heimspekileg um- ræða, fallegar línur, tíska, vellíðan og Renault ÍSLAND EINS OG FRAKKLAND Þessi auglýsingaher- ferð, sem fékk ísland til þess að líta út eins og Frakkland, var gerð af auglýsingastof- unni Gott fólk. Það voru þeir Sveinn Líndal, Hjörvar Harðarson og Börkur Arnarson sem voru helstu hugmyndasmiðirnir við gerð hennar. Það var síðan hinn þekkti aug- lýsingaleikstjóri, Styrmir Sigurðsson, sem stýrði persónum og leikendum við hinar eig- inlegu tökur. Framleiðandi var Sjónarspil, með Fahad Fal Jabali í broddi fylkingar. „Þetta hófst í byrjun ársins þegar gerð var könnun meðal stórs hóps fólks sem ný- lega hafði keypt bíl og reynt að ráða í hvert viðhorf þess til hinna ýmsu bíltegunda væri,“ sagði Friðrik Bjarnason markaðsstjóri B&L en það fyrirtæki flytur inn Renault „Það kom í ljós að Renault fékk mun já- kvæðari viðbrögð meðal fólks en fyrirfram haíði verið reiknað með. I framhaldinu var ákveðið að fjárfesta í auglýsingaherferð sem myndi styrkja þá traustu ímynd sem við urð- um varir við að Renault hafði.“ Fulltrúar B&L settust á rökstóla með hugmyndasmiðum Góðs fólks og það kraumaði í pottinum fram eftir sumri en þá voru menn komnir niður á útfærslu sem þeir töldu að myndi ganga og allir voru sáttir við. „Það sem fyrst og fremst vakti fyrir okk- ur var að skapa stemningu eða hughrif og höfða til tilfinninga fólks en ekki eyða tíman- um í að telja upp aukahluti eða fara í saumana á tækniatriðum. Við gengum út frá því að það að keyra franskan bíl væri slík upplifun að þér fyndist eins og þú værir þeg- ar kominn hálfa leið til Frakklands, eða lengra, þegar þú værir kominn undir stýri. Það var þessi tilfinning sem við vildum koma á framfæri," sagði Sveinn Undal sem var einn þeirra sem bjuggu til auglýsinguna. Það er alltaf erfitt að finna fólk sem hent- ar vel í auglýsingar og í þessu tilviki vildu menn forðast þekkt andlit. Þegar á hólminn var komið reyndist nokkuð auðvelt að finna tökustaði sem báru alþjóðlegt eða franskt yfirbragð. Oft þurfti aðeins einn eða tvo smáhluti í leik- myndina til að gera Reykjavík franska. „Þessi herferð er í fullum gangi og mark- miðið er í fyrstu atrennu að styrkja imynd bílsins og síðan, þegar upplifun fólks af Renault er orðin trausþ getum við snúið okk- ur að því að auglýsa tækniatriði," sagði Sveinn Undal. Sveinn taldi það skoðun manna sem að þessu verkefni hefðu komið að margt af þeim aukahlutum sem lögð væri áhersla á að auglýsa í nútfmabílum væri fólk farið að taka sem sjálfsagðan hlut og því þyrfti að leika á aðra strengi en þá að viðkomandi bíll væri með ABS hemlakerfi, líknarbelgi eða álfelg- ur. HVAÐ VILTU SEGJA MEÐ ÞVÍ AÐ KAUPA RENAULT „Við teljum okkur hafa fengið góða svör- un nú þegar,“ sagði Friðrik Bjarnason, mark- aðsstjóri B&L, sem vildi þó taka fram að end- anlegar tölur lægju ekki fyrir fyrr en um mitt næsta ár. Framleiðsla auglýsingaherferðar eins og þessarar kostar á bilinu 3 til 3,5 milljónir en síðan er eftir allur birtingarkostnaður. Að sögn Friðriks er erfitt að meta heildarkostn- að að svo komnu máli en að mati blaðsins getur hann orðið 4-6 milljónir. Heildarkostn- aður við gerð og birtingu slíkrar herferðar getur því hæglega farið í tæpar 10 milljónir króna. „Það sem við viljum festa í huga fólks er að með þvi að kaupa sér Renault sé það að gefa ákveðna yfirlýsingu. Það er að segja ákveðna hluti um sjálft sig með því að velja þennan bíl frekar en einhvern annan. Þarna vega hlutir eins og fágun, vandaður stíll og menning þungt á metunum og við teljum að það náist skýrt firam í þessum auglýsingum." S5 /v y REWAUU Sécwké 1 Þkiganc _ A V5' — - REWÁlIU ! Þessar blaðaauglýsingar fylgdu í kjölfar- ið á sjónvarþsauglýsingunum. Þœr sýna svo ekki verður um villst að það er auð- velt að láta Island líta út eins og Frakk- land, ef þess þarf. HVAÐ ER NÚ ÞETTA? Ástríöa, fjölskyldan, fegurð, list, tækni, menning, daður, langt brauð, rauðir drykkir, matur, sveitin, stefnumót, rómantík, kvikmyndir, sterkt kaffi, heimspekileg umræða, fallegar línur, tíska, vellíðan og Renault. PERSONUR OG LEIKENDUR: Hugmynd og handrit: Hjörvar Harðarson og Börkur Arnarson Leikstjórn og handrit: Styrmir Sigurðsson Samskipti: Sveinn Líndal og Friðrik Bjamason Framleiðandi: Sjónarspil Framkvæmdastjórn: Fahad Falur Jabali Kvikmyndataka: Hálfdán Theódórsson Leikmynd: Stígur Steinþórsson Búningar: Hrönn Traustadóttir Hár og förðun: Helga Bjartmars 49

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.