Frjáls verslun - 01.10.1998, Page 60
ItjÁRMÁL
SÖGULEGAR VIKUR AÐ BAKI
Aö þessu sinni er þaö Siguröur Einarsson, forstjóri Kaupþings, sem skrifar um
veröbréfamarkaöinn. Hann segir sögulegar vikur aö baki - og markaöinn betri!
ndanfarnar vikur hafa verið sögu-
legar á innlendum hlutabréfa-
markaði. Að baki eru nokkur
hlutafjárútboð, þeirra á meðal hið stærsta í
sögu innlends hlutabréfamarkaðar. Gengi
hlutabréfa hefur sveiflast verulega, m.a.
vegna hins mikla framboðs bréfa, en það
sem er kannski hvað markverðast er að við
stöndum frammi fyrir gjörbreyttum hluta-
bréfamarkaði í dag. Þá hafa erlendir fjár-
festar loks látið á sér kræla á innlendum
hlutabréfamarkaði, nokkuð sem ég tel að
við eigum eftir að sjá mun meira af á kom-
andi misserum.
Mikið framboð hlutabréfa nú á fyrstu
vetrarmánuðum hafði nokkur áhrif á verð
hlutabréfa á eftirmarkaði. Áhugi fjárfesta á
markaðnum dvínaði og virtíst sem stærri
fjárfestar sem og einstaklingar héldu
nokkuð að sér höndum þar tíl að þessum
útboðum afstöðnum.
Greinilegt er að markaðurinn vanmat
getu innlendra ljárfesta til að taka við svo
stórum útboðum á jafn skömmum tíma.
Fyrirfram hafði verið talið að þessi útboð
myndu standa nokkuð í markaðinum og fyr-
ir bragðið dró nokkuð úr eftirspurn á eftir-
markaði. Raunin reyndist hins vegar allt
önnur og það er kannski ekki síst athyglis-
vert vegna þess að útboðin kláruðust nær
alveg án aðkomu stærstu fagfjárfestanna.
Til dæmis var gert ráð fyrir því að umtals-
verður hluti útboðs Fjár-
festíngarbankans
W myndi flytjast yfir í til-
WM boðshluta útboðsins
en niðurstaðan varð
hins vegar hið gagn-
stæða. Gríðarlegum-
ffameftir-
spurn
varð í út-
ORÐIÐ HEFUR:
Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings
boðinu og þegar áskriftarhlutanum var lokið
var ljóst að ekkert myndi standa eftir af út-
boðinu fyrir tílboðshlutann. Aður en útboð
á hlutabréfum FBA fór fram hafði Lands-
banki Islands aukið hlutafé sitt um 15% og
var metþátttaka í útboðinu og þar varð
einnig að skerða hámarkshlut all nokkuð.
Hlutafjárútboð Skýrr sem kom strax í
kjölfarið sýndi sömu merki. Þrátt fýrir að
útboðið væri mun minna að umfangi
skráðu tæplega 8.000 einstaklingar sig fyr-
GJÖRBREYTTUR MARKAÐUR
Við stöndum frammi fyrir gjörbreyttum
hlutabréfamarkaði. Til þessa hefur mark-
aðurinn verið nokkuð einsleitur og hafa
sjávarútvegsfyrirtæki haft mikið vægi.
Þetta er að breytast með tilkomu fjár-
mála- og þjónustufyrirtækja á VÞÍ.
ir hlut í Skýrr og varð niðurstaðan sú að
eftirspurnin var u.þ.b. 13 sinnum meiri en
ffamboð bréfa. I ljósi þessa þarf vart að
hafa miklar áhyggjur af getu markaðarins
til að taka við þeim hlutafjárútboðum sem
enn er ólokið ef þau verða rétt verðlögð.
Eftirmarkaður með hlutabréf hefur
heldur ekki látið á sér standa í kjölfarið.
Eftir heldur rislitíð haust má segja að
markaðurinn hafi hrokkið upp af værum
svefni og hefur úrvalsvísitala VÞÍ nú
hækkað um tæp 6% á aðeins tveimur vik-
um (m.v. 24. nóvember) eftir að hafa lækk-
að nær stöðugt ífá miðjum ágúst. Frá ára-
mótum hefur vísitalan hins vegar hækkað
um rúm 8%. Skýring þessarar hækkunar
nú er þríþætt að mínu mati.
I fyrsta lagi tel ég að markaðurinn hafi
gert sér grein fyrir því að eftirspurn eftir
hlutabréfum hafi verið mun meiri en áður
var talið og því væri vart ástæða til að ótt-
ast frekari lækkanir á gengi hlutabréfa ein-
göngu vegna einhverrar ládeyðu á mark-
aðnum.
I öðru lagi er líklegt að þær lækkanir
sem á undan höfðu gengið hafi valdið því
að hlutabréf væru orðin ákjósanlegur fjár-
festíngarkostur að nýju. Um miðjan ágúst
virtust fjárfestar skyndilega vera því sem
næst einhuga um að innlendur hlutabréfa-
markaður væri orðinn of dýr. Erlendir
markaðir höfðu lækkað nokkuð auk þess
sem talsverð hækkunarhrina var að baki
hér innanlands. Nokkur leiðrétting átti sér
þvi stað, sem blessunarlega tók styttri tíma
nú en í fyrravor er segja má að það hafi tek-
ið markaðinn rúmt ár að leiðrétta sig. Hins
vegar virtist það gilda markaðinn einu
hvaða félög lækkuðu.
I þriðja lagi má auðvitað nefha að er-
lendir hlutabréfamarkaðir hafa tekið veru-
legan kipp á nýjan leik og hefur bandaríski
hlutabréfamarkaðurinn nú t.d. að nýju náð
svipaðri stöðu og í sumar áður en lækkan-
ir þar ytra hófúst.
Það sem er þó ef til vill hvað jákvæðast
við þá þróun sem átt hefur sér stað á und-
anförnum vikum er að við stöndum
frammi fyrir gerbreyttum hlutabréfamark-
aði í dag. Til þessa hefúr markaðurinn ver-
ið nokkuð einsleitur og hafa sjávarútvegs-
fyrirtæki haft þar gríðarlegt vægi. Þessi
mynd er hins vegar að breytast hratt þessa
dagana. Fyrsta tryggingafélagið hefur nú
verið skráð á VÞÍ auk þess sem þijú stór
fjármálafyrirtæki verða skráð innan tíðar.
Þá bætist fyrsta hreina hugbúnaðarfyrir-
tækið i hóp skráðra fyrirtækja í desember.
Að auki hefur stærsta verslanakeðja lands-
manna, Baugur, lýst því yfir að fyrirtækið
muni sækjast eftir skráningu á VÞI í byrjun
næsta árs. Ein verslunarkeðja tíl viðbótar,
10-11, hefur þegar fylgt í kjölfarið. Þegar
þessi fyrirtæki verða skráð mun vægi sjáv-
arútvegs minnka úr tæplega helmingi af
markaðsvirði hlutabréfa á Aðallista VÞÍ í
rúman þriðjung. Fjármála- og trygginga-
fyrirtæki munu hins vegar auka vægi sitt
úr 13% í 27% og þjónustufyrirtæki munu í
fyrsta sinn fá eitthvert vægi á markaðinum.
Með öðrum orðum mun ásýnd markaðar-
ins breytast til muna og tíl hins betra; fleiri
stærri fyrirtæki auka sölumöguleika og
auðveldara verður að ná fram góðri
áhættudreifingu. SD
60