Frjáls verslun - 01.10.1998, Side 65
VIÐTAL
í upphafi þessa árs var starfsemi fyrir-
tækja- og stofnanasviðs Landsbréfa sam-
einuð Viðskiptastofu Landsbankans. Sig-
urður varð þá formlega starfsmaður bank-
ans í fyrsta sinn og hafði ekki verið það
lengi þegar Eiríkur Jóhannsson, þáverandi
útibústjóri, „vippar“ sér yfir í Kaupfélagið,
eins og Sigurður segir sjálfur. Sigurði gafst
því ekki mikið ráðrúm til að hugsa sig um,
hvað þá að velta þvf fyrir sér hvaða stefnu
og leiðir hann aðhylltist í slíku starfi. „Eg
svaraði Sverri nánast á staðnum þannig að
þetta var allt saman mikill sprettur. Eg fylgi
stefnu bankans sem er að veita fyrirtækj-
um og einstaklingum á Norðurlandi alls-
herjar fjármálaþjónustu. Þetta er eitt
sterkasta svæði Landsbankans en um síð-
ustu áramót vorum við með útlán upp á
15,7 milljarða og heildarinnlán upp á 6,9
milljarða. Við erum með mikla markaðs-
hlutdeild, sérstaklega í fyrirtækjaviðskipt-
um. Verkefni okkar í dag er að leggja
aukna rækt við þjónustu við einstaklinga
og smærri fyrirtæki. Jafnframt viljum við
auka og bæta þjónustu okkar við stóru fyr-
irtækin, sveitarfélög og lífeyrissjóði á
Norðurlandi, með því að byggja upp starf-
semi Viðskiptastofu Landsbankans á
staðnum og starfrækja hérna öflugustu
fyrirtækjaviðskipti á fjármálasviði utan höf-
uðborgarsvæðisins."
DRAUMASTARFK)?
Sigurður hafði aldrei velt því fyrir sér að
hann ætti eftir að taka við starfi útibús-
stjóra Landsbankans. “Þegar ég fór að
vinna hjá Landsbréfum hugsaði ég mér að
gaman væri að prófa starf sem þetta í tvö til
þrjú ár og öðlast reynslu. Eg fékk að gera
meira hjá Landsbréfum en ég reiknaði
með á svo stuttum tíma en það þýddi að
sjálfsögðu mikla vinnu og mér fannst ég
vera rétt að komast yfir mesta kúfinn á
þessu þegar mér bauðst nýtt starf og nú er
ég aftur kominn á byijunarreit."
Hann segist aldrei hugsa mjög langt
fram í tímann og því viti hann ekki hversu
lengi hann muni stoppa í starfi útibús-
stjóra. „I dag lít ég svo á að þetta verði þijú
til fimm ár. En þetta fer auðvitað allt eftír
því hvernig gengur. Ef maður nær árangri
og er ánægður stoppar maður lengur við.
Draumurinn um framhaldsnámið bíður því
enn um sinn enda færi ég einungis í slíkt
nám fyrir sjálfan mig en ekki af praktískum
ástæðum."
Nýja starfið á ágætlega við Sigurð. Bak-
grunnur hans tengist atvinnulífinu þannig
að einstaklingsmarkaðurinn er nýr fyrir
honum. „Það á eftir að koma í ljós hvort
þetta er draumastarfið. Það er mjög gaman
að taka þátt í öllum þeim breytingum sem
eru í gangi í Landsbankanum í dag. Bank-
inn er að taka gríðarlegum breytingum, fá
jákvæðari og frísklegri ímynd, og það er
einmitt ein af forsendum þess að ég réð
mig inn í hann á sínum tíma."
AÐ NÁ TÖKUM Á STANGVEIÐINNI
Þegar Sigurður er spurður að því
hvernig stjórnandi hann sé kemur á hann
smá hik. „Það er spurning. Eg veit ekki
hvort ég á eitthvað að flokka mig niður
sem einhveija týpu í þeim efnum. Eg vil
hins vegar dreifa valdinu því mér finnst
skemmtílegra að vinna í flötu skipulagi
heldur en í píramídastrúktúr. Hjá Lands-
bréfum var flatt skipulag og þróunin í
bankanum er í þá átt Það gengur samt
aldrei í fyrirtæki sem þessu að hafa skipu-
lagið algjörlega flatt“
Bankaráð, bankastjóri og framkvæmda-
stjórar Landsbankans heimsóttu útibúin á
Norðurlandi í byijun október og héldu
kynningarfundi með viðskiptamönnum.
Við þetta tækifæri voru einnig undirritaðir
tveir samningar á Akureyri, annar um sam-
starf við Islandspóst en hinn við Akureyr-
arbæ. Samningurinn við Akureyrarbæ er
eitt fyrsta verkefni nýrrar ráðgjafardeildar
bankans en einn af starfsmönnum þeirrar
deildar er einmitt staðsettur á Akureyri.
Verkefnið snýst um að kanna hagkvæmni
þess að færa rekstur fasteigna bæjarins
yfir í sérstakt fasteignafélag og er það unn-
ið á Akureyri að stórum hluta til. Helstu
verkefhi svæðisstjóra þessa dagana, utan
venjubundinna daglegra starfa, eru gerð
fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár, annars
vegar fyrir útibúið, hins vegar fyrir svæðið
í heild. Einnig eru húsnæðismál útibúsins
í athugun. Starfsemi þess er nú á þremur
hæðum en gæti rúmast í mun minna
plássi. I þeim efnum er tíl skoðunar að
ljúka byggingu Landsbankahússins við
Strandgötu og færa alla starfsemina saman
á jarðhæð, en það ræðst m.a. af því hvaða
möguleikar eru á selja eða leigja út efri
hæðirnar.
En hvað gerir útibústjórinn í fristund-
um? „Það er ýmislegt Ég hef mikið verið í
íþróttum og þá hinum ýmsu greinum, eins
og á skíðum, í skokki, sundi og hjólreið-
um. Eitt árið datt mér í hug að æfa þríþraut
og gerði það en i gamla daga keppti ég í
skíðagöngu og skíðastökki. Ég hef h'ka
verið aðeins í golfi en reyndar haft lítinn
tíma tíl þess síðustu tvö sumur. í dag syndi
ég í hádeginu og læt það duga.”
Hefúr hann ekkert reynt stangveiðina?
„Ég hef aðeins prófað hana. Fór í sumar og
gekk reyndar ágætlega. En ætli ég þurfi
ekki að ná betri tökum á henni.“ SS
Leggið verkefni inn í
Lokaverkefnabankann
Fyrirtæki, stofnanir og samtök
WB8M
an
ATVINNUMIÐSTÖÐIN
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut
Stmi: 5 700 888
www.fs.is/atvinna
Fáið sérhæfða námsmenn
til að vinna lokaverkefni hjá ykkur
Erum einnig meö nemendur á skrá
í leit aö jólavinnu, hlutastörfum og verkefnum
65