Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1998, Page 69

Frjáls verslun - 01.10.1998, Page 69
STARFSMANNAMÁL ekki fram hjá. Fólk gerir alls kyns hluti þegar það hefur ákveðið að bregðast trausti maka síns. Að halda fram hjá er ekki eina trúnaðarbrotið. Vinkonur tala tíl dæmis stundum saman um hluti sem þær ættu ekki að gera og bregðast þar með trausti maka síns. Einnig tekur fólk stund- um aðra hlutí fram yfir hjónabandið eða sambandið,” segir Hrefna. Eftír að framhjáhald hefur átt sér stað þarf fólk að skoða stöðuna vel, segir Hrefna. Af hveiju er staðan komin upp? Fólk þarf að ákveða hvort það áfiti sam- bandið það mikilvægt að það vilji vinna úr máfinu frekar en að skilja. Fyrst segir Hrefna að sé nauðsynlegt að slíta framhjá- haldssambandinu, þá fyrst sé hægt að fara að vinna úr þeim vanda sem steðjar að sambandinu. HVERS VEGNA HELDUR FÓLK FRAM HIÁ? En hveijar eru ástæðurnar fyrir því að fólk fer að skotra augunum til hliðar, fram hjá maka sínum? Þær eru ótal margar, að mati Hrefnu. „I vinnu fær fólk oft meira rými heldur en heima hjá sér og hefur EINHVER SEM HLUSTAR „Konur leita meira eftir eftirtekt og vib- urkenningu - eftir einhverjum sem hlustar á þær og sýnir þeim áhuga. Þær fá kannski ekki þetta viðmót frá maka sín- um heima. En allt í einu er einhver maður á vinnustaö þeirra sem hefur tíma til áð hlusta á þær og hefur áhuga á því sem þær eru að segja." - Hrefna Ólafsdóttir hjónabandsráðgjafi betra tækifæri til þess að mynda tengsl á sínum eigin forsendum. Karlar leita oft eft- ir sambandi þar sem litið er á þá sem kyn- verur, óháð öllum öðrum hlutverkum. Oft vill karlinn stöðva framhjáhaldssambandið þegar konan, sem hann heldur við, fer að gera kröfur. Konur leita aftur á móti meira eftír því að fá eftirtekt og viðurkenningu. Þær leita eftír einhveijum sem hlustar á þær og sýn- ir þeim áhuga. Þannig fá þær tilfinningu íyrir því að manninn langi í þær og að þær séu kynverur. Þær fá kannski ekki þetta viðmót frá maka sínum heima. Allt í einu er einhver maður, t.d. í vinnunni, sem hefúr tíma til að hlusta á þær og hefur áhuga á því sem þær eru að segja. Báðir aðilar verða þannig lausir við öll önnur hlutverk en það eitt að vera kynvera.” Hrefiia segir að fólk í sambúð hafi oft- ast þörf fyrir einkalíf. I framhjáhaldi á fólk sér líf sem enginn annar veit um. Þá hefur það búið til rými fyrir sjálft sig með leynd- armálinu. Fólk heldur oft að framhjáhald- ið komist ekki upp. A endanum fer sam- viskan að naga og því fer að líða illa yfir lyginni. Vanfi'ðan rekur fólk yfirleitt til þess að segja frá. „Framhjáhald kemur alltaf niður á sam- bandinu eða hjónabandinu.Yfirleitt skapast íjarlægð í samböndum þar sem framhjá- hald á sér stað. Makinn finnur yfirleitt að eitthvað er að. Börnin finna auðvitað fyrir þessu líka og þetta hefur áhrif á þau. Hjón- in eru uppistaðan í fjölskyldunni og ef eitt- hvað er að hjá þeim verður þess vart á heimilinu og í fjölskyldulífmu,” segir Hrefna. 10 9 eða 900 farþegar - og ailt þar á milli. Hvernig sem hópurinn er, og hvert sem ferðinni er heitið, höfum við bílinn og bílstjórann. Örugg akstursþjónusta í áraraðir. HOPFEHÐAMlÐSTOÐINfhm Hesthálsi 10 • 110 Reykjavik 69

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.