Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1998, Side 70

Frjáls verslun - 01.10.1998, Side 70
'nrií, MvcWi Jón Garðar Ógmundsson, sölu- og verkefnisstjóri, og Gunnar Páll Þórisson, framkvæmdastjóri Landsteina DK í Arósum. Stórar verslanir eru helstu viðskiþtavinir þeirra. FUUGANDIBYR GunnarPáll Þórisson framkvæmdastjóri ogjón Garðar Ögmundsson sölustjóri Landsteina í Danmörku. „Samningurinn við Tele Danmark var stökkpallurinn“. □ etta hefur gengið eins og í sögu. Veltan verður ekki undir 100 millj- ónum, sennilega nokkuð meiri, og á næsta ári verður hún um 300 milljón- ir ef áætlanir ganga eftir. Fjöldi starfsmann hefur tvöfaldast. Og við erum rétt að byrja,“ segja þeir Gunnar Páll Þórisson, framkvæmdastjóri Landsteina DK í Arós- um í Danmörku, og Jón Garðar Ögmunds- son sölustjóri. Fyrir ættfræðinga má geta að Jón Garðar er tengdasonur Jóhannesar í Bóitus. Það var íslenska fyrirtækið Landsteinar International, sem er með starfsemi í fjór- um löndum, sem setti á miðju árinu 1997 upp fyrirtækið Landsteina DK í Arósum í Danmörku. Fyrirtækið hefur fengið fljúg- TEXTI: BENEDIKT SIGURÐSSON, KAUPMANNAHÖFN 70 andi byr á sínu fyrsta ári. Á vissan hátt eru Landsteinamenn komnir í hring með starf- seminni í Árósum. Aðalsöluvaran er við- skipta- og upplýsingakerfið Navision Fin- ancial sem framleitt er af Navision Software í Danmörku. Kerfið er hannað til viðbótar á Islandi og það er einmitt sú út- færsla sem flutt er út til Danmerkur og Landsteinar DK í Árósum selja. Gunnar Páll Þórisson er framkvæmda- stjóri Landsteina í Danmörku. „Samkeppnishæfni okkar felst í því að við beinum lausnum, þekkingu og reynslu okkar að þeim viðskiptavinum sem gefa okkur góða arðsemi. Við höfum sérhæft okkur í lausnum fyrir smásöluverslun og einbeitum okkur að stærri aðilum, einkan- lega keðjum með margar verslanir." Gunnar Páll segir að þessa Iausn, sem Landsteinar hafi þróað, hafi vantað í smá- söluna, og því hafi hún náð svo miklum vinsældum. Með kerfinu er hægt að stýra frá höfuðstöðvum öllum upplýsingum til verslananna og þaðan sjálfvirkt beint í af- greiðslukassana. Síðan sér kerfið um að sækja sjálfvirkt allar söluupplýsingar frá af- greiðslukössunum. Stjórnendur, bæði í verslununum og á höfuðstöðvunum, geta t.d. fýlgst með því hvaða vörur seljast best og hvar þær seljast best, þeir geta haldið utan um birgðabókhaldið og lylgst með fjárhagnum svo eitthvað sé nefnt. Landsteinar hafa einbeitt sér að því að ná í stóra viðskiptavini með margar versl- anir. Gunnar Páll segir að það hafi verið stefna fýrirtækisins strax í upphafi, því þar sé eftir langmestu að slægjast. Það taki hins vegar sinn tíma að semja við þessi stóru fýrirtæki. Þeir samningar sem nú þegar eru í höfn skýra að miklu leyti góð- an framgang Landsteina í Danmörku. Tvö af allra stærstu fýrirtækjum Dan- merkur, danska símafélagið TeleDanmark og DSB, danska járnbrautarfélagið, nota kerfi Landsteina fyrir allan sinn verslunar- rekstur. TeleDanmark rekur tæplega 60

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.