Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2000, Page 24

Frjáls verslun - 01.07.2000, Page 24
Þórður Magnússon, stjórnarformaður Gildingar: „Hjá okkur gilda skýrar verklagsreglur: Það verða að minnsta kosti alltaf tveir að taka ákvörðun, síðan þrír eða fjórir eftir jjárhæðum. Þegar komið er yfir ákveðin mörk þarfsamþykki stjórnar." Heimir Haraldsson, framkvæmdastjóri Gildingar: „Markmiðið er að hámarka ávöxtunina, það erekki markmið að eiga hluti lengi eða ná völdum - nema þá tímabundið. “ Enginn viðskiptavinur Gilding er hvorki banki ná verðbréfafyrirtæki og veitir enga almenna fjármála- þjónustu. Það á því engan viðskiptavin í hefðbundinni merkingu þess orðs. Mest fjárfest í Skráðum bréfum Um það hvort Gilding muni aðallega íjárfesta í nýjum fyrirtækjum segir Þórður svo ekki veraheldurverði það að langmestu leyti í skráðum hlutabréfum og félögum sem stefna að skráningu eða gætu sameinast öðr- um á markaði. Þessum íjárfestingum mun Gilding fylgja eftir með virku eignarhaldi. Þórður segir ennfremur að þótt félagið hafi kynnt stefnu sína og markmið að undanförnu muni það ekki láta mikið fyrir sér fara í fjölmiðlum nema þá þegar greint sé frá því hvað fyrirtæk- ið hafi þegar gert, hvar það hafi fjárfest. Eitt markmið: Að hámarka ávöxtunina Heimir: „Við höfum til- kynnt að við ætlum að hafa um 40 til 60% af ijárfestingum okk- ar hérlendis. Erlendis leggjum við sérstaka áherslu á Evrópu; þar horfum við ekki síst til Norðurlandanna. Við ætlum ekki að njörva okkur fyrirfram niður við einstaka flokka fyrirtækja eins og tæknifyrirtæki, banka og svo framvegis. Við verðum sveigj- anlegir og blöndum saman áhættu og væntingum um arðsemi og horfum opnum augum á hvert einstakt mál, metum hvert tækifæri fyrir sig. Við starfsmennirnir leggjum mikið undir sjálfir og tökum áhættu á sama hátt og aðrir hluthafar í félag- inu. Helsta keppikefli okkar er að hámarka ávöxtun á heildar- hlutaíjáreigninni á hverjum tíma til að ná settu markmiði fé- lagsins um 25% arðsemi eiginijárins á ári.“ Heimir leggur áherslu á að hlutaféð sé inngreitt í pening- um og að það sé afar mikilvægt. „Markmiðið er að hámarka ávöxtunina, það er ekki markmið að eiga hluti lengi eða að ná völdum í fyrirtækjum til þess eins að ná völdum, né heldur að byggja ijárfestingar á viðskiptatengdum hagsmunum. Við höf- um hins vegar sagt að við stefnum að virku eignarhaldi í inn- lendum fyrirtækjum og að félagið muni láta að sér kveða í um- breytingu og samrunaferli fyrirtækja. I tengslum við það kann því að koma til tímabundinnar yfirtöku í einhverjum tilvikum." Skýrar reglur um heimildir starfsmanna innan Gildingar hef- ur farið drjúgur tími í að búa til reglur um heimildir starfs- manna og einstakra starfsmannahópa til að ljárfesta og taka ákvarðanir. „Það getur enginn einn maður tekið ákvörðun um íjárfestingu. Það er meginregla okkar,“ segir Þórður. „Það verða að minnsta kosti alltaf tveir að koma að málinu, síðan þrír eða íjórir eftir ijárhæðum. Þegar komið er yfir ákveðin mörk þarf samþykki stjórnar fyrir íjárfestingunni. Þessar 24

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.