Frjáls verslun - 01.07.2000, Blaðsíða 31
„Við reynum að höfða til þeirra þarfa sem einstaklingurinn hefur sem starfsmaður og þeirra þarfa sem hann hefur sem einstaklingur," segtr
Martha sem hér er við tölvuna ásamt Hallgrími Thorsteinsson, ritstjóra og samstarfsmanni sínum. mynd: torg.is
f ■ i
' m A i ™ wL
1 J m * f K
vefsíðna, fréttavefja og leitarvéla hljóta margir að velta fyrir
sér í hverju sérstaða torg.is felst. Martha segir hana einkum
felast í tvennu. „Skilaboðamiðstöðin er nýjung því að enginn
annar á íslandi býður notendum upp á aðgang að talhólfi og
faxi auk hefðbundins tölvupósts. Þannig geta notendur farið
úr hvaða tölvu sem er í heiminum í tölvupósthólfið á torg.is og
sótt þangað skilaboð, hvort sem það eru símbréf, talhólfsskila-
boð eða venjulegur tölvupóstur. Við erum einnig með mjög
öflugt Leitartorg þar sem leiddar eru saman nokkrar helstu
upplýsingaveitur landsins," segir hún. Samspil allra þeirra efn-
isþátta sem eru á torg.is gera síðan vefsvæðið að sterkri heild.
Sinna þörlum atvinnulífsins Sú kenning hefur verið á lofti
að torg.is hafi verið stofnað til höfuðs strik.is en Martha seg-
ir það af og frá. Hún bendir á að torg.is hafi verið stofnað í
desember á síðasta ári en hugmyndin sé miklu eldri en það.
Hún hafi komið upp snemma á síðasta ári og þá hafi verið
unnin ítarleg viðskiptaáætlun. Síðan hafi verið hafist handa
við að afla henni fylgis og fá hluthafa inn í fyrirtækið. í dag
eru sjö hluthafar í fyrirtækinu: Landssíminn, Morgunblaðið,
Flugleiðir, íslandsbanki, Landsbanki íslands, Sjóvá-Almennar
og Búnaðarbankinn. Og viðtökurnar hafa verið frábærar - vel
á ijórtánda þúsund manns hafa heimsótt svæðið. Hver not-
andi staldrar við í um 25 mín. og skoðar að meðaltali um fimm
síður. „Notendur hafa einnig verið ötulir að láta okkur vita
hvað þeim finnst um vefinn. Þau ummæli eru mjög jákvæð og
uppörvandi," segir Martha.
„Netið er mjög fjölþættur miðill. Við höfum m.a. sett okk-
ur það markmið að vaxa í áttina að atvinnulífinu og sinna þörf-
um þeirra sem þar staria," segir Martha um framtíðarþróun-
ina. „Til að byrja með höfum við áhuga á að skapa vettvang til
að auðvelda viðskipti milli fyrirtækja innbyrðis og milli fyrir-
tækja og neytenda. Við viljum reyna að sinna þörfum atvinnu-
lífsins enn frekar, t.d. með því að auðvelda viðskipti milli fyr-
irtækja s.s. með því að rafvæða innkaupaferlið og með því að
miðla á rafrænan hátt margs konar viðskiptaskjölum eins og
pöntunum og reikningum. Þetta er ekki búið að tímasetja en
þessi skref munum við taka.“
- Er ekki erfitt að þjóna samtímis báðum herrum, bæði ein-
staklingum og viðskiptalífi?
„Nei. Við erum öll einstaklingar, hvort svo sem við erum í
atvinnulífinu í daglegum störfum okkar eða ekki. Adaginn not-
um við vefinn í viðskiptalegum erindagjörðum, t.d. til að fá upp-
lýsingar um vísitölur og verðbréfatölur. Á kvöldin notum við
hann í einkalífinu, t.d. þegar við viljum fylgjast með eignasafni
okkar dag frá degi eða skipuleggja ferðalög. Við reynum að
höfða til þeirra þarfa sem einstaklingurinn hefur sem starfs-
maður og þeirra þarfa sem hann hefur sem einstaklingur."
FrambOð á auglýsingum Markaðsvirði fyrirtækisins er erfitt
að segja til um. Hlutaféð var 100 milljónir króna í upphafi og
Martha reiknar með að virði þess hafi aukist. Veftorgið veitir
þjónustuaðilum möguleika á að nálgast Netnotendur frá einu
öflugu vefsvæði og segir hún að auglýsendur hafi strax tekið
vefnum afar vel, svo vel að forráðamenn fyrirtækja hafi hringt
og beðið um að fá að koma auglýsingum inn á torgið, þannig
að tekjur séu þegar farnar að skila sér. „Þessir auglýsendur
hafa ekki verið sviknir vegna þess að mjög mikil aðsókn hef-
ur verið að torginu. Það hefur fyllilega verið peninganna virði
að auglýsa á torg.is," segir Martha Eiríksdóttir að lokum. B9
31