Frjáls verslun - 01.07.2000, Blaðsíða 53
Sigurður Arni Kjartansson, deildarstjóri í Seðlabankanum, fjallar hér um gjaldeyrismarkaðinn, markað sem velti 472 milljörðum Jyrstu sjö
mánuði ársins. Þetta er dýþsti og virkasti markaður á íslandi.
Millibankamarkaður með gjaldeyri hér á landi tók form-
lega til starfa þann 28. mai 1993. Fyrir þann tíma hafði
Seðlabankinn skráð gengi krónunnar einhliða út frá er-
lendum gengishreyfingum sem fól í sér að engar breytingar
urðu á verði erlendra gjaldmiðla vegna framboðs- og efdrspurn-
araðstæðna hér á landi nema með formlegri ákvörðun stjórn-
valda þar um.
Með tilkomu millibankamarkaðar fór gengisskráning
þannig fram að markaðsaðilar, sem auk Seðlabankans voru
fjórir bankar, hittust á fundi í Seðlabankanum hvern við-
skiptadag og var gengi krónunnar skráð út frá erlendum
gengishreyfingum, síðustu vísitölu og þeim viðskiptum sem
til var stofnað. Þrátt fyrir mikla kosti umfram fyrra fyrirkomu-
lag fylgdu þessu kerfi ákveðnir annmarkar. Markaðurinn var
ekki sýnilegur utan fundarins þar sem að engin viðskiptavakt
var með erlendan gjaldeyri milli bankanna sjálfra og einnig að
Seðlabankinn var í yfirgnæfandi tilfella aðili að viðskiptum.
Þetta kemur vel fram ef skoðuð er mynd um heildarviðskipti
á millibankamarkaði með gjaldeyri og aðild Seðlabankans að
þeim á fyrstu árum þessa markaðar. Fyrstu ijögur ár milli-
bankamarkaðar voru gjaldeyrisviðskipti nokkuð jöfn frá einu
ári til annars og aðild Seðlabankans að viðskiptum var mikil
og vaxandi fyrstu þrjú árin og eins voru sveiflur í gengis-
skráningarvísitölu frekar litlar milli daga.
Þar sem markaðurinn var ekki sýnilegur utan fundartímans
miðlaði hann ekki upplýsingum milli aðila og veitti mönnum því
ekki tækifæri til að notfæra sér markaðinn til viðskipta þegar
tækifæri gáfust til. Breytingar á markaðsfyrirkomulaginu voru
því aðkallandi og voru gerðar um mitt ár 1997.
Viðskiptavakt á millibankamarkaði í júlí 1997 var tekin upp við-
skiptavakt á millibankamarkaði með gjaldeyri og hafði hún í för
með sér meiri framfarir og aukningu á fjölbreytileika gjaldeyr-
istengdra ijármálaafurða en margan óraði fyrir. Reglur um milli-
bankamarkaðinn og skyldur viðskiptavaka voru settar af Seðla-
bankanum en unnar í samvinnu við markaðsaðila.
Viðskiptavaktin felur m.a. í sér eftirfarandi:
a) Viðskiptavakar eru skuldbundnir til að setja fram leiðbein-
andi kaup- og sölutilboð fyrir Ijárhæð að lágmarki 1 milljón
Bandaríkjadali.
b) Viðskiptavakar eru skuldbundnir til að gefa upp tvíhliða
bindandi verð við ósk um slíkt frá öðrum viðskiptavaka.
c) Viðskiptavakar eru skuldbundnir til viðskipta hver við ann-
an við ósk um slíkt.
d) Akveðið hámarksbil er milli kaup- og söluverðs í tilboðum.
e) Viðskiptavaki er skuldbundinn til viðskipta við Seðlabank-
ann við ósk bankans um slíkt.
Veltan var 2,6 sinnum íslensku fjárlögin
Til að gefa einhverja mynd af því hversu mikil viðskiptin voru á þessum markaði
á síðasta ári þá voru þau 2,6 sinnum meiri en fjárlög ríkisins það ár og rúmlega
tvöföld heildarviðskipti á Verðbréfaþingi íslands sama ár.
53