Frjáls verslun - 01.07.2000, Page 33
V
Verðið hækkar stöðugt
Félagsliö á íslandi fá 10 - 20
milljónir króna fyrir vænan
landsliðsmann. Dæmi eruum allt
að 30 - 45 milljómr krona.
Góöur leikmaöur fer ekki í
atvinnumennsku fyrir minna en
400 þúsund krónur í tekjur a
mánuði. Eftirsóttustu
leikmennirnir hafa 60 - 80
milljónir króna í tekjur a ari.
Eiður Smári Guðjohnsen var
seldur til Chelsea í sumar fyrir
460 milljónir króna. Hermann
Hreiðarsson var seldur til Ipswich
Town fyrir 500 milljónir.
í umboðsmennskunni gildir miklu að þekkja knattspyrnuna í
viðkomandi löndum, þekkja eiginleika og hæfni islenskra
knattspyrnumanna og hafa næmt auga fyrir því hvar þeir passa
inn til að geta kynnt þá fyrir erlendum liðum. Hér er Eiður Smári
Guðjohnscn í landsleiknum á móti Svíum á dögunum.
ir á þessu ári. Fyrst var það Eiður Smári Guðjohnsen sem var
seldur til Chelsea í sumar fyrir 460 milljónir króna. Síðan var
það Hermann Hreiðarsson sem varð dýrasti knattspyrnumað-
ur landsins frá upphafi þegar hann var seldur til Ipswich Town
fyrir 500 milljónir íslenskra króna. Þannig er hvert metið á
fætur öðru slegið og stöðugt hækka leikmennirnir í verði.
Almennt fá leikmenn ekki í sinn vasa greiðslu af ijárhæð-
inni sem fer milli liða við sölu en það fer þó eftir löndum. I
Englandi eru grunnlaunin há og bónusar líka. Þar fer ákveðin
prósenta í lífeyrissjóð sem leikmenn fá greitt úr í hlutfalli við
hvað þeir hafa spilað mikið og í hvaða deild. Norsku liðin
greiða laun sem eru sambærileg við fyrstu og aðra deildina í
Englandi. í Hollandi verða leikmenn hins vegar að leggja 35
prósent í eftirlaunasjóð sem þeir fá greitt úr eftir 35 ára aldur.
í Þýskalandi er mikið um bónusa af ýmsu tagi sem hækka
launin verulega.
Réll UPP í kostnað? En hvað taka umboðsmennirnir fyrir
sína vinnu? Eftir því sem Frjáls verslun kemst næst er það
afar mismunandi. Umboðsmennirnir selja leikmenn til
Norðurlanda fyrir litlar fjárhæðir og telja ekki mikið upp úr
því að hafa, kannski rétt upp í kostnað við skrifstofuhald,
símreikninga og ferðalög, en þóknunin er auðvitað mun
hærri þegar leikmaður selst fyrir háar fjárhæðir í Englandi -
en það hefur verið sjaldan sem slíkt hefur gerst! Samkvæmt
heimildum blaðsins er í fæstum tilfellum tekið hlutfall af söl-
unni heldur taka umboðsmennirnir mið af því hversu eftir-
sóttur leikmaðurinn er. Þannig má leiða rök að því að laun
umboðsmanna hækki verulega á næstu árum þegar íslensk-
ir knattspyrnumenn verða eftirsóttari. Og kannski eiga þeir
eftirsóttustu eftir að ná tekjum á borð við það sem best ger-
ist í útlöndumlS!]
33