Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2000, Side 40

Frjáls verslun - 01.07.2000, Side 40
RADGmXM Greinarhöfundur, Tónias Bjarnason, er sérfrœðingur hjá Fyrirtækjarannsóknum Galluþ og stundar doktorsnám í félagsfræði. „Þó að laun séu mikilvœg ástæða þess að fólk segi upp sýna rannsóknir að meginástœðan er óánœgja með stjórnunina, innra skipulagfyr- irtœkisins og starfið sjálft. “ leiðingar fólks um starfslok. Slíkar tölur eru fáanlegar úr gagnabanka Gallup sem er safn 30 vinnustaðargreininga. Vinnustaðargreining Gallup er spurningalisti sem byggður er á áralöngum rannsóknum Gallup í Bandaríkjunum á innra heilbrigði fyrirtækja og hefur verið lagður fyrir rúm- lega 7.000 starfsmenn 30 fyrirtækja hérlendis. Hlutfall einstaklinga sem telja að þeir muni hætta hjá fyrir- tækinu innan árs er um 10% að meðaltali hjá þeim fyrirtækj- Innra ástand í fyrirtækjum meginástæða StarfsmannaveltU Gallup gerir einnig sér- stakar starfslokagreiningar, en það eru kannanir hjá fyrrum starfsmönnum fyrir- tækja á ástæðum þess að þeir hættu störfum hjá fyrirtækinu. I starfslokagreiningu Gallup eru fléttuð saman áðurgreind „push“ og „pull“ líkön og reynt að meta samhliða áhrif úr innra skipulagi fyrirtækisins og markaðarins. Auk þess er aflað upplýsinga um ólíkan bakgrunn einstaklinga, t.d. menntun og íjölskylduábyrgð, sem áhrif geta haft á vinnustaðaskipti. Þótt vægi innri þátta og markaðsáhrifa séu misjöfn milli fyrirtækjanna hafa innri þættir almennt verið ráðandi ástæða starfslokanna. Þótt laun komi fram sem mikilvæg ástæða voru þeir sem fengið höfðu betur launaða vinnu - áður en þeir sögðu upp störfum - í miklum minnihluta. Meginá- stæða þess að fólk sagði upp störfum var óá- nægja með innra skipulag fyrirtækisins, starfið sjálft og stjórnunina. Markaðsað- stæður hafa því fyrst og fremst haft áhrif með því að skapa fólki aðstæður til að geta sagt upp störfum. Lokaorð Fyrirtæki sem ætlar sér að ná samkeppnisyfir- burðum verður að geta laðað að sér starfsfólk og haldið því. Fyrirtæki sem veit af hverju fólk hættir störfum getur brugð- ist við á markvissan hátt og bætt samkeppnisaðstöðu sína á meðan önnur sitja eftir.SH um sem Gallup hefur kannað. Munur milli fyrirtækja er þó mikill, lægst er hlutfallið 4% en hæst er það 27%. Islensk fyrirtæki standa sig því afar misjafnlega hvað það varðar að halda í starfsfólk. Mikill munur er á afstöðu þeirra sem hafa hug á að starfa skemur en 1 ár og þeirra sem ætla að starfa lengur. Þeir sem ætla að starfa skemur eru óánægðari í starfi, þeim frnnst þeir ekki nýta hæfileika sína í sama mæli og hinir, þeim finnst skorta á umboð til athafna, skorta á starfs- þróun og sanngirni í fyrirtækinu, svo eitt- hvað sé nefnt. Niðurstöður þessarar grein- ingar eru einnig þær að áhrif þessi eru oft- ast greinilegri hjá yngra fólki en því eldra. Styður það þá kenningu að ungt fólk sé kröfuharðara og næmara fyrir „innra heil- brigði“ fyrirtækisins. Þótt laun komi fram sem mikilvæg ástæða voru þeir sem fengið höfðu betur launaða vinnu - áður en þeir sögðu upp störfum - í miklum minnihluta. Meginá- stæða þess að fólk sagði upp störfum var óánægja með innra skipulag fyrirtækis- ins, starfið sjálft og stjórnunina. 40

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.