Frjáls verslun - 01.07.2000, Síða 71
Allar raflagnir eru frá Johan Rönning. Ekki
þarfað nota rofa til að kveikja Ijós eða slökkva
því öllu er stýrt með skynjurum, einnig hita-
stigi. Þetta sþarar orku og heldur vinnuum-
hverfinu þœgilegu.
inn og út. Kostirnir við það fyrirkomulag
er að léttleikinn helst en þeir sem þurfa
geta haft ákveðið næði samt sem áður því
ekki hentar öllum jafn vel að vera í opnu
í'ými þar sem ekkert sem viðkvæmt er
má fara fram, en það er ein helsta rök-
semd þeirra sem eru á móti opnum rým-
um. Einnig þreytan og áreitið sem vill
fylgja því að vera sífellt innan um ijölda
manns og geta í raun hvergi fengið frið
eða unnið einn að sínu án utanaðkomandi
áhrifa sem er flestum nauðsynlegt af og
til. Opin rými hafa lengi verið þekkt í
blaðamennsku, verðbréfasölu og auglýs-
ingaheiminum, svo eitthvað sé nefnt, og
víst er að sköpun verður meiri þegar sam-
skiptin aukast. Besta lausnin er sennilega
sú að hver og einn hafi aðgang að afmörk-
uðu rými þar sem hægt er að sinna trún-
aðarmálum eða verkefnum sem krefjast
einbeitingar en að þau rými séu nógu ná-
lægt almenningi til að auðvelt sé fyrir
starfsfólk að sameinast þar eða vinna í
hóp eftir því sem þurfa þykir. I þessu sem
öðru þarf að gæta þess að alhæfa ekki og
þó svo að opin rými séu góðra gjalda verð
og orsaki að vissu leyti breytingar á innra
skipulagi fyrirtækja og ef til vill meira lýð-
ræði, þá má ekki gleyma einstaklingnum
sem þarf sitt persónulega rými.
„Það er í samtölum sem hugmyndir
kvikna og þær eru mun auðveldari og
léttari þar sem fólk er saman í opnu eða
hálfopnu rými en þar sem hver og einn
situr á sinni skrifstofu," segir Thomas
Möller. H5
Mustcmg-nártúrusteinflísar
„cðnýjMsiimðSmukgiiria.
Vi3erUmstoltatH°SUatet'S
þátt í þessari glæsilegu bygg'eg
Byggingi". sem hefur feng'&
tönnunarver5laun,erklæaa
með Mustang-náttúrusteinflisum.
Á gólfum er olíuborin rauðeik og
slípaður Mustang-náttúrusteinn a
stiga og I anddyri.
Egill
íffnason M
Aroíta 8. i«8'•rrt"11'
- • S95 0500, tax: 595 055 ,
5«
71