Frjáls verslun - 01.07.2000, Side 77
I
miðlunarfyrirtæki til að auðvelda
verslunareigendum að byrja starfsemi
sína en eftir sem áður verður greiðslu-
miðlunin á ábyrgð viðkomandi versl-
ana. „Við verðum ekki milliliður á
sama hátt og Kringlan hf. ber ekki
ábyrgð á greiðslumiðlun milli við-
skiptavina og Nýkaups í Kringlunni.
Dreifing vörunnar verður einnig alfar-
ið á ábyrgð viðkomandi verslunar
þannig að verslanir geta haft mismun-
andi þjónustumarkmið. Ein verslun
getur auglýst að hún afliendi sam-
dægurs meðan önnur vill kannski af-
henda innan þriggja daga.“
Ásgeir Friðgeirsson, framkvœmdastjóri íslandsnets. „Kauphegðan fólks á eftir að breytast mikið.
Það er ekki bara verslunarmaðurinn sem þarf að læra á þennan nýja viðskiptamáta, viðskipta-
vinurinn þarflíka að lœra að versla á þennan hátt.“ FV-mynd: Geir Ólafsson
- Hefur það ekki staðið Netverslun fyrir
þrifum hve óaðlaðandi greiðsluhættir
hafa verið?
Jú, það má segja það en greiðslu-
miðlunin fer fram í gegnum sérstakan
öryggisþjón þannig að fólk þarf ekki að
hafa áhyggjur af örygginu. Þetta er ör-
ugg greiðslumiðlun á báða vegu. Við
erum með samninga við VISA,
Eurocard og fyrirtæki sem heitir Medi-
an en í upphafi verður einvörðungu um
kreditkortagreiðslur að ræða. Við
erum einnig með samninga við bank-
ana um netgreiðslur og þær koma inn á
næstu stigum. Netgreiðslur eru í raun-
inni ekkert annað en millifærslur þar
sem viðskiptavinurinn millifærir af sín-
um bankareikningi yfir á bankareikn-
ing verslunarinnar," svarar Ásgeir.
Gríðarlegar væntingar hafa verið um
að netverslun fari að blómstra á þessu
ári. Ásgeir segist lengi hafa starfað í net-
geiranum og aldrei fundið fýrir jafn
miklum áhuga á viðskiptum í gegnum
Netið og nú. Um 10-15 þúsund rnanns
fari daglega inn á strik.is og verslunar-
miðstöðin hljóti að njóta góðs af því.
Hann er sannfærður um að fólk muni
fara inn á strik.is til að versla, ekkert síð-
ur en til að lesa fféttir eða afla sér upp-
lýsinga, og því muni verslunin auka um-
ferðina enn frekar. Til að vel takist strax
frá upphafi telur hann miklu skipta að
verslanirnar séu nægilega margar og vöruúrvalið gott til að ná
strax áhuga neytenda. Um verslunina á strikinu segir hann að
gildi það sama og um Kringluna og Laugaveginn. Fólk sjái ekki
ástæðu til að fara þangað ef verslanir eru fáar og úrvalið lítið.
- Hvernig eru áætlanir um veltu?
„Það er erfitt að gera áætlanir um ljölda viðskipta eða
veltu. Kauphegðan fólks á eftir að breytast mikið. Það er ekki
bara verslunarmaðurinn sem þarf að læra á þennan nýja við-
skiptamáta, viðskiptavinurinn þarf líka að læra að versla á
þennan hátt,“ svarar Ásgeir og telur að bilið milli verslunar-
ferða fólks á vefnum rnuni styttast jafnt og þétt. „Allir verslun-
araðilar, sem skrá viðskipti hjá einstaklingum; vita hvaða ein-
staklingar versla og hvenær þeir versla, munu sjá að tíminn
milli verslunarferða á Netinu styttist stöðugt. Þú ferð inn einu
sinni og prófar, ferð svo aftur eftir þrjár vikur, síðan eftir tvær
vikur og loks með viku millibili. Reynsla netverslana hér á
landi sýnir að þessi tími styttist jafn og þétt. Inn í þetta koma
líka að sjálfsögðu atriði eins og afhendingartími og verð. Það
er mjög áhugavert að sjá hvernig landsmenn taka þessari nýj-
ung. Á Islandi hefur alltaf verið talsverð fjarverslun í gegnum
póstinn og símann." SO
77