Fregnir - 01.03.2004, Page 26
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
Sumarskóli í Fœreyjum 2004
Sumarskólinn verður í ár haldinn í Þórshöfn í Færeyjum 28. júní - 2. júlí undir yfir-
skriftinni Læringsteorier og praktisk pædagogik þar sem eins og áður verður fjallað
um upplýsingalæsi í námi og kennslu1. Eins og titill sumarskólans gefur til kynna
verður þar bæði lögð áhersla á kenningar í kennslu- og uppeldisfræði og hvemig hægt
sé að nota þær í daglegu starfí. Þátttakendum gefst kostur á að velja eina af þessum
tveimur leiðum og sérhæfa sig í þeim. Námskeiðshaldarar em sérmenntaðir á þessu
sviði og með þeim fremstu innan Norðurlandanna. Sumarskólinn býður einnig upp á
opna fýrirlestra sem tengjast efninu.
Þegar þetta er skrifað eru aðeins nokkur pláss laus í sumarskólann og vil ég hvetja
áhugasama til þess að sækja um hið fýrsta. Þátttökugjald er 8.500 DKK og em þar
innifalin námskeiðsgjöld, kaffi/te og morgunmatur og gisting á Hotel Hafnia, sameig-
inlegur kvöldverður 2. júlí og skemmtiferðir og heimsóknir á meðan á námskeiðinu
stendur. Skráning sendist beint til Arnbjorn O. Dalsgarð (amdal@flb.fo).
Málstofa í Váxjö í Svíþjóð
Málstofa verður haldin haustið 2004 í Váxjö í Svíþjóð. Má þess geta að við háskólann
í Váxjö er kennd bókasafns- og upplýsingafræði með sérstaka áherslu á kennslufræði2
Ráðstefna í Kaupmannahöfn 2005
Stefnt er að því að halda Creating Knowledge IV ráðstefnuna í Kaupmannahöfn
2005. Þar verður lögð áhersla á norræn málefni í ljósi þróunar á alþjóðlegum vett-
vangi.
Að lokum vil ég hvetja lesendur til þess að kynna sér vefsetur NORDINDFOlit og
taka þátt í þeim umræðum sem þar fara fram.
Astrid Margrét Magnúsdóttir
Samstarf norrænna bókavarðafélaga
Nordisk biblioteksmode
Reglubundið samstarf norrænna bókavarðafélaga var endurvakið árið 1999. Þá fóm
formaður og gjaldkeri Bókavarðafélags íslands á samstarfsfund norrænna bókavarða-
félaga sem haldinn var í Osló í janúar það ár. Formenn og framkvæmdastjórar nor-
rænu bókavarðafélaganna hittast einu sinni á ári og sjá félögin til skiptis um að halda
fúndina sem standa í tvo daga. íslenska bókavarðafélagið er eina félagið sem ekki hef-
ur framkvæmdastjóra eða starfsmann. Á fundinum árið 1999 var óskað eftir því að ís-
land sæi um fundinn næsta ár og árið 2000 var fundurinn haldinn hér á landi á vegum
Upplýsingar sem tekið hafði til starfa þá í ársbyrjun. Formaður, varaformaður og
gjaldkeri Upplýsingar sáu um undirbúning fundarins og hafa jafnan sótt hann fyrir
hönd félagsins. Á Reykjavíkurfundinum mörkuðu fulltrúar félagsins að mörgu leyti þá
stefnu í framkvæmd fúndanna sem haldið hefúr verið síðan, þ.e. að unnið er eftir
fyrirfram ákveðinni dagskrá, fúndargerðir eru haldnar og að það félag sem stendur
fyrir fundinum undirbýr hann og pantar hótel og annan viðgjöming fyrir fundarmenn
og býður upp á stutta skemmtiferð að loknum fúndi seinni daginn. Sú hefð hefur
einnig myndast að félagið sem heldur fundinn býður til kvöldverðar fýrri daginn.
Síðastliðið ár (2003) var fundurinn haldinn á fimmtudegi og föstudegi en hefur
annars verið á föstudegi og laugardegi. Hinir norrænu fulltrúarnir em að fúllu eða að
1 Sjá nánar www.flb.fo/sommerskole/index.htm.
2 Sjá nánar http://www.hum.vxu.se/utb/progranVbop/ og http://194.47.70.15/utb/program.lasso?ID=PR1068.
29. árg. - 1. tbl. 2004 - bls. 26