Fregnir - 01.03.2004, Blaðsíða 36
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
Að lokum má geta þess að efnt var til samkeppni um nafn safnsins. Nafnið Ársafn
varð ofan á en það kom úr kistu Erlu Kristínar Jónasdóttur, safnstjóra aðalsafns Borg-
arbókasafns. Safnstjóri Arsafns er Óskar Guðjónsson og sími safnsins er 557 7119.
Oskar Guðjónsson
Amtsbókasafnið og héraðsskjalasafnið á Akureyri
Nýbygging og endurbætur 2004
Markmið framkvœmdanna
Markmið Akureyrarbæjar með viðbyggingu við Amtsbókasafnið er að bæta úr hús-
næðisþörf safnanna sem starfa í bókhlöðuhúsinu við Brekkugötu.
Saga safnanna
Amtsbókasafnið var stofnað árið 1827 af Grími Jónssyni amtmanni á Möðruvöllum.
Aðsetur safnsins var í Laxdalshúsi fyrstu 20 árin og fluttist síðan milli ýmissa húsa og
var meðal annars til húsa í Ráðhúsi Akureyrarkaupstaðar í Búðargili og Samkomuhús-
inu. Árið 1906 varð Amtsbókasafnið formlega eign Akureyrarbæjar, með þeim
skilyrðum að kaupstaðurinn myndi byggja íyrir safnið eldtraust geymsluhús og lestr-
arstofu. Árið 1933 var vakið máls á að aldarafmæli Matthíasar Jochumssonar nálg-
aðist og ákveðið að reisa minnisvarða í formi vandaðs húss yfir Amtsbókasafnið. Efnt
var til samkeppni um teikningar af húsinu og hlutu tveir ungir arkitektar 1. verðlaun,
þeir Bárður Isleifsson og Gunnlaugur Halldórsson. Ákveðið var að húsið skyldi standa
við Brekkugötu, þar sem það stendur í dag. En það var ekki fyrr en 30 árum síðar að
framkvæmdir hófust og þá í tilefni 100 ára afmælis Akureyrarbæjar. Leitað var til
arkitektanna sem unnu samkeppnina 1935 og lögðu þeir fram alveg nýja og nútíma-
lega hugmynd að bókhlöðu. Hið nýja húsnæði var vígt þann 9. nóvember árið 1968.
Héraðsskjalasafn Akureyrarbæjar og Eyjaijarðarsýslu var formlega stofnsett 1. júlí
1969 en skjalavörður hafði þó verið fastráðinn frá 1968. Stofnendur þess voru Akur-
eyrarbær og Eyjafjarðarsýsla en Akureyrarbær sá um reksturinn með árlegum styrk frá
sýslunni. Með nýrri samþykkt fyrir árið 1996 var nafninu breytt í Héraðsskjalasafnið á
Akureyri. Safnið hefur verið í húsi Amtsbókasafnsins frá haustinu 1968 en þar var
plássið frá upphafi of lítið og hefur því þurft að hafa skjalageymslur utangarðs.
Akvörðun um viðbyggingu
Ákvörðun um viðbyggingu var tekin á fundi bæjarstjómar 29. ágúst 1987 á 125 ára
afmæli Akureyrarbæjar. I framhaldi af þessari ákvörðun var efnt til samkeppni um
hönnun hússins. Tillaga Guðmundar Jónssonar arkitekts í Noregi hlaut fyrstu verðlaun
í samkeppninni og vom ummæli dómnefnar svohljóðandi: „ Tillaga nr. 2 sameinar
núverandi hús og nýbyggingu í listrœna heild án þess að núverandi hús glati nokkru
af sérkennum sínum“. Árið 2000 var ákveðið að heíja framkvæmdir og var verkið
boðið út á vordögum 2001. Fyrsta skóflustungan var tekin 1. júní það ár og á fram-
kvæmdum að ljúka 2004.
Viðbyggingin
Viðbyggingin er 1.442 m eða 4.700 m' brúttó. Hún er þrjár hæðir og kjallari. I
kjallara em bóka- og skjalageymslur, búningsaðstaða starfsfólks, snyrtingar fýrir gesti
og tæknirými. Á jarðhæð er anddyri, sem einnig er ætlað sem sýningarrými og
kaffitería, sem einnig er aðstaða til upplýsingaleitar á Intemetinu. Á annarri hæð er
29. árg. - 1. tbl. 2004 - bls. 36