Fregnir - 01.03.2004, Blaðsíða 32
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
NORD I&D - Ráðstefna um upplýsinga- og þekkingarstjóm
XIINIORD I & D NORD I&D er heiti á ráðstefnum um upplýsinga- og
Knowiadgeand chango sem haldnar eru þriðja hvert ár á Norður-
löndunum. Næsta ráðstefna verður haldin í Álaborg í Dan-
* mörku dagana 1- 3. september í haust í einstaklega fallegu
og skemmtilegu umhverfi. Efni hennar er „Knowledge and Change“, þekking og
breytingar. Vefur ráðstefnunnar er http://www2.db.dk/niod/
Forsaga ráðstefnunnar er sú að í kringum 1960 voru fundir um stjómun og tækni á
sviði upplýsingamála haldnir á vegum NORDFORSK, samvinnustofnunar fyrir vís-
inda- og tæknirannskóknir. Um 1970 var félögum um heimildaöflun og skráningu á
Norðurlöndunum svo falið að halda stóra Norræna ráðstefnu reglulega en hún var
nefnd NORD I&D, Nordic Conference on Information and Documentation.
Fyrsta stóra ráðstefnan var haldin í Noregi 1970, síðan á þriggja ára fresti á öllum
hinum Norðurlöndunum, nema Islandi. Fyrir Islands hönd tilnefndi Samstarfsnefnd
um upplýsingamál (STUPP) fúlltrúa í undirbúningsnefnd. Þórir Ragnarsson var full-
trúi okkar þar um árabil og síðar tók Gunnhildur Manferðsdóttir við, tilnefnd af stjóm
Félags bókavarða í rannsóknarbókasöfnum. Undirrituð tók svo við sem fulltrúi Upp-
lýsingar árið 2000.
Árið 2001 var ráðstefnan haldin í fyrsta skipti á Islandi. I undirbúningsnefndinni
var vaskur hópur: Anna Magnúsdóttir, Gunnhildur Manfreðsdóttir, Hrafnhildur
Hreinsdóttir, Sigrún Hauksdóttir og Þóra Gylfadóttir auk undirritaðrar, sem veitti
nefndinni forstöðu. Hópurinn bauð sig fram þremur ámm áður í Finnlandi og stóð svo
sannarlega við að koma Islandi á landakortið hvað varðar ráðstefnuhaldið. En þátt-
takendur vom 236 frá 13 löndum.
Ráðstefnumar hafa verið skipulagðar þannig að í því landi sem ráðstefnan er
haldin hverju sinni starfar undirbúningsnefnd og henni til faglegrar aðstoðar er einn
fulltrúi frá hverju hinna Norðurlandanna. NORDINFO, Norræna samvinnunefndin um
vísindalegar upplýsingar, sem nýlega var lögð niður, hefur verið stór stuðningsaðili
þessara ráðstefna og finnur undirbúningsnefndin nú þegar fyrir því að erfitt er að
halda þær án þess stuðnings.
Meðal þess sem einkennt hefur efni ráðstefnunnar er að hún er mjög gagnleg fyrir
upplýsingaöflun í tækni og vísindum og jafnframt fyrir atvinnulíf. Áherslur hafa þó
breyst í tímans rás sem mótast af því að nefndimar í hverju landi em algerlega sjálf-
stæðar og fá ekki sérstaka „línu“ um hvemig standa eigi að ráðstefnuhaldinu. Einnig
hefur upplýsingaumhverfið breyst gífurlega á rúmum þrjátíu ámm. Gmndvallaratriði
stjómunar og tækni em alltaf til umfjöllunar. Stór verkefni í upplýsingafræðum ýmist
unnin á landsvísu í hverju landi eða samnorræn verkefni em yfirleitt alltaf kynnt og
miðlað er fréttum um nýjungar í upplýsingafræðum. Efni ráðstefnunnar virðist nú
höfða til víðari hóps en áður. Frá því að vera nær eingöngu vettvangur fólks sem vinn-
ur við upplýsingamál og stjómun í sérfræði- og rannsóknarsafnaumhverfi er þama í
auknum mæli efni sem nýtist þeim sem starfa við þekkingarstjóm, upplýsingamið-
stöðvar og aðrar safnategundir.
NORD I&D ráðstefnumar eru í takt við tímann og þar kemur yfirleitt fram það
sem efst er á baugi í upplýsingamálum hverju sinni. Fram að ráðstefnunni hér á Is-
landi hafði ekki verið mikið um fýrirlesara héðan. En tveir fyrirlestrar frá íslandi hafa
lagt fram erindi á næstu ráðstefnu og er það afar ánægjulegt.
Kristín Geirsdóttir
fulltrúi Upplýsingar í NORD I&D
29. árg. - 1. tbl. 2004 - bls. 32