Fregnir - 01.03.2004, Page 29
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
næstkomandi en sú stofnun hefur verið bakhjarl margra norrænna samstarfsverkefna,
t.d. á vegum NVBF sem sagt verður frá hér á eftir.
Leiðtogafundur um upplýsingasamfélagið {World Summit on the Information So-
ciety) hefur einnig verið á dagskrá. Fulltrúar í norrænu félögunum hafa beitt sér innan
IFLA íyrir því að gera hlut bókasafnanna í yfirlýsingu og aðgerðaáætlun Leiðtoga-
fundarins meiri og sýnilegri og koma starfsemi þeirra og mikilvægi á framfæri. í upp-
haflega skjalinu voru bókasöfn nefnd einu sinni en skólar 120 sinnum. Að mati IFLA
náðist verulegur árangur í því að gera bókasöfn gildandi í upplýsingasamfélaginu.
Norræna ráðherranefndin, Norræna húsið sér um úthlutun, og menntamálaráðu-
neytið hafa veitt styrki til að taka þátt í samstarfi norrænna bókavarðafélaga og
NORDINFO veitti einu sinni ferðastyrk. Styrkimir hafa að mestu staðið undir ferða-
kostnaði og hafa verið félaginu mikilvægir.
Stjóm Upplýsingar telur mjög gagnlegt og mikilvægt að félagið taki þátt í í sam-
starfí norrænna bókavarðafélaga eftir föngum og væntir góðs af samstarfinu í framtíð-
inni. Samstarfið auðveldar félaginu að fylgjast með því sem er á döfínni hjá öðmm
bókavarðafélögum og í bókasafnasamfélaginu almennt. Samstarfið er lykilatriði í
evrópskri og alþjóðlegri samvinnu auk þess sem það hefur áhrif á starf félagsins hér á
landi og víkkar sjóndeildarhring þess.
Næsti fírndur norrænu bókavarðafélaganna verður haldinn í Oslo í byrjun júni og á
næsta ári er röðin aftur komin að Upplýsingu að standa fyrir fundinum.
Þórdís T. Þórarinsdóttir
NVBF - Samband félaga norrænna rannsóknarbókavarða
Nordiske vitenskapelige biblioteksforeningers forbund
NVBF er samstarfsvettvangur bókavarðafélaga á Norðurlöndunum fimm. Sambandið
var stofnað árið 1947 og er höfuðmarkmið þess að styðja og þróa samvinnu milli nor-
rænna rannsóknar- og sérfræðisafna þ.m.t. háskólabókasöfn og starfsmanna þeirra.
Þessu markmiði reynir NVBF að ná með því að halda tvær til þrjár opnar ráðstefn-
ur á ári þar sem fjallað er um málefni sem áhugaverð þykja hverju sinni. Norrænar
ráðstefnur um millisafnalán eru haldnar annað hvert ár og nokkrar svo kallaðar hring-
borðsráðstefnur hafa verið haldnar en til þeirra er völdum sérfræðingum boðið. Einnig
voru sumarskólar haldnir nokkrum sinnum á vegum NVBF en nokkuð er síðan þeir
hafa verið á dagskrá sambandsins. Skipulagðar náms- og kynnisferðir eru reglulega í
boði og hafa mælst mjög vel fyrir.
Þá býður NVBF árlega styrki til námsferða innan Norðurlandanna, fímm styrkir
eru í boði og gert ráð fyrir einum styrk á hvert land. Upphæðin er nú 7.000 norskar
krónur sem ættu að nægja fyrir ferð og uppihaldi í fáeina daga. Þessir styrkir eru aug-
lýstir á póstlistum bókavarða síðari hluta sumars ár hvert með umsóknarfresti til 1.
október. Reglur um styrkinn fýlgja auglýsingunni en á vef NVBF má lesa skýrslur frá
þeim sem hafa fengið styrki undanfarið.
Af öðrum viðfangsefnum má nefna útgáfustarfsemi, margir þekkja Nordiske fjern-
lánsfakta sem hafa komið í nokkrum útgáfum. NVBF hefur einnig haft forgöngu um
samstarf um ókeypis millisafnalán innan Norðurlanda (Nordisk Frikreds for Fjemlán)
og norrænan póstlista fyrir millisafnalán. Nánari upplýsingar um alla þætti starfsem-
innar er að fínna á vef NVBF: http://www.dpb.dpu.dk/nvbf/nvbf.html
29. árg. - 1. tbl. 2004 - bls. 29