Fregnir - 01.03.2004, Qupperneq 35

Fregnir - 01.03.2004, Qupperneq 35
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða 7. Þátttaka Norðurlandanna í alþjóðlegri samvinnu er til umræðu að staðaldri þar sem nor- rænir fulltrúar eru tilnefndir í stjómir ýmissa félaga til að gæta hagsmuna landanna innan stærri eininga. Miklar mannabreytingar hafa orðið í þessum hópi nýlega. Finnland og ísland fengu nýja þjóðbókaverði 2002, Svíþjóð fékk nýjan mann í þennan stól 2003 og í Noregi tók nýr bókavörður við lyklum í þjóðbókasafninu 1. janúar 2004. Það verða því eflaust nýjar áherslur sem koma með nýjum mönnum. Kynjaskiptingin er einnig orðin konum í hag og nú eru tvær konur á móti sex körlum þar sem nýji bókavörðurinn í Noregi er kona. Það er viðbúið að þessi vettvangur fái nú nýtt hlutverk þar eð skrifstofu NORD- INFO hefur verið lokað í Helsinki en einhverjar tjárveitingar verða væntanlega til staðar og ekki útséð um hverjir koma til með að útdeila þeim ljármunum eða hvemig eigi að gera það. Næsti fundur NORON verður í mars eða apríl í Stokkhólmi. Gagnsemin af þessum fundum er helst fólgin í því að geta fylgst með umræðum um þá hluti sem em í gangi eða í framkvæmd á hinum Norðurlöndunum. Einnig gefst hér gott tækifæri til að koma að ákvarðanatöku um verkefni frá byrjun. Ég met það svo að á þessum vettvangi séum við fullgildir félagar og sömu væntingar til okkar gerðar og annarra meðlima. Sigrún Klara Hannesdóttir r ARSAFN - Nýjasta útibú Borgarbókasafns Reykjavíkur Sunnudaginn 22. febrúar síðastliðinn var Ársafn, nýtt útibú Borgarbókasafns í Árbænum, opnað almenningi. Safnið er til húsa á 550 m2 í Hraunbæ 119 á 2. hæð í húsi Sparisjóðs vélstjóra. Lyfta er upp á hæðina. Með tilkomu Ársafns em útibú Borgarbókasafns nú orðin sex að tölu. Árbæingar hafa þolinmóðir beðið eftir hverfísbókasafni í áratugi og með Ársafni verður sá draumur að vemleika. Opnun safnsins var í tengslum við Vetrarhátíð í Reykjavík og um tvö þúsund manns heimsóttu safnið á opnunardegi og stöðugur straumur þakklátra hverfisbúa hefur verið þessar fyrstu tvær vikur eftir opnun. Gert er ráð fyrir að safnkostur Ársafns verði um 25-30 þúsund eintök samsettur af bókum fyrir böm og fullorðna, hljóðbókum, íslenskum tónlistardiskum síðustu ára og inn- og erlendum mynddiskum, að ógleymdum einhverju af inn- og erlendum tímaritum og dagblöðum. Húsnæðið er rúmgott og bjart og notendaflæði einfalt og hindmnarlaust. Safnbúnaður er úr ýmsum áttum, Mediamix stálhillur frá Þjónustumiðstöð bóka- safna, skrifstofubúnaður frá Innx, hægindi og notendaborð frá Epal, tölvubúnaður er frá EJS. Upplýsingaþjónusta safnsins er hefðbundin en til framtíðar með áherslu á Árbæinn og nágrenni hans. Bamastarf er þegar hafið og fyrsti sögustundarhópurinn er í húsi þegar þetta er skrifað. Við opnun safnsins em starfsmenn níu í 7,25 stöðugildum, þar af einu til 2ja mánaða. Stöður bókasafns- og upplýsingafræðinga em 2,25 en fjölgar væntanlega um eina í sumarbyrjun. Afgreiðslutími safnsins er frá kl. 11 - 19, mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga en sunnudaga frá 12 - 17. Lokað er miðvikudaga og laugardaga. Laugardaginn 20. mars næstkomandi kl. 13.00 býður Upplýsing til íyrirlesturs í Ársafni. Katrín Jakobsdóttir flytur fyrirlestur sinn „Glæpurinn sem ekki fannsf‘. 29. árg. - 1. tbl. 2004 - bls. 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.